Bjarmi - 01.09.1930, Page 6
150
BJARMI
til þess uni 10 miljónum króna, enda
er kirkjan nú lang-veglegasta kirkja
NorDurlanda, og jjótt víðar væri leitað.
Þrjú síðustu árin Ijet ríkissjóður nærri
hálfa miljón króna á ári til kirkjunn-
ar, og þegar byggingarmeistararnir
sögðu að það væri ekki nóg til að
ljúka við aðalhluta kirkjunnar fyrir
900 ára afmælið, voru samskot haíin
uin alt land og gefin um miljón kr.
Norskar konur gáfu af þeirri upphæð
um 180 þús. kr. til að prýða stærsta
gluggann, norskir Ameríkumenn gáfu
krossaltari veglegt, einn þeirra gaf
kirkjuorgel, eitt af stærstu kirkju-
orgelum heims o. s. frv. — Annars
bárust kirkjunni margar veglegar gjafir
um hátíðina; var ein þeirra frá Fær-
eyjum, málmlíking af dómkirkjunni í
Kirkjubæ.
29. júií var aðalhátíðin á Stiklastöð-
um. Segja blöðin, að þar hafi verið
30 til 40 þúsund viðstaddir. Aðal-
ræðumenn þar voru 3 norskir biskupar,
Hákon konungur og Iladsund ráðherra.
Kaþólsk kirkja á sjerstaka kapellu
á Stiklastöðum, og hjeldu kaþólskir
Norðinenn og erlendir pílagrímar sjer-
stakar guðsþjóuustur bæði þar og í
Prándheimi; höfðu þeir páfabrjef með-
ferðis og vildu einir eiga Ólaf helga.
Næstu 5 daga voru svo 3 til 4
guðsþjónustur eða kirkjuleg erindi og
kirkjusamsöngvar í dómkirkjunni.
Næst síðasti dagurinn var sjerstaklega
tileinkaður leikmannastarfsemi innan
kirkjunnar. Steig þá Ilaldór bóndi
Bjerkeseth í stólinn og flutti ræðu, er
blöðin segja að ekki hafi staðið að
baki ræðanna, sem biskupar höfðu
flutt aðra daga hátíðarinnar.
Annars flytja allar þær ræður frá
hátíðahöldunum, sem Bjarina hafa bor-
ist í Prándheimsblöðunum, mjög á-
kveðinn kristindóm, en engur ágisk-
anir um »nýmóðins« trúarbrögð.
Ávörpin og ræður Norðinanna vest-
an um haf voru í besta lagi, en þar
eiga norskir söfnuðir um 3000 kirkjur,
er 1200 prestar þjóna.
Jafnframt öllurn þessum kirkjusam-
komum var og kirkjusöguleg sýning
um þessar mundir í Prándheimi, þar
sem allskonar kristilegur fjelagsskap-
ur í Noregi sýndi myndir og skýrslur
um störf sín fyr og síðar.
Samhliða kirkjuhátíðinni voru flutt-
ar 29. júlí veglegar guðsþjónustur í
öllum aðalkirkjum Norðmanna um land
alt, og kirkjulegir samsöngvar að
kvöldi mjög víða.
Hovedverker av den kristne littera-
tur fra kirkefedrene til nutiden heitir
ritsafn mikið, sein Lutherstiftelsen er
að gefa út og ýmsir ritfærustu menn
norsku kirkjunnar vinna að. Pað verð-
ur í 14 binduin. Kostar hvert í vönd-
uðu bandi (um (230 bls.) aðeins 3 kr.
85 aura norskar, burðargjald til Is-
lands er 70 aurar fyrir hverja bók.
Bindin heita svo:
1. Fra Oldkirken.
2. Middelalderens fromhetsliv.
3. Marthin Luther.
4. Reformations árhundret i Norden.
5. Johan Arndt: Sanne kristendom.
6. Chr. Scriver: Sjelesskatt.
7. J. Bunyan: Pilegrims vandring.
8. Fra Pietismens tid.
9. H. N. Iíauge og Haugiauerne.
10. Fra engelsk og aiuerikansk krist-
enliv.
11. Fra det udflyttede Norge.
12. Fra dansk kirke og kristenliv.
13. Fra svensk kirke og kristenliv.
14. Yidnesbyrd fra kristenlivet i Norge
i det 19. árhundre.
6.—12. bindi eru þegar útkomin,
en hin eiga að koma með 6 vikna
millibili. Er óhætt að mæla ineð þessu
ritsafni við alla rróðleiksfúsa kristin-
dómsvini, er lcsa norsku.