Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.08.1940, Blaðsíða 3

Bjarmi - 01.08.1940, Blaðsíða 3
B J A R M I 3 KRISTILEGT HEIMILISBLAÐ Kemur út 1. og 15. hvers mánaðar. Útgefandi: Ungir menn í Reykjavík. Ritstjórn: Ástráður Sigursteindórsson, Bjarni Eyjólfsson, Gunnar Sigurjónsson. Áskriftargjald kr. 5.00 á ári. Gjalddagi 1. júní. Afgreiðsla Þórsgötu 4. — Sími 3504. Pósthólf 651. Félagsprentsmiðjan h.f. 7 staAfS&yhiun. Það líður óðum að hausti. Og með því kemur aðal annatíminn í kristilegu sjálfboðastarfi. Að vísu hefir verið starfað í sumar bæði með almennum samkomuhöltlum i „Betaníu“, Zion, K. F. U. M. og á Hernum. Og K. F. U. M. og K. hafa rekið sumarstarf sitt með góðum árangri. En þrátt fyrir það er það nú svo, að aðal starfs og annatími frjálsa starfsins er á veturna. Og nú í liaust kallar starfið á trú- mennsku og árvekni hinna trúuðu á alveg sérstakan hátt. Þörfin á starfinu hefir að líkindum aldrei verið meiri og dyrnar sjaldan jafn opnar. Hér í Reylcjavík er þvi alls ekki að neita, að styrjaldarástand- ið hefir skapað það los og þá laus- ung í lifi margra æskumanna, að til vandræða horfir. Og vér vitum það, og trúum því, aö ekkert megn- ar að lijálpa æskunni frá freisting- um hennar, og ekkert getur frelsað sálir frá dauða nema hið blessac^a fagnaðarerindi um náð Guðs í Jesú Kristi. Blóð hans eitt megnar að þvo hurt syndir. Þess vegna er sér- stök þörf á að fagnaðarerindið fái að hljóma skýrt og ná til margra á næsta vetri. Og út um landið eru dyrnar sér- staldega opnar um þessar mundir. Það er víða heðið eftir og beðið um að starfsmenn séu sendir til að halda samkomur og biblíulestra. En því miður: „Uppskeran er mik- il, en verkamennimir fáir“. 1 haust og vetur þarf að svara starfsþörfinni á háðum þessum verksviðum svo sem frekast er unnt. En til þess að það megi verða verða trúaðir vinir um land allt að finna til ábyrgðar sinnar, að þeir eiga á allan hátt, sem þeir geta, að vera hluttalcendur i starfinu. Eigi trúaðir menn að geta starf- að svo sem frekast er hægt í vetur þurfa þeir að gæta margs. 1 fyrsta lagi: Samfélag heilagra þarf að vera heilt og heilbrigt. Þar þarf að húa sá kærleikur og sú hlýja, sem aðeins fær fstíðzt í ein- lægum, afturliorfnum hjörtum. Málefni Drottins á að vera þeim allt í öllu. í öðru lagi verða trúaðir menn að lesa Guðs orð reglulega. Þangað verðum vér að sækja þann þrótt og þann vísdóm, sem oss er nauðsyn- Myrkur miðaldanna og minnar aldar. Svo oft er búið að tala um myrk- ur miðaldanna Iiér á landi, og þó einkum í sambandi við kristin- dómsmálin, að jafnvel þeir, sem lítið eða ekkert þekkja sögu mið- aldanna fyllast hryllingi, þegar þeir heyra á það minnzt, og það er sannarlega ekki ástæðulaust að orðið myrkur er tengt við miðald- irnar öðrum tímabilum sögunnar fremur. En var myrkrið meira þá en nú? Ég veit, að mörgum muni finnast það hin mesta fjarstæða að láta sér detta i hug samanburð á svo ólíkum hlutum, en ég get ekki varizt þeirri liugsun, að sá saman- burður sé bæði mögulegur og nauð- svnlegur. Öllum nóttum er myrkr- ið sameiginlegt, og þó geta þær verið liver annarri mjög ólíkar. Miðaldirnar eru eins og stór- veðursnóttin, þegar allt virðist legur, ef vér eigum að geta starfað að því að fagnaðarerindið vinni sálir fyrir Guðsríki hér á landi. 1 þriðja lagi ber öss að nota bæn- ina. Biðjið ón afláts. Fyrir starfinu í vetur. Um fleiri verkamenn. Um eld af himni yfir þessa þjóð. Um að kirkjan megi frelsast frá villu og forheimskun, til trúmennsku við Guðs orð. Og í fjórða lagi þurfum vér að fyllast af þeirri fórnfýsi, sem gleymir sjálfri sér, en hugsar ein- vörðungu um málefni Drottins, frelsun sálna og vöxt i Kristi Jesú, fyrir þá sem trúa. Þá spörum vér hvorki fé, tima né krafta fyrir starfið. Guð hjálpi oss til þess. tilra fyrir æðisgengnum liamför- um niðurhrjótandi afla. Og sá blettur verður ekki af kirkjunni skafinn, að hún gerðist fulltrúi þcss myrkravalds, sem með báli og brandi píndi og kúgaði mennina á svo ótrúlega miskunnarlausan hátt, að maður fyllist liryllingi og viðbjóði, þegar maður les um það. En í gegn um þetta myrkur skín logaskært ljós trúarinnar á Ivrist. Með undrun og aðdáun les maður um Valdensana, sem ekki brugðust Frelsara sínum þó að hlóðhundar eltu þá og þúsundir þeirra væru líflátnar á Iiinn liræðilegasta hátt, eða um einslaklinga eins og Húss, sem á bálinu deyr með lofgjörð i lijarta og á vörum. Engin líkindi eru til að kristin- dómurinn hefði staðizt eldraun miðaldanna ef þessi eldur heilagr- ar alvöru hefði ekki brunnið í hjörtum hinna kristnu, enda var liann fyrirboði nýs dags. Undir lok þessarar dinnnu næt- ur krýpur fölleitur maður með dökk augu á hæn í klausturklefa, og berst við þessa einu spurningu: Hvernig get ég eignazt náðugan Guð? Fyrir þá bæn rann nýr dagur. En allir dagar eiga kvöld. Líka sá dagur mannréttinda og menning- ar, sem hófst með siðbótinni. Og nú er nótt. Til skanuns tíma hafa mennirnir ekki trúað því, og þó að einstaka trúaður maður hafi hafið upp aðvörunarrödd vökumanns- ins, þá hefir heimurinn aðeins ypt öxlum í liálfgerðri meðaumkun með þessum vesalingum, sem ald- rei sjá annað en svart. En ástæðan til þessa er sú að þessi nótt hefir verið þokufull lognmollunótt, sem engan ótta liefir vakið. En það er einmitt logn (þ. e. alvöruleysi) þessarar nætur, sem gerir liana svo sérstaklega hættulega. Nú, eins og i upphafi miðald- anna, hefir kirkjan brugðizt með því að yfirgefa Guðs orð og boða í þess stað allskonar villu, svo sem andatrú, guðspeki og hverskonar heiðni. En svo alvörulaust er starf kirkjunnar að af þeim fjölda manna, sem meta starf hennar lít- ils eða einskis, eru sára fáir sem sjá ástæðu til að amast við starfi hennar. Þeir geta vafalaust sagt eins og Þorsteinn Erlingsson sagði um trúna, „hún er mikið meinlaust skinn, mér er vel við greyið“. Menning og miklar framfarir liafa stigið nútíma-manninum svo til höfuðs, að tilfinningin fyrir þörf á Guði hefir dvínað, og þegar svo hefir verið hvíslað úr öllum áttum: „Friður og engin hætta“ hefir al- vöruleysinu verið ruddur vegur hræðilega langt inn i lif og starf svo margra okkar, sem þó höfuni þegið Guðs óumræðilegu gjöf í Kristi Jesú. Ég veit ekki hvað Iangt er liðið á þessa nótt, en ég er viss um að áður en henni lýkur skellur stór- viðrið á, því að vald myrkursins hrýzt æfinlega út í öllum sínum ægileik, þegar viðnámsþróttur ljóssins hefir verið lamaður. Já, e. t. v, heyrum við þegar gný óveðurs- ins i atburðum þessara daga. En livar eru nú mennirnir, sem fyrir alvörufyllta trú á Kristi ekki láta bugast á erfiðileikum komandi daga, heldur flýta fyrir komu liins nýja dags með baráttu sinni og bæn? Ert þú í tölu þeirra? Frá Bibliunni berst olckur áminning um að vakna og vaka. HEYRUM ÞAÐ KALL OG HLÝÐUM ÞVf. (Opinb. 3, 2—3). Stgr. Ben. Nokkrar hugleiðingar við daglega guðræknisstund. Eftir séra K. Schreiner. 3. dagur. Þá munu menn sjá manns-soninn koma i skýi ineð mætti og mikilli dýrð. (Lúk. 21, 27). Þegar Jesús kom til jarðarinnar fyrsta sinni, lá hula yfir guðdómsdýrð hans, svo holdleg augu sáu aöeins veikan mann. Hvers vegna kom hann þannig? Af því að sérhver maður á að njóta fyllsta frjálsræðis með að velja. Enginn var þvingaður með ytra valdi eða dýrð til að að veita honum viðtöku. Og svo er enn í dag. Meðan náðartíminn er, stendur sérhver maður frammi fyrir vali. Hann getur veitt Jesú viðtöku og hann gerir það, ef hann er sannleikans megin. Hann getur brotizt upp að krossinum þar sem iðrandi og sannleikselskandi hjörtu allra alda hittast. Hann getur frelsazt, ef hann vill. Enginn getur veitt Jesú viðtöku, nema með frjálsu vali. En þegar tími náðarinnar og trúarinnar er liðinn, þá kemur hann með mætti og mikilli dýrð. Og þá verða allir að tigna hann, annað livort með fúsleika kærleik- ans eða þvingun óttans. Á þeim degi mun hann verða dýrðlegur meðal allra, bæði vina sinna og óvina. Vandaspurningin er þá þessi: Hvernig sé ég Jesúm á þeim degi ? Mun ég lyfta höfði með fagnaðarrikri eftir- væntingu eftir honum, sem er vinur minn og frelsari? Eða mun ég örmagnast af skelfingu gagnvart honum, sem er dómari minn? Getur nokkur varpað þeirri spurningu frá sér með léttúð og hugsunarleysi ? 4. dagur. Hann á að vaxa, en ég að minnka. (Jóh. 3, 30). Hvernig var Jóhannes skírari orðinn, eins og þessi orð sýna? Heldur nokkur, að hann hafi verið fæddur með þessu hugarfari, og hafi fengið slika auðmýkt í vöggu- gjöf ? Nei, enginn, jafnvel ekki sá bezti, er þannig að eðli til. Þannig verða menn aðeins í skóla Guðs. Að eðli til erum vér allir að meira eða minna leyti sjálfsdýrkendur. Allt snýst um oss sjálfa. Vér höfum oss sjálf í huga, sjálfrátt eða ósjálfrátt, hvað sem vér tökum oss íyrir hendur. Það lærist aðeins í skóla Guðs, fet fyrir fet, að vinna sigur á sjálfum sér og sjálfselsku sinni. Jóhannes kom úr einveru eyðimerkurinnar. Þar var hann einn með Guði. Heilagleilci Guðs hafði skinið inn í hjarta hans og afhjúpað syndir hans. Þar af leiðandi eignaðist hann það hugarfar, sem átti þá eina ósk að eignast náð Guðs. Dýrð heimsins var aðeins freistni. Leiðin til sjálfsþekkingar og auðmýktar er: Að fara út í einveruna með Guði. Sá, sem óttast að vera einn með Guði, eða er svo yfir- borðslegur, að hann getur blátt áfram ekki veriö í kyrrð, og einveru, af því að truflandi raddir heimsins fylgja honum allstaðar — hann lærir aldrei að þekkja sig og verður aldrei auömjúkur. Hann lifir og deyr í sjálfs- dýrkun, og eignast því ekki hlutdeild í Jesú, sem veitir auðmjúkum náð. Óttast þú ekki sjálfan þig? \

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.