Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 15.02.1935, Blaðsíða 5

Bjarmi - 15.02.1935, Blaðsíða 5
BJARMI 29 fælnir við »andann frá Ási« og halda í ein- feldni sinni, að hann sje í og með alstað- ar þar, sem þeir rekast á alvöru í trú og’ siðgæði, og sjá þá ofsjónir — stundum eins og- gengur um myrkfælna menn. Sbr. grein Hagalíns um Sálmabókar-við- bætinn í sumar sem leið. En vitaskuld telur Bjarmi þessa hræðslu þeirra sjer til tekna. Rjett mun það hjá J. J. því miður, að sra B. Kr. stendur allfjarri Bjarma í trúmálum. Jólaföstuhugleiðing hans í blaðinu Degi 22. des. s. ]. sýnir það glöggt. Þótt þar sje margt vel sagt um siðferðiskröfur Krists, sýnir þar sumt, að sra B. Kr. er miklu fremur únítari en kristinn maður í þess venjulegu og sögu- legu merkingu. Má þar nefna t. d., að sra B,. Kr. skrifar: »Jesús sagði aldrei trúið á mig, heldur fylgið mjer« og: »Þetta er í raun og veru eitt af rperkilegustu fyrir- brigðum mannkynssögunnai', hvernig Jes- ús hefir verið frelsaður af þeim goðastalli, sem hjátrúarblandin ímyndun hefir sett hann á, og' hvernig hann nú er orðinn einn af þeim mönnum mannkynssögunnar, sem mest er rætt um«. Svo mælir enginn Kriststrúarmaður, og við slíka trúarstefnu semur Bjarmi al- drei frið. En sannmælis skal hann njóta engu að síður hjá Bjarma fyrir drengileg skrif sín gegn óþverralegum bókmenntum. Guðleys's- og siðlej sisstefnan ætlar sjer sýniléga að skamma alla andstöðu í kaf, býst við að þeir óánægðu muni skríða í felur, er þeir sjá hvernig þeir eru eltir með skarni og’ grjóti, sem þora að segja upphátt að svart sje svart. Sigurður Ein- arsson elti Guðmund Friðjónsson, Aðal- steinn og Gunnar elta sra Benjamín og Hagalín býr til heila skáldsögu um prest, sem var svo' ógætinn, að fara að skrifa grein í Bjarma í leyfisleysi Hagalíns og hafði þar að auki stofnað K. F. U. M. i prestakalli sínu og talað í sjómannastofu, sem allt er Hagalín mjög vanþóknanlegt, eins og lesa má í nýrri sögu hans er nefnist »Einn af postulunum«. Einari gamla á Móeyri er vel lýst í þeirri sögu, en sjera Ludvig Leopold öllu miður. Hlut- drægnin er þar svo áberandi. Sýnilega er eriginn kunnugleiki á sálgæslustarfi hjá höfundinum, og því minni löngun til sann- girni í garð prestsins. — »Sjera Ludvig Leopold varð nú rjett álíka í framan og tólfti kaflinn í Helgakveri«, segir Iiaga- lín á bls. 50 í þessari sögu, og mun fáum þykja sú samlíking skáldleg. Hún væri samboðnari ruddalegri skammagrein en vel skrifaðri sögu. Greinin, sem sravLeo- pold ætlaði Bjarma heitir á máli Haga- líns um »Hina einu rjettu línu í íslenzkri sálusorgun« (!!). Fór vel á því, að þeir Leopold og Hagalín rífa hana í tætlur og’ losuðu Bjarma við ómakið að endursenda það pródúkt«! En þrátt fyrir alla þessa eltingaleiki »rauðliða«, er vafasamt að þeir nái til- gangi sínum. Hitt er eins sennilegt, að þeim fjölgi, sem blöskra þessi skrif og þora að segja það upphátt. Ágætt dæmi þess sá jeg nýlega í 4. hefti Eimreiðarinnar f. á. Þar skrifar Jakob Jóh. Smári adjúnkt ritdóm um- þessa marg’- nefndu bók: »Og’ björgin klofnuðu«, og er þar síst vægari en sra Benjamín. Mun þó enginn óvitlaus maðui' bregða Jak. Smára um þröngsýni í ritdúmum. Því mið- ur er ekki rúm hjer fyrir allan þann rit- dóm, en síðari hluti hans er á þessa leið: »Jóhannes skrifar eð.ilegan og- Ijettan stíl og hefur all-mikla frásagnárgáfu, en hann gerir sjer óþarflega mikið far um að vera ruddaleg- ur í orðbragði og virðist stundum jafnvel neyða sjálfan sig til þess að vera sem allra ósmekk- legastur. Hann vii-ðist álíta jmð kommúnistísku skyldu sína að gera skítinn sem allra skítugasl- an. Það er mikill misskilningur að mínum dómi. En ef það væri svo, að mannlífið og manneðlið væri svo vesælt og ljött, sem Jóhannes (og því miður margir fleiri) vilja vera láta, þá væri hin kommúnistlska paradls ekki þess verö, að eftir lienni væri sóst. l’að má raunar segja, að

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.