Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 15.10.1932, Qupperneq 2

Bjarmi - 15.10.1932, Qupperneq 2
154 BJARMI svo að orði, að hann fyndi til lítillar gleði við heimkomuna til ættjarðarinnar, því allar tilfinningar hans snerust um ógleði sjóveikinnar. »En,« sagði hann, »jeg veit að jeg er á| rjettri leið, úr því jeg er um borð á þessu skipi. Þannig veit jeg einnig, að jeg er á leið heim til Guðs, af því jeg hef gefist frelsaranum Jesú. Þess vegna felst mjer ekki .hugua’, þrátt fyrir erfiðleikana.« »Þökk fyrir að þú komst hingað og sagðir mjer þetta,« sagði Oftedal. »Mjer er þetta allt nýtt. Þrátt fyrir veikindin og baráttuna, líður mjer nú vel í faðrni hans, sem ber mig yfir um.« Ölafur Ölafsson, kristniboðn Andsvar. Eftir Valg. Skagfjörð, stud. tlieol. Ásm. dócent Guðmundsson birtir »nokk- urar athugasemdir« í síðasta tbl. »Bjarma« við grein þá, er jeg birti í næsta bláði á undan, um kensluna í trúarsögu Israels við Háskólann. Mjer er það kunnugt, að margir af les- endurn Bjarma hafa beðið óþreyjufullir eftir þessari grein dócentsins, því að mönn- um hefir ekki verið ljúft að trúa því, að svo ákveðin afneitun væri kend í Háskól- anum, sem bók Hölschers heldur fram. Bjug'gust því margir við, að dócentinn gerði hreint fyrir sínum dyrum og and- mælti afneitunum Hölschers. En þetta fór nú allt öðru vísi en menn óskuðu og von- uðu. Dócentinn upplýsir það, að í þeim há- skólabókasöfnum í Þýskalandi, sem hann fjekk aðgöngui að, hafi hann enga kenslu- bók fundið, sem ekki hafi gert sig seka um sömu afneitunina og Hölscher. Má það teljast dæmalaus óhepni, en annars er ekkert við því að gera, og mun jeg ekki gera það að umtalsefni í þessari grein. En það er annað, sem dócentinn upplýs- ir, og það er mjög alvarlegt atriði. Hann lýsir því yfir, að endu þótt hann liefði f undið slíka kenslubók, þá mundi hann alls ekki hafa valið hana til kenslu hjer við Háskólann, því að hún hefði flutt þann boðskap, sem væri »ósamrýmanlegu>r þeirri glöggu og góðu greind, sem'Gnð hefir gef- ið þjóð vorrix Þetta eru skýr orð og þess verð, að les- endur »Bjarma« festi þau sjer í minni. Árið 1932 erum við komnir svo djúpt nið- ur á við, að háskólakennari í guðfræði lýsir því yfir afdráttarlaust, að það sje hin »glögga og góða greind,« sem eigi að skera úr því, hvað megi teljast rjett og satt í Ritningunni, því að þar megi ekk- ert vera, sem ekki sje í »samræmi« við þessa »glöggu og góðu greind.« Eftir þessa yfirlýsingui herra dócents- ins er víst enginn hissa á því, þótt hann fyndi ekki heppilegri bók en Hölscliers. Um einstök atriði greinarinnar vil jeg svo taka þetta fram: Að því er snertir .hina skáldlegu lýsingu herra dócentsins á kenningu Hölschers um Jahvetrúna, þá verð jeg að segja, að sú lýsing mun koma flestum þeim kynlega fyrir sjónir, sem lesið hafa bók Hölschers. Annars verð jeg, því miður, að sleppa því aö þessu sinni, að ræða það atriði nánar, vegna rúmleysis í blaðinu, en margt mætti um það segja. Dócentinn kvartar undan því, að jeg vitna ekki í blaðsíðutal í bók II. Jeg fæ nú ekki sjeð, að það saki mikið, þar sem dócentinum er auövitað fyllilega kunnugt, hvað það er, sem Hölscher heldur fram. Og að því er aðra lesendur »Bjarma« snert- 'ir, þá er það auðvitað alveg gagnslaust fyrir þá, þótt getið .hefði verið um blað- síðutöl í bók II., þar sem það eru einungis 10 20 manns á öllu landinu, sem eiga bók- ina, og lang flestir lesendur »B.jarma« eiga engan kost á að kynna sjer hana af eig’in reynd. En annars væri mjer ljúft að gefa dócentinum upp blaðsíðutilvitnanir, ef hann óskaði þess.

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.