Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.05.1932, Síða 3

Bjarmi - 01.05.1932, Síða 3
BJARMI 67 En er hann nýlega las 1 not'sku blaði, að sra Grimnes hefði dáið í febrúar í vet- ur, 82 ára gamall, langar hann til að leggja ofurlítið lauf á leiði hans, með því að birta á íslensku það sem Wislöff prestur, framkvæmdarstjóri heimatrúboðs Norð- manna ritar um hann í »Fattig og rik«. Mann skrifar: »Bestu prestsskaparár sr. Grimnes voru í Álasundi (um 1890). Hann kom þangað, er öflug trúarvakning fór um þá borg og alla Sunnmæri. Það var á starfsdögum Páls Gerhards Sand:!:). Gamli, alvöru- þrungni boðskapurinn um iðrun og aftur- hvarf, frá dögum Gísla Johnsonar, próf- essors, hafði bundið samviskur margra, er leituðu, þunglyndir, en fundu ekki gleði og frelsi fagnaðarerindisins. Pá kom prje- dikunarmáti Róseníusar frá Svíþjóð og lietti þunglyndinu, hjájpaði lögmálsþjón- um til frelsis Guðs barna. Grimnes varð sjálfur gagntekinn af þessari nýju fyll- ingu og prjedikun hans bar þess vitni. Hefir fáum prestum auðnast að njóta. svo ávaxtaríkra preststarfa, í andlegum hrær- ingum, sem honum þessi ár í Álasundi. Kirkjan jafnan troðfull og sífeld vakn- ing. Jafnframt var hann öruggur vin- u.r ieikmannastarfsins. Hefir varla nokk- ur prestur hlotið jafn alment traust trú- aðra leikmanna vestan fjalls í Noregi, sem hann. Þegar hann fluttist til Björg- vin, var hann sjálfkjörinn formaður vest- læga heimatrúboðsins, og var það lengi. Þaðan fluttist hann til Skedsmo, sunnan- lands. Heilsu hans fór hnignandi, en djúpi og skýri evangeliski boðskapurinn var ó- breyttur. Jeg heimsótti hann þar oft, einn- ig eftir að hann var orðinn heilsulaus upp- gjafaprestur, en kveðjur hans og hlý hand- tök voru jafnt, sem fyrri, gott veganesti. Nú er hann kominn heim.« Hann var seinni hluta síöustu aldar meðal kunnustu leikprjedikara Norðmanna. Af einu riti hans, »Politik og Kristendom«, seldusl 60000 eint. Endurminningar heitir löngu grein í Heimskringlu eftir Frið- rik Guðmundsson, sem bjó um hríð í Norður- Þingeyjarsýslu, en fluttist vestur um haf fyrir aldamót. Einn kaflinn rœðir um prestana, sem höf. þekti, og er hjer birtur nokkur hluti hans, til ihugunar unga fólkinu, en enginn dómur á hann lagður. líitsij. Ujnrjua. »Jeg þarf lítið eitt að minnast á embættis- strafsemi prestanna yfir höfuð, til samanburð- ar við það sem nú er algengast. Fyrir minn skiln- ing og mlna lífsreynslu,, get jeg ekki veriö ])vi samþykkur að trúarlífi manna fari stöð- ugt hnignandi. Gamlir menn þykja hafa trúar- hnignuninni öfluga sönnun i því, hve kirkjan var margfalt betur sótt á þeirra uppvaxtarárum. IJetta segja þeir alveg satt. Jeg var orðinn fer- tugur, þegar kirkjurnar fóru óðum að tæmast. En þegar á að gera sjer grein fyrir sönnu trúar- lífi, þá er nauðsynlegt að vita, hvað alþýðan var að sækja I kirkjurnar, og þá kemur til að minnast þess, sem prestarnir höfðu á boðstól- um. Fyrst af öllu ætla jeg þó að kannast við það, að ,jeg met það mikils, sem er að gjör- ast innbyrðis með hverjum einstökum manni, þegar hann er komihn samhliða öðrum I kirkj- una. Pannig getur heyrnarlaus maður haft gagn af að sækja kirkju, af því sætið I kirkjunni, og myndir viðburðanna flytja hans eigin skiln- ing upp í næstu tröppu. Það var alt að því und- antekningarlaus regla, að prestarnir skrifuðu sín- ar ræður, og jeg bíeti því hiklaust við, að eftir að þeir höfðu verið prestar I tvö til þrjú ár, þá reyndu margir þeirra ekki mikið á sig við ræðusmíði. A leið frá kirkju heyrðist það löng- um: vPetta var sama ræðan og hann hafði þenna dag í fyrra.« Ræðan var kannske góð, og menn sögðu, að gðð vísa væri ekki of oft kveðin, Ekki nema fáir af öllum söfnuðinum veittu þessu eftirtekt. En hvaðan koma lífæðar hinnar and- legu framþróunar, ef presturinn er 25 til 40 ár á sama stað, og oftast með sömu tvær þrjár ræðurnar, sama sunnudag á árinu? Önnur regla var þaö, sem, samkvæmt minni eftirtekt, tak- markaði prestana sem kennimenn. Peir álitu eins og skylt, að legjgja út af guðspjalli eða pistli dagsins, svo að ekki var til neins að flýja í aðra kirkju, til að heyra annað efni útlistað. Pað var þvi eingöngu aflsmunur á sama kaðl- inurn. Jeg hefi aldrei verið prestahatari, heldur hafa þeir þvert á móti flestallir verið mlnir uppáhaldsmenn. Jeg er því ekki að niðra þeim,

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.