Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.03.1934, Qupperneq 1

Bjarmi - 01.03.1934, Qupperneq 1
XXVIII. árg. Reyk.javík, 1. mars 1934. 5. tbl. Til falls og viðreisnar. Lúk. 2, 34—35. Ef ég: segi: Jesús er í heiminn kominn öllum mönnum til viðreisnar, þá verða þeir ^áir, sem ekki samsinni því. Flestir munu vera því samþykkir, að hann sé ljós og' Ijómi Guðs dýrðar. Peir viðurkenna, að eng- 'nn rnaður hafi nokkru sinni verið .jafn- ingi hans að fullkomnu siðgæði, enginn hafi nokkurn tíma sýnt mönnum, hvernig Guð er, eins og hann. »Breytum eins og hann, þá verðum vér Guði líkir, já, eins og Guð«. Þetta leitast margir við að gera af eigin i’amleik og verða margir eig'i af því skekn- lr, að þeim hafi tekist það. Og vakni stund- um hjá þeim einhver efi um það, þá friða þeir samvizku sína með því, að þeir, sem taldi r eru vænir og' vandaðir menn, sóma- rnenn, hrósa þeim og hafa gott álit á þeim °g traust, sakir hins góða lifnaðar þeirra. En hvað seg'ir svo Jesús sjálfur um þessa v*nu og vönduðu menn. »Ég þekki yður ekki«. Og hann gefur þeim speg'il til að líta í, ef verða mætti, að þær gætu þekkt sjálfa sig í honum. Hvaða spegill er það? Það er sagan af e'dra bróðurnum í dæmisögunni um t.ýnda soninn. Hvað sagði hann um sjálfan sig: Sjá, í svo mörg ár hefi ég nú þjónað þér og aldrei breytt út af boðum þínum og mér hefir þú aldrei gefið kiðling, svo að ég gæti gert mér glaðan dag með vinum mín- um En er þessi sonur þinn, sem sóað hefur eigum sínum með skækjum er kominn, þá slátraðir þú alikálfunum hans vegna.« Hvað sýnir nú þessi líking? Hún sýnir svo berlega, að þeir, sem eru að ávinna sér himnaríki með breytni sinni, þvkjast eiga það skilið fyrir góðvekin sín, fyrir alla sína trúu og dyggu ytri guðs- þjónustu. Og því næst sýnir hún, að þeir telja sjálfsagt, að Guð loki ríki sínu fyrir hihum bersyndugu, sem svo eru kallaðir, því að þeir éigi ekki annað skilið. — Þeir viíja ekki þiggja himnaríki að gjöf, eins og týndi sonurinn. Til þess þykjast. þeir hafa þjónað Guði af of mikilli trú og dygð. »Hann reiddist«, seg'ir Jesús, »og vildi ekki fara inn.«. - En — er þetta að breyta.eftir Kristi? Er þetta að vera eins og Guð? En hve sorglega menn geta blekkt sjálfa sig. I þessum líkingarspegli frelsarans sést svo g'lög'gt þetta tvennt: Annarsvegar: eig- ingirni mannshjartans, hann sér til ríflegra launa fyrir þjónustu sína, og hins vegar

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.