Bjarmi - 15.01.1921, Page 12
28
BJARMl
Frh. af bls. 17.
og frægur um öll krislin lönd fyrir
dugnað og fórnfýsi.
Það var smárit sem orsakaði afl-
urhvarf Coligny hershöfðingja Hú-
genotta á Frakklandi, og sama ritið
er mælt að hafi valdið afturhvarfi
Vilhjálms Þögla frá Úraníu.
Mörg íleiri dæmi mætli telja um
mikil áhrif lítils rits.
Á voru landi eru þeir harla fáir,
sem nokkru sinni hafa stuðlað að
útgáfu og útbreiðslu kristilegra smá-
rita, hinir miklu fleiri, sem í fávizku
sinni telja slíkl lítilsvirði.
En vera má að það breytist.
S. Á. Gislason.
—=-----■' ■■ ==^
Hvaðanæfa.
4 ^
Heima.
Síra Eiríkur Gíslason prófastur á
Slað i Hrútafirði andaðist í f. m. Hann
var fæddur 14. mars 1857 á Reynivöllum
í Ivjós. Foreldrar hans voru sira Gísli Jó-
hanncsson og kona hans Guðlaug Eiríks-
dóttir Sverrissonar. Ilann tók guðfræðis-
próf árið 1880, vígðist að Presthólum árið
eftir, fjekk Lund 1882, Breiðabólsstað á
Skógarströnd 1884, Staðastað 1890 og
Prestsbakka 1902. Hann var þingmaður
Snæfellinga 1894—99 og prófastur Stranda-
sýslu frá 1902. Kona hans var Vilborg
Jónsdóttir, prófasts Pórðarsonar frá Auð-
kúlu. — Síra Eiríkur var vinsæll maður
og vel látinn af öllum kunnugum.
Frú Guðríður Pálsdóttir, ekkja sr.
Sveins Eirikssonar í Ásnm, andaðist 5. des.
f. á., 75 ára gömul á Flögu í Skaftártungu.
Hún var móðir Gisla sýslumanns í Vík,
Páls kennara við Mentaskólann og peirra
systkina.
Frú Sigríður Ólafsdóttir, Gunn-
laugssonar Briem á Grund í Eyjafirði,
ekkja Davíðs prófasts Guðmundssonar og
systir Valdímars Briems vigsluhiskups,
andnðist 2. nóv. f. á. Af börnum peirra
hjóna eru á lífi: Ragnlieiður, kona Stefáns
alþingismanns í Fagraskógi, Guðmundur
hreppstjóri á Ilraunum í Fljótum, Val-
gerður og Hannes, sem bæði bjuggu með
móður sinni á Hoii. Af þeim, sem dáin
eru, má sjerstaklega nefna Ólaf þjóðsagna-
fræðing, er druknaði í Hörgá fyrir 17 árum.
Frú Guðlaug M. Jónsdóttir frá
Brekku í Fijótsdal, ekkja Jóns prófasts
Guttormssonar i Hjarðarliolti (f 1901),
andaðist i Reykjavik í des. siðastl. Börn
þeirra lijóna eru: Jón hjeraðstæknir á
Blönduósi, Páll verslunarstjóri, Guttorm-
ur járnsmiður, Guðlaug, ekkja Andrjesar
söðlasmiðs, Margrjet, kona Björns Stefáns-
sonar kaupmanns, öll í Reykjavík, og
Ragnheiður, ekkjufrú í Khöfn.
Iíunnugir hafa borið konum þessum
besta vitnisburð.
Að vestan.
Tjaldbúðarkirkjan í Winnipeg.
Heimskringla skýrir svo frá 10. nóv. í vetur:
»Tjaldbúðarkirkjan átti að seljast við
uppboð á laugardaginn. Aðeins eitt boð
kom fj’rir $ 21,000, en það þótti lánfjelag-
inu ekki nógu hátt og bauð hana inn aft-
ur. Verður kirkjan því að tíkindum seld
prívatsölu«.
Pessi frásögn er verulega raunaleg, þar
sem hjer er að ræða um líklega vönduð-
ustu kirkju, sem íslendingar hafa reist á
siðari árum. Hún átti að verða óbrotgjarn
minnisvarði um fórnfýsi og áhuga ís-
lenskrar n5rguðfræði vestan liafs, en örlög
hennar sýna, livað vall er að treysta þeim
áhuga, sem deilur eiga drjúgan þátt í.
Söfnuðurinn klofinn og á í málaferlum
um kirkjuna, kirkju, sem er svo skuldug,
að lánardrottinn setur hana á uppboð.
Pað eru hörmuleg afdrif, en æltu að vera
lærdómsrík fyrir oss hjer á Fróni.
— Eftir að þetta er sett kemur Heims-
kringia frá 1. des. með þá frjett, að dr.
B. J. Brandson, forseti »fyrsta lúterska
safnaðar# í Winnipeg, haíi kcypt Tjald-
húðarkirkjuna af lánfjelaginu og muni
lúterski söfnuðurinn ílytja sig þangað eftir
nýárið. — í rúm 2 ár hefir kirkjan verið
lokuð að kalla, cða síðan sr. Friðrik Berg-
mann fjell frá. Söfnuðurinn hans gamli
sundraður og cignalaus, en kirkjan seld
»þeim þröngsýnu«. — Svo fór það.
Útgefandi Sigurhjiirn Á, Gíslason.
PrfinUmiflian Gutenbsrg.