Bjarmi - 01.03.1934, Síða 8
38
BJARMI
K. F. U. M. íi ísaíirrti hélt 1. árs afmæli sitt t,
jan. síðastl. Uað var stofnað með 19 fermingar-
drengjum; nú eru meðlimir rúmir 60 á aldrinum
12 til 17 ára. Fundurinn var haldinn í kirkjunni.
Töluðu þar framkvæmdarstjóri, formaður og
nokkrir aðrir úr stjórninni. Fundurinn fór vel
fram, ekki hægt að sjá eða heyra annað en þar
væru fullorðnir menn, og ánægjulegt var þegar
allir drengirnir fóru upp að altarinu, krupu þar í
bæn þakkandi konungi sínum og leiðtoga fyrir
handleiðslu hans á liðnu ári. Eftir fundinn var
kaffidrykkja 1 einu samkomuhúsi bæjarins. Par
var sungið og ræður fluttar. Það virtist vera mik-
ill trúaráhugi hjá þessum ungu vinum, þeir virð-
ast keppa að því að lifa þannig að allir geti
sjeð hverjum þeir þjóna. Sjera Sigurgeir pró-
fastur er framkvæmdarstjóri og leiðbeinandi, en
stjórn skipa eldri drengirnir. Það er bæði aðal-
stjórn og varastjórn og yfirleitt er starfið látið
lenda sem mest á félögunum eftir þroska þeirra.
Góð gjöf var fjelaginu gefin á afmælinu, það
var biblía; nokkur heillaskeyti fjekk það og jeg
var gestur fjelagsins á þessum fundi og vil nota
tækifærið til þess að þakka bæði stjórninni og
fjelögunum fyrir þá gleðirlku stund, sem þeir
veittu mjer.
Fundir eru haldnir einu sinni í mánuði en það
sem mest stendur fyrir framförum er húsnæðis-
leysið, — verður að lifa á bónbjörgum með það.
En mikill áhugi er fyrir því að koma upp húsi
sjóður dálltill er til og svo ætla drengirnir sjálf-
ir að fara að grafa fyrir grunni með vorinu, svo
vonandi verður ekki langt þar til þeir hafa kom-
ið sjer upp húsi. Trúna virðist ekki vanta á að
það verði hægt, með Guðs hjálp. Það er gleði-
legt, á þessum tímum, þegar fermingarbörn koma
til prestsins síns og biðja hann að hjálpa sjer
til að mynda fjelagsskap, sem hafi það markmið
að lifa fyrir Jesú og málefni hans. Það gerðú
þessir drengir, og hvernig fjelagið hefur blómgast
sýnir að þeim hafi verið alvara. Jeg vildi óska
þess að þessir ungu vinir yrðu mörgum drengjum
til fyrirmyndar, vildi óska að tala unglinganna,
sem af hjarta vilja ])jóna frelsaranum, marg-
faldaðist. Nú er útlit fyrir að það verði að gera
út um það 1 alvöru, hver á að vera leiðtogi vor,
nú er mikið gert til þess að rífa alla guðstrú úr
hjörtum fólks; nú nálgast sá tími er flokkarnir
skiftast. Jesú blessi alla þá sem játa trú sína.
Vinir hans þurfa engu að kvíða, hann tekur þá
í sína vernd.
K. F. U. M. á að vera herlið hans, sem fylgir
honum trúlega, og vinnur að því að leiðbeina
fólki til hans.
Eilífur Guð hjálpi öllum, sem vilja reyna að
lifa Jesú og vinna eftir boði hans. Guð blessi
þessa drengi og hjálpi þeim til að vera trúir
liðsmenn, veiti þeim kraft til að standa stöðugir
í trúnni á Jesú.
Guðjón Sigurðsson, vjelstjóri.
PRENTSMIÐJA JóNS HELGASONAR