Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.03.1934, Qupperneq 4

Bjarmi - 01.03.1934, Qupperneq 4
34 BJARMI mörgum til falls og að snöru. Lífshreyfing sú, sem boðun orðsins vekur og játning trúarinnar á Jesúm Krist, frelsara vorn, verður til að færa þá fjær Kristi, sem sjálf- rjettlátir eru, færir þá nær mannglötun- inni, af því að þeir vilja ekki trúa, að Jesús einn sé vegurinn, sannleikurinn og lífið. Pessi alvarlega afstaða mannanna við Krist og fagnaðarerindi hans, er fyrir trú- aða menn, eins og sverð, sorgarsverð, nísti hjarta þeirra. Móðir Jesú fann þenna ægilega sársauka, er hún stóð undir krossi sonar síns og heyrði háðglósur hinna »rjettlátu« Farísea dynja yfir hann, þar sem hann hékk í óum- ræðilega sárri pínu. Þá var sem kjallara- hleranum væri lyft upp og hugsunum margra hjartna væri slept út og leidd í ljós djúp ósvífni og hatur gegn Guði, sem enginn hafði áður minnsta grun um. Það voru trúhneigðu mennirnir, sem á þeim degi sneru út sinni innri hlið. Þeir eru margir, sem helst vilja frið- samlegan og þjóðlegan kristindóm, sem ekki skorar á menn til baráttu eða and- mæla gegn sjer; þeir vilja hafa kristin- dóm sem hjálpar fólkinu til að koma auga á hið góða hjá mönnunum; sje nú lögð öll alúð við þess manngæði, þá geti menn orð- ið góðir og vandaðir kristnir menn og kon- ur. — Ó, hve þá verður gaman að lifa, segja menn. En — ekki er minnst einu orði á, að rýma þurfi burtu hinu illa úr fari manna. Þeir telja víst, að það hverfi sjálfkrafa. Enginn á að segja til syndanna. Og svo sefur vantrúin vært með allan sinn fjandskap gegn Guði og fyrirlitningu á Kristi, alveg eins og spámaðurinn Jónas forðum í neðsta rúminu í skipinu. ITvernig er það nú með mig og með þig, kæri vinur, sem orð mín heyrir. 1 okkur báðum hefir búið þetta hættulegasta og versta. Erum við þá búnir að sjá það og varpa frá oss vantrúnni á son Guðs og höfum vjer í þess stað, fyrir áhrif heilags anda, tekið barnið heilaga í fang sem vora einu huggun, hið eina hjálpræði vort og allra lýða, eins og Símeon gerði forðum? Höfum vjer sem köllum oss trúaða, orðið þess varir, að það er vantrú vor, sem veldur því, að vjer erum svo skammt á veg komnir. Er oss orðið Ijóst þetta orð Jesú, sem hann talaði til Mörtu: »Ef þú trúir, muntu sjá dýrð Guðs.« Guð styrki vora veiku, bai-nslegu trú með anda sínum, svo vjer hneykslumst aldrei á Kristi, heldur trúum æ meira og inni- legar á hann; hann sætir aldrei neinum andmælum af vinum sínum, af því þeir hafa reynt, hver hann er. Pú ert allt, seni þarf jeg, Kristur, þig ef fæ jeg, allt jeg hlýt; jeg' er stríðum stormi hristur, stenst þó, ef þíns liðs jeg nýt. Auman þjón ei yfirgefðu, örmum náðar fast mig vefðu, leið mig svo t lífshöfn inn loks í dauða, Jesú minn. g /, Eilíf útskúfun.*) Eftir ungan námsmann, Niðurlag. Þannig er þá þessari kenning ekki fylgt af vanhugsuðu máli heldur þvert á 'móti. Hver er sá, er leiki sér að að kasta fram slíkri kenning, fyrir mannssálir sem eiga í örvæntingarfullri baráttu, ;in þess að hann trúi henni sjálfur? Yei þeim manni er slíkt gerir því hann kallar yfir sjálf- an sig sama dóm. Ég veit af mörgum sem trúa, en ég segi ekki að þeir skilji kenn- inguna til fullnustu en það gera afneitarar hennar ekki heldur. Að því dýpsta í kenn- ingunni megnar aldrei nokkur maður að komast hve mikil »nánari umhugsun« sem er við höfð. Hún er, eins og svo margt ann- að í kristindóminum, leyndardómur sem ekki opinberast fyr en »Kristur vort líf te *) f síðastu tbl. stóð; Eilíf glötun, en átti að standa: Eilíf útskúfun.

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.