Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 15.04.1922, Síða 4

Bjarmi - 15.04.1922, Síða 4
76 B JARMI þröngsýni nje »sleggjudómum« að í límaritinu, og því eftirtektarverðari eru orðin. Takið ofan lituðu gleraugun og lítið á trúmálaumhverfið fjær og nær, og þjer munuð sjá, að »hræðilegu spor- in« liggja brott frá biblíunni en ekki lil hennar. V. Erindi H. N. pró/essors. Misjafnir vöru dómar manna, er Har. Níelsson auglýsti að liann ætl- aði að flytja. 2 erindi gegn 3 kr. inngöngueyri í »Nýja bíó«, er hann nefndi Svar til biskups og Biskups- kvarðinn lagður á. Þótti það ný aðferð og ekki viðfeldin, bæði að nota trúar- ágreining í gróða skyni fyrir sálarrann- sóknafjelagið og að guðfræðiskennari og þjóðkirkjupreslur færi að halda slík ádeiluerindi gegn biskupi sínum út af einni stuttri blaðagrein. Sögðu sumir að rjetta svarið frá bæjarbúum væri að lofa H. N. að tala þar við auða stóla, en auðvitað litu fylgis- menn hans öðru vísi á það og fjöl- mentu. Senuilega veröa erindin prenluð, og spáum vjer, að þá virðisl sumum þau allskorinorð. Enda þótt að ýmsum áheyrendum þætti þau »furðu bragðdauf« eftir allan storminn í trú- málavikunni, en gæflyndur málrómur verður eins og lognmolla í eyrum þeirra, sem búast við og eru vanir stórviðri. Bjarmi hefir ekkert rúm fyrir ræki- legt ágrip þessara erinda, en þar eð fæstir lesendur hans munu hafa heyrt þau, verður hjer sagt dálftið frá þeim. Er freistandi að gera at- hugasemdir um leið, en þær verða að bíða. »Sjá hversu lítill neisti getur kveikt i miklum skógi« (Jak. 3., 5.) var »textinn«, Þótti H. N. missagnir danskra blaða og þá einkum Kristilegs Dagblaðs, sem eitt allra þeirra hefði bendlað dr. J. H. biskup við spíritisma, vera furðu lítið tilefni til leiðrjett- ingar. Fór hann mörgum orðum um afstöðu og ummæli danskra blaða um sálarrannsóknaþingið liðið sum- ar og erindi sín í Danmörku. Hafði hann búist við hríð og slæmum við- tökum hjá krislna fólkinu út af þeim. Hallgrím biskup Sveinsson kvaðsl hann hafa nafngreint í sambandi við spíritisma, honum til sæmdar, »þegar hin nýja þekking hefir sigrað alla ljósfælni«, og sfst komið í hug að nokkur mundi niðra honum látnum út af því. í annríkinu ytra hefði hann ekki lesið blöðin nema við og við og ekkert vitað um greiniua i Kristilegu Dagblaði 27. sepl. fyr en liann nokkru síðar sá það borið til baka í sama blaði að dr. J. H. væri spíritisli. Kvaðsl hann hafa hlegið að, því að þá hefði hann ekki vitað að »svo Ijósfælnar og þreklausar sálir« væru út á íslandi, að þær lækju þelta nærri sjer. Reyndar hefði hann »kynst einum karlmanni hjer heima«, sem ofl hefði verið boðið að koma á tilraunafundi, »en alt af af- sakað sig með: »Það er enginn kendur sem hann kemur ckki«. — Hálfdán Helgason kand. theol. hefði seinna sagt sjer á götu, að hann hefði leiðrjett þessa missögn í Nat- ionaltidende, og síra Bjarni Jónsson hefði hjer heima sagst hafa átt leið- rjettinguna í Krislilegu Dagblaði.1) 1) Ekkert mintist liann á að sira Pórður Tómasson ljet þess getið i 1. tbl. al' aMeddelelser fra Dansk-Islansk Kirke- udvalg« 1920, að það væri ekki átt við Jón biskup tlelgason þegar dönsk blöð væru að segja frá andalrúarfundum á heimili »biskupsins á íslandi«. Þau höfðu fregnina þá eftir enskum spíritista-blöð- um, sem H. N. skrifaði i.' Ritstf.

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.