Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.09.1932, Blaðsíða 5

Bjarmi - 01.09.1932, Blaðsíða 5
BJARMI 127 staðarins, og því verðum við að tryggja kristnihald þar, engu síður en heima fyr- ir„« var viðkvæði margra foreldra út um land). Já, nú mátti loks fara að byggja fyrir alvöru og framtíðina hjá okkur í Frið- rikshólmssókn. Samt reistum vjer enga stórvaxna kirkju, heldur myndarlegt safn- aðarhús með sjerstökum kirkjusal fyrir 250 manns, og- mörgum herbergjum. ætl- uðum æskulýðsstarfi, sunnudagaskóla og fleiru safnaðarstarfi. Þetta var árið 1927. Svipað þessu hefir víðar verið starfað í höfuðborginni., En síst má það gleym- ast, að aðalatriðið íi öllu starfinu er and- Jega hliðtin. Það er verið að reyna að efla Guðs ríki, fremur en húsabyggingar. Mjer er kunnugt um, að þjer Reykvík- ingar eruð að hefja kirkjuhreyfingu Reykjavíkur, og það síst að þarfleysu. Allir viljum vjer þá minnast orða Páls postula: »Guðs ríki er ekki fólgið í orð- um, heldur í krafti.« -— Og áfram kom- umst vjer því aðeins með málefni Guðs ríkis, að vjer göngum í trú og bæn og hlýðni. En þá fáum vjer að reyna líkt og Sakarías, að náð Drottins getur breytt »stóra fjallinu« að sljettlend.i (sbr. Sak. 4, 7.), og getum lokg sagt með Davíð: »Að tilhlutun Drottins er þetta orðið, það er dásamlegt í augum vorum« (Sálm. 118, 23.). S. A. G. ísl. C. H. Lcth. \j-ja kirkju, einkar myndarlega, hafa Siglfirð- ingar reist. Vigði biskup hana með aðstoð ýmsra presta 28. ág. s. 1. f gömlu kirkjunni hafði sr. Bjarni Þorsteinsson, prófessor, flutt 2000 stól- ræður, 550 líkræður, skírt 600, fermt 700 og' gift 55 hjón. Sú kirkja var bygð árið 1890 og kostaði ]>á 4000 kr. I’restníuÍHliir Vestfjarðn var haldinn i Bolung- arvík um mápaöarmótin síðustu. Hefir Bjarmi ekki annað frjett af honum, en að safnaðarfólk í Bolungarvík hafi sótt ágætlega. Kristilegar vakningar. Að miklu leyti eftir Jóhann Hannesson, kristniboðsnema. Margir undrast, er þeir heyra getið um trúarvakningar, af þeirri ástæðu, að þeir þekkja lítið eða ekkert til þeirra. Aðrir hæðast að vakninguim og sannkristnu fólki, án þess að vita, að hverjui þeir eru að gera gys. Ennfremur álíta sumir vakn- ingar og afleiðingar þeirra skaðlegar og óhollar. Er það af óvild. gegn trúarbrögð- um og kristindómi, sem jafnan stafar af þekkingarleysi manna gagnvart sjálfum sjer og öðrum, og skilningsleysi á krist- indóminum, eins og hann er í raun og v.eru. Islenskir lesendur, sem eigi hafa verið crlendisi munu lítið þekkja trúarvakning- ai\ nema af sögn eða lestri. Eitt er þó víst: Trúarvakningar hafa á.tt sjer stað og eiga sjer stað framvegis, og þær móta andlegt líf margra þeirra, sem hafa orð- ið svo lánsamir að hafa mætt áhrifum þeirra. Svo mikil brögð erui oft og einatt að kristilegum vakningum, að þeirra gæt- ir um langan tíma hjá stórum hluta margra þjóða. Greint er á milli »uppeldiskristindóms« og »vakningarkristindóms«, og það eigi að ástæðulausu. Með »uppeldiskristindómi« er átt við þann kristindóm, er menn hljóta við kristilegt uppeldi og þroskast svo smám saman til sjúlfstæðrar trúar. Með »vakningarkristindómi« er átt við þann kristindóm, er þeir öðlast, er gjöra iðrun og afturhvarf. Þeir hafa »snúið við«, snú- ið frá hirðuleysii, synd og. vantrú og geng- ið Drotni á hönd margoft eftir harða sálarbaráttu og eiga alloft beiskar minn- ingar glataða sonarins; en hinir hafa allt af haldið rjetta leið, þótt það framan af hafi verið fremur af hlýðni við góða leið- toga en af lifandi trú, en hættan er þar sú, að þeir, sem aldrei villast út í lesti

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.