Bjarmi - 14.10.1958, Blaðsíða 1
12. tbl.
Reykjavík, 14. októher 1958
52. árg,
„alheimsborgari^
Sannnr
ÞAÐ getur verið bœði gaman og
einkennilegt að vera ferðalangur
á erlendri grund. Ríkisborgara-
rétturinn, sem vegabréfið sann-
ar, greinir förumanninn frá
börnum allra þeirra þjóða, sem
hann ferðast meðal. Leiðin liggur
land úr landi, sífellt yfir ný landa-
mœri, þar sem þeir, sem eylönd
byggja, eru stundum óþœgilega
minntir á það, að landamœri
geta verið furðu leiður hlutur, og
snögg umskipti í lífskjörum og
háttum geta fylgt þeim. Ávallt er
samt eitthvað nýtt að sjá, sem
vekur áhuga og athygli. Flest er
það fagnaðarríkt og hrífandi og
sumt svo, að áhrifa þess gœtir
œvilangt. Lönd og lýðir, bygging-
ar, minnismerki, athafnalíf — já,
allt, sem fyrir augu ber — talar
sínu töframáli til förumannsins.
Inn á milli brennast inn í hjartað
daprar myndir um neyð og eymd,
sem setja hroll að Islendingi, sem
óvanur er að sjá svo augljósa
neyð á almanna fœri. Nýjar dá-
semdir hrífa hugann — og sagan
endurtekur sig, hvar sem komið
er. Alltaf eitthvað nýtt — sífelld
breyting með eitthvað, sem gam-
an er að kynnast.
EITT fylgir þó yfir öll landamœri og
er hið sama, hvar sem komið er.
Það er vitundin um það að vera
útlendingur. Allt er framandi.
Löndin hafa annan svip; þjóðirn-
ar sumar eru allt öðruvísi á svip
en fólkið heima — og í lofti suðar
Eftirtaldar gjafir hafa borizt til
kristniboðsins í september: Viðbót
við minningargjafir um Sigursteindór
Eiríksson kr. 100,00; A.E. kr. 1120,00;
N.N. kr. 50,00; J.Ó. kr. 200,00; Krist-
ján (Hf.) afh. M.R. kr. 100,00; Þ.S. kr.
100,00; Þ.A. kr. 100,00; Á.Á. kr. 1000,00;
S.J. (áheit) kr. 200,00; K. kr. 100,00;
Ónefnd Hf. kr. 1100,00; Þ.J. Kleifast.
(áheit) kr. 500,00; N.N. kr. 90,00; K.
kr. 200,00; Or ,,svininu“ kr. 212,03;
Filippia Sigurjónsdóttir, Böggvisstöð-
um, hinzta gjöf kr. 1000,00; S.S. s.st.
kr. 500,00; G.K. Uppsölum kr. 75.00;
M.K. kr. 500,00; Þ.P. kr. 100,00; N.N.
afh. af Kristmundi Guðmundss. kr.
500,00; D.J. kr. 500,00; Sjöstjarnan,
Akranesi kr. 292,07; Kona á Akranesi
(áheit) kr. 500,00; Þ.M. kr. 200,00; hjón
kr. 500,00.
LEIÐRÉTTING
Sú prentvilla var í gjafalista fyrir
nokkru, að þar stóð: Jensa kr. 50,00
en átti að vera kr. 500,00. Er viðkom-
andi beðin velvirðingar á þessu.
sífellt ómur annarlegrar tungu,
sem hefur allt annan hreim en
,,ástkœra, ylhýra málið". — Allt
minnir ferðalanginn á þessa
meginstaðreynd: „Þú ert á fram-
andi grund, borgari annars rík-
is".
ÞEIM mun stórfurðulegra og fagn-
aðarríkara er það, að ferðast um
löndin í þeirri vitund, að tilheyra
Jesú Kristi, vera kristinn maður.
Lœrisveinn Krists verður áþreif-
anlega var við þennan leyndar-
dóm, og þessa bláköldu stað-
reynd í samtíð vorri, að ríki Jesú
Krists er raunveruleiki. Það breið-
ist um öll lönd og þekkir ekkert
til landamœra, þjóðernis, tungu
eða stjórnskipulags einstakra
ríkja.
KIRKJUKLUKKURNAR kveða við á
sunnudagsmorgni frá meðalstórri
sóknarkirkju í Kaupmannahöfn.
Þegar inn í kirkjuna kemur, er
hún nœr fullsetin, og sálmasöng-
urinn er byrjaður. Islendingurinn
lœtur augun reika um kirkjuna.
Sérhvert andlit er honum alger-
lega ókunnugt. Einu veitir hann
athygli. Hver maður virðist taka
þátt í safnaðarsöngnum. Prest-
urinn er fyrir altari, og þótt guðs-
þjónustusnið sé nokkuð annað en
á Islandi, er ein tilfinning öllu
sterkari. Hér er Kristur, hinn sanni
frelsari og endurlausnari mann-
anna, Guðs eingetinn son, tilbeð-
inn og boðaður. Hér er í sann-
leika söfnuður Guðs og hlið him-
ins. Já, hér er Kristur sjálfur, í
orði sínu og sakramentum, skírn
og kvöldmáltíð, sem hvort
tveggja fer fram í guðsþjónust-
unni. Og lœrisveinninn finnur:
„Hér er gott að vera. Hér er ég
heima. Hér mœti ég frelsara
mínum". Og þegar mikill hluti
kirkjugesta fer til altaris, er hann
algerlega einn af þeim, því að
hér er söfnuður Krists.
SAMA sagan endurtekur sig í
Þýzkalandi, þar sem klukkurnar
kalla til Guðs húss kl. 5,15 á mið-
vikudegi. Umferðin er gífurleg á
borgarstrœtum og kliðurinn mik-
ill. Einn og einn gengur út úr iðu-
lausum straumi manna og inn í
kirkjuna. Það eru lœrisveinar
Krists, sem leita nœðis í húsi
hans. Sálmur Lúthers „Vér allir
trúum á einn Guð", ómar um há-
ar hvelfingar voldugrar kirkju-
byggingarinnar. Einnig hér er
lœrisveinninn þegar heima —
hér, þar sem trúin er játuð svo
afdráttarlaust. Og þegar prestur-
inn les kafla úr Ritningunni er
það enn hið sama. Orðið frá
Drottni, sem berst til safnaðar
hans, sem takmarkast ekki af
þjóðerni né tungu. — Og athöfn-
inni lauk með þeim blessunar
orðum, sem Guð sjálfur bauð, að
lýst skyldi vera yfir söfnuði hans.
ÞAÐ var sunnudagsmorgun inni í
Sankti Péturskirkjunni í Róm,
þessari einstœðu furðusmíð að
stœrð, listfengi og fegurð. Messað
var á um það bil 10 stöðum sam-
tímis í kirkjunni og truflaði eng-
inn annan, þótt ekkert skilrúm
vœri á milli. Við stóðum, tveir Is-
lendingar, í hópi þeirra, sem
hlýddu messu inn við háaltarið.
Aldrei hafði ég verið í guðshúsi
þar sem jafnmargt var mér gjör-
samlega framandi eins og á þess-
um stað. Og þó — einnig þar var
Kristur tilbeðinn, sáttargjörð hans
boðuð. Þar mátti finna, að hjörð
hólpinna í Kristi er ein og órofin
í öllum löndum og kirkjudeildum.
Kristur var þar með sínum, þar
var nafn hans blessað og tilbeðið.
Auðvitað er ótalmargt í siðum
og trúarvenjum rómverskrar
kristni, ekki sízt í Suðurlöndum,
sem er ótrúlegt og nœr ofboðs-
Kristniboðið i Konsó hefur eign-
azt niarga vini, og þeim fjölgar
stöðugt. Þess verður oft vart, að
ýmsir hafi mikinn áliuga á landi
og þjóð þar syðra og öllu, sem
áhrærir lífshælli og siðu Konsó-
þjóðflokksins. Mörgum hefur
fundizt, að ol' lítið hafi verið sagt
frá slíku. Kemur það alloft fram
í samtölum og bréfum. Kristni-
boðsvinirnir taka með fögnuði
hverri frétt og fræðslu um starf
íslenzku kristniboðanná þar og um
Konsómenn.
Ofl hafa heyrzt raddir um það,
að mjög sé vant fræðslurits um
Konsó og kristniboðið. Það er
vissulega rétt. Kristnibo'ðunum,
sem þar hafa starfað, hefur líka
verið þetta ljóst og liaft löngun
lil að bæta úr því. Meðan Felix
Ólafsson starfaði í Konsó, hóf
hann því að rita bók um þetta
efni og lauk henni snennna á þessu
sumri. Gaf hann Kristniboðssam-
bandinu handritið, og samþykkti
sambandsstjórnin að leggja kapp
á að gefa bókina út nú fvrir jól,
legtíaugum evangeliskra manna.
En það er íásinna að œtla, að
Krist sé alls ekki að finna í
rómverskri kirkju. Það er öðru
ncer. „Ó, þú Guðs lamb, sem ber
burt heimsins syndir, miskunna
þú oss. Gef oss þinn frið" ómaði
frá Palestrinakórnum. Það flutti
mér nákvœmlega sama boðskap,
talaði á sama hátt til mín og er
ég heyrði það sungið við aliaris-
göngu í Kaupmannahöfn — og
við guðsþjónustu heima í Reykja-
vík. Eg fann þessa sœlu stað-
reynd: Kristinn maður er aldrei
útlendingur í ríki Krists, hvar sem
er hér á jörð. Það er dýrðleg
staðreynd nú þegar, sem vér
munum skynja enn betur, er vér
erum komnir hólpnir heim í hinn
mikla hvítklœdda skara „af alls
kyns fólki og kynkvíslum og lýð-
um og tungum. Þeir stóðu frammi
fyrir hásœtinu og lambinu." —
Hér á jörð erum vér aðgreindir á
ýmsan hátt í hinu ytra jafnvel
svo, að sumar kirkjudeildir meina
meðlimum annarra hlutdeild í
kvöldmáltíð, og það mótmœlenda
kirkjur innbyrðis. Það haggar
ekki þeirri staðreynd, að þeir,
sem Kristur sjálfur hefir að sér
tekið, sœtt við föðurinn og hólpna
gjört — þeir eru eitt, því þeir eru
í Kristi. Og það er hans verk.
Bj. Eyj.
ef þess væri nokkur kostur, og
gjöra hana svo vel úr garði seni
tök væru á. Stjórnarmeðlinium
var það fullljóst, að ráðizt var í
mikið. Það þarf mikið fé til þess
að gefa út bók, sem er um 200
síður að stærð og skreytt fjölda
mynda. Hins vegar er þess að
geta, að Felix Ólafsson, kristni-
boði, segir svo skemmtilega frá
í rituðu máli, að margir munu
kaupa bók bans. Þar að auki er
það eitt af verkefnum kristniboðs-
sainbandsins, að kynna kristni-
boðið á allan hátt og þá einnig
með útgáfu bóka og rita, sem auka
þekkingu, skilning og áhuga á
kristniboðinu.
Greinarkorn þetta er ritað lil
þess að kristniboðsvinir úti um
land viti, að von er á þessari hók,
sem verður tilvalin jólagjöf
margra í ár. Bókin er fræðandi
um lönd og þjóðir í Eþíópíu, og
er á mjög skemmtilegan liátt sagt
frá ýmsu, sem fyrir augu og
eyru höfundar ber. Verð bókar-
innar verður auglýst síðar.
Skemmtileg bók um Konsó og Eþíópíu.