Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.03.1934, Síða 6

Bjarmi - 01.03.1934, Síða 6
36 BJARMI situr á svikráðum við það hið sanna líf. Þeir sem hafna útskúfunarkenningunni. virðast ganga út frá því, að þeir sem trúa henni, hugsi sjer Guð sem einhverja offors- reiða persónu, sem í einskonar »hefnigirni« yfir syndinni varpi syndaranum í glötun. Nei, kenning kristindómsins byggist á því að baráttan milli Guðs og þess illa knýr manninn til að taka afstöðu hvoru megin hann vill vera bæði þessa heims og annars. Þetta er kenning sú sem kristindómur inn kenndi og kennir, og getur alls ekki samrýmst skoðunum þeirra sem loka aug unum fyrir því að til sé eilíf afleiðing af vali manna gagnvart eilífa lífinu. Um það, sem þeir, er kallaðir eru »gáfna- menn« og »víðsýnishetjur« þjóðarinnar. segja, að aldrei takist að sannfæra Islena- inga um þetta atriði, má segja að þessir menn kalla yfir sig og inniloka sig í vers það, sem Stefán píslarvottur sagði í Posl:. 7, 51: Þjer harðsvíraðir og óumskornir á hjörtum og e.vrum þjer standið ávalt gegn heilögum anda, þjer eins og feður yðar. Sigurður Ingjaldsson frá Balaskar&i, fæddur 10. apríl árið 1845, andaðist vestur á Gimli annan jóladag s. 1. Hann fluttist vestur um haf með konu sinni, Margrjeti Kristjánsdóttur árið 1887, og bjuggu þau að Gimli uns hún andaðist 1908. Eftir það var Sigurður oftast einbúi (»baslari«), i litlu húsi á Gimli, en átti þó fjölda vina fjœr og nær meðal landa sinna. f einbýlinu tók hann að fást við ritstörf og ritaði æfisögu sína í 3 bindum og »Gísla þátt Brandsonar«. Eru tvö fyrri bindi æfisögunnar og Gísla þáttur Brandsonar full af ýmsum fróðleik um ferðalög og daglegt líf alþýðumanna seinni hluta sfðustu aldar, Sra Jóhann Bjarnason á Gimli segir meðal ann- ars svo um Sigurð heitinn í minningarorðum í tögberg 18. jan. s. 1.: »Aðaltilefiiið að hann skrifar æfisöguna er að bera persónulegt vitni um kraft og blessun kristi- legrar trúar og sigurafl bænarinnar í Jesú nafni. An þessa mikla tilefnis taldi hann sig naum- ast geta rjettlætt þann tilkostnað, er æfisagan hafði í för með sjer«. »Sigurður lá enga banalegu. Hafði verið ofur- lítið lasinn á annan í jólum. Hafði lagt sig fyrir f rúmi sfnu að kvöldi og var andaður þegar að var komið«. Með Sigurði Ingjaldssyni burtkölluðum er horf- inn sá maður er margreynt hafði ágæti og kraft kristilegrar trúar, og lifði hvern dag í blessunar- rfku samfjelagi við Krist, frelsara mannanna og sóttist stöðugt eftir ljósi og leiðslu Heilags Anda. Fann hann þar alla huggun og blessun er manns- andinn jafnan þráir.« Undirritaður, sem átti brjefaskifti við Sigurð heitinn undanfarin 20 ár, getur borið vitni um að þessi ummæli sóknarprests hans eru alveg sönn. * S. Á. Gíslnson. ----- Alfaðirinn andans strauma útsendir í tóman geym og með ljössins fossa flauma fyllir okkar sjónarheim er vera skal vor vagga og skóli uns vjer til Drottins hverfum heim. Ilnlldór Bjnriiai'son frá Prestshólum. Gjafir til kristnilioðs: 25 kr. frá I. Bd. til Hallgrímskirkju 5 kr. sama; Bjarma 5 kr. sama. Leiðrjetting. Móðurætt Hildar sál. Bóásdótlur. er ekki rjett rakin í jan.bl. Bjarma þ. á. Sigur- björg móðir Hildar var bróðurdóttir frú Krist- rúnar Jónsd., frá Grenjaðarstað, konu sra Hall- gríms pröfasts á Kolfreyjustað. Ársþing Kristiilboðsfjeliigannn veröur 9.- -11. júnf í vor. Fjelög innan Sambandsins mega senda 1 fulltrúa fyrir hverja 10 meðlimi, þó ekkert fjelag fleiri en 5. Styrktarfjelög, sem árlega senda gjafir í Sambandssjóð, mega senda 2 full- trúa hvert. Prestar eða aðrir kristniboðsvinir, sem búa nærri þjóðvegi milli Akureyrar og Reykjavíkur ættu að láta Sambandsstjórnina vita, ef þeir óska að fulltrúar að sunnan flytji erindi í kirkju þeirra á norður- eða suðurleið. Blaðsíðutalið 1 febrúarblaðinu var rangt, átti að byi'ja á 15 bls. og enda á 30 bls,

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.