Bjarmi - 01.12.1924, Blaðsíða 10
198
B JARMI
Bækur.
Fosterlandsstiftelsen í Stocholm
hefir sent lil umtals þessar nýjar
bækur:
Guds Frálsningsuág, pistlaprjedik-
anir, eftir sr. Fr. Hammarsten, 544
bls., verð: 8,50 sænskar kr.
Andan i Apostelkyrkan, leiðbeiningar
við lestur postulasögunnar og brjef-
anna í n. testam., eftir Olfert Ricard,
400 bls., verð: 6,50 kr.
1 Dalen dár Guldet fanns, góð,
kristileg saga, eftir C. Fr. Peterson,
250 bls., verð: 4 kr. sænskar.
Barnens Religiösa Svárigheter, eftir
Edith E. R. Mumford. Þessi bók er
þýdd úr ensku, og flytur fjölmörg
ihugunarverð dæmi um trúarefasemdir
barna og ráð gegn þeim, — er
ágæt bók fyrir foreldra, 112 bls., v.
2 kr.
Julgávan 192í, er stórt og vandað
jólahefti, verð: 1,75, og Julottan 1924
er annað minna, ætlað unglingum,
verð: 55 aura, bæði með fjölda
mynda.
Vita Hjáltinnor i A/rica, eftir Con-
stance Padwick, 78 bls. 1,50 kr. sv.
Segir þar frá þrem kristniboðakonum
í Afríku á 19. öld, Mary MolTat,
Önnu Hinderer og Kristínu Coillard,
og öll frásögnin miðuð við samlestur
ungra kristniboðsvina og því einkar
vel fallin til lesturs á saumafundum
í K. F. U. K. eða svipuðum fundum.
— Islendingar hafa sneytt sig of mikið
hjá sænskum bókum; þeir, sem skilja
vel danskar bækur, komast fljótlega
»í gegnum sænskuna«, enda þótt þeir
kunni ekki rjettan framburð, lakast
er um gengið, en það fer vonandi
að lagast.
rP .............—- ................- : —^
Hvaðanæfa.
Afmæli kristniboösfjelagsins. —
Kristniboðsfjelag kvenna í Rvík varð 20ára
snemma í fyrra mánuði og bauð hinu
kristniboðsfjeiaginu í afmælisfagnað sinn
9. f. m. Frú Kirstin Pjetursdóttir, kona sra
Lárusar Halldórssonar fríkirkjuprests,
stofnaði þelta fjelag með 4 öðrum ná-
komnum vinkonum sínum og voru þær
aliar þá litt kunnar kristniboði og óvan-
ar að stjórna trúmálafundum. Pær ljetu
ekki mikið bera á sjer, en fengu þó háð-
glósur í einu stjórnmálablaðinu, sem aftur
varð til þess, ef mig minnir rjett, að sra
Jóri Bjarnason skrifaði ákveðin eggjunar-
orð til ísl. safnaða vestra, að taka kristni-
boðsmál á dagskrá sína.
Framan af sendi þetta fjelag skerf sinn
til styrktar dönskum trúboðskonum á
Indlandi, ungfrú Larsen og ungfrú Mariu
Holst, en síðustu árin styður það sra
Ólaf Ólafsson trúboða í Kína.
Allmörg ár hafa fjelagskonur verið 40
til 50 og vita kunnugir að fjelagsfundirnir
hafa orðið þeim mörgum til mikillar and-
legrar blessunar, enda kom það greini-
lega i ljós á afmælisfundinum. Par stóðu
þær upp konurnar hver á eftir annari
og töluðu skýrt og skipulega um trúar-
reynslu sína. Er þar eitt dæmi margra,
að »kristindómur eykst þegar af er tekið«,
eða að hann eflist heima fyrir hjá hverj-
um sem kappkostar að útbreíða liann.
f stjórn fjelagsins eru nú frú Anna
Thoroddsen, forstöðukona, frú Ingileif
Sigurðsson, fjehirðir og frú Kristjana
Pjetursdóttir, skrifari. A fundinum voru
ílutt 2 góð afmæliskvæði og hið þriðjn
sem hugsað var þá, ef ekki orkt, birtist
hjer nú.
Vel er það er vinir finnasl,
við það eflist ráð og dáð.
Pá er æ á margt að minnast,
mest af öllu: Drottins náð.
Pá er beðið, þakkir tjáðar,
þeim, sem skilur alt og veit —
þá er kvatt lil dygða’ og dáða,
Drotni unnin fögur lieit.
Peir, sem Guðs í verki vaka,
velja sjer því eítthvert kvöld —
Guðs í holla hönd að taka,