Bjarmi - 01.01.1974, Síða 11
verið fastur liður i starfinu. Mörkuðu
þær vissulega tímamót í starfi félags-
ins. Var gerð bókun um þessi ný-
mæli í gjörðabók stjórnarinnar, en
þar segir m.a.: „Samkomur þessar
voru svo vel sóttar, mestmegnis af
ungu fólki, að fullt hús var hvert
kvöld. Að þeirri viku liðinni var svo
ákveðið að halda samkomunum áfram
næstu viku og var þeim breytt í
vakningarsamkomur. Þær voru einnig
mjög vel sóttar og hafa samkomur
þessar vakið nýtt líf í félögunum, ekki
sízt meðal yngri meðlima."
í byrjun næsta árs var alvarlega
rædd nauðsyn meira húsnæðis, og
ákveðin stækkun hússins við Amt-
mannsstig. Kom það í hlut Knud
Zimsen og Guðmundar Ásbjörnsson-
ar að vinna að því máli. Meðan á
byggingu stóð voru fundir Y.D. haldn-
ir í dómkirkjunni. Stækkun hússins
var lokið í marz 1937.
Segja má, að nýtt blómaskeið
hafi runnið upp á þessum árum, og
margir nýir liðsmenn komið fram,
þótt nöfn verði ekki nefnd í þvi sam-
bandi.
Um þetta leyti tóku ungir félags-
menn við ritstjórn Bjarma, undir for-
ystu Bjarna Eyjólfssonar, sem siðar
varð formaður K.F.U.M., en um langt
árabil sívakandi leiðbeinandi í félag-
inu. Starfssvið hans var raunar miklu
viðtækara, m.a. sem formanns Kristni-
boðssambandsins og leiðtoga almennu
kristilegu mótanna, biblíunámskeiða
o.fl. Bjarmi tók á vissan hátt við
hlutverki mánaðarblaðs K.F.U,M., sem
hafði komið út um allmörg ár.
Árið 1939 arfleiddi Guðmundur
Bjarnason klæðskerameistari, K.F.U.M.
að eign sinni, Aðalstræti 6. Sú ráð-
stöfun hans hefur verið félaginu mikil
lyftistöng fjárhagslega og gert því
kleift að færa út kvíarnar á ýmsan
hátt.
Stríðsárin sex var séra Friðrik í
Danmörku, eins og kunnugt er. Hvildi
Alþjóðamerki K.F.U.M. Jóh. 17,21 eru
einkunnarorö félagsins. XP táknar
nafn Krists. 1 hringnum eru nöfn
heimsálfanna fimm.
þá hiti og þungi starfsins á herðum
sr. Magnúsar Runólfssonar, sem þá
varð aðalframkvæmdastjóri félagsins
og raunar hálfan þriðja áratug. Minn-
ast margir með þakklæti þeirra ára,
er þeir nutu leiðsagnar hans og for-
ystu. Um skeið var Ástráður Sigur-
steindórsson einnig ráðinn fram-
kvæmdastjóri þess og hafði það einn
með höndum, meðan séra Magnús
var prestur á Akranesi 1945.
Vöxtur borgarinnar var mikill á
þessum árum og nauðsyn að sinna
nýjum hverfum. Fyrsta deildin, sem
stofnuð var í nýju hverfi, var Laug-
arnesdeildin, sem hóf starf i litla hús-
inu, er síðar var nefnt Drengjaborg,
á jarðræktarsvæði félagsins í Laugar-
dal, og síðar var flutt að Kirkjuteigi
33, og enn seinna í Langagerði 1.
Árið 1947 varð stórbruni hér við
Amtmannsstíg, sem hafði það í för
með sér, að hús félagsins hér skemmd-
ist verulega. En á ótrúlega skömm-
um tíma tókst að gera við það fyrir
ötula framgöngu Guðmundar Ás-
björnssonar og Knud Zimsen, sem
sáu einkum um það verk. Sumarið
eftir setti heimsókn rúmlega 60
danskra og sænskra drengja frá
K.F.U.M. í Bromma og F.D.F. í Kaup-
mannahöfn nokkurn svip á félags-
lífið.
Um vorið þetta sama ár var eign
félagsins við Aðalstræti 6 seld hluta-
félaginu Árvakri, en hún var stofnfé
minningarsjóðs um þá tvo mætu menn,
Guðmund heitinn Bjarnason klæð-
skerameistara og séra Friðrik.
Meðal viðburða næstu árin má
nefna utanferð 30 skógarmanna til
Danmerkur og Sviþjóðar til þess að
endurgjalda heimsókn þá, er fyrr er
nefnd. Þá fékk félagið einnig fullan
umráðarétt yfir Vatnaskógi og hafin
var gróðursetning nýgræðings þar. En
nú verður að fara fljótt yfir sögu. I
skýrslum frá þessum árum má sjá,
að samkomu- og fundarsókn hefur
verið með ágætum og hefur raunar
aldrei verið lát á því reglubundna
AFMÆLISSAMKDMA K.F.U.M.
veittir, og haföi Árni þá meöferöis og sýndi samkomu-
gestum, er hann sagöi frá þessum atburöi.
Hilmar Baldursson flutti árnaöaróskir frá unglingadeild
félagsins, og Gísli Sigurðsson mœlti nokkur orö fyrir hönd
yngstu deildanna. Þá bar Jóel Fr. Ingvarsson fram kveöju
bróöurfélagsins í Hafnarfirði og þakkaöi stuöning K.F.U.M.-
manna í Reylcjavík viö félagiö í Hafnarfiröi. Þaö var sr.
Þorsteinn Briem, sem stofnaöi K.F.U.M. í Hafnarfiröi áriö
1911 meö 16 ferminginardrengjum, en mjög snemma tók
sr. Friörik og ýmsir vinir hans í Reykjavík aö leggja fé-
laginu liö, enda fluttist sr. Þorsteinn frá HafnarfirÖi.
AÖ endingu flutti Ástráöur Sigursteindórsson hugleiö-
ingu og las í upphafi oi'ö úr 17. kap. Jóhannesarguöspjalls,
þar sem einkunnarorö K.F.U.M. er aö finna: „Allir eiga
þeir aö vera eitt“ (Jóh. 17, 20—23). Minntist Ástráöur á
upphafsmann K.F.U.M., George Williams, og vini hans, en
þeir mynduöu meö sér félag í Lundúnum áriö 181/1/. Þetta
var fyrsta eiginlega K.F.U.M.-félagiö og starfaöi fyrst ein-
göngu meöal verzlunarmanna. Var þarna á feröinni lif-
andi vakningahreyfing meöal œskumanna. Félagar K.F.
U.M. vilja vinna í einingu í trú á tign Jesú, sagöi Ást-
ráöur, þeir sameinast i reynslu af náö hans og vinna í
einingu aö því aö vegsama hann meö því aö bera lionum
vitni og þjóna honum.
Kröftugur, álmennur söngur einkennir jafnan samkom-
ur K.F.U.M. og K., og svo var einnig nú, eins og vcenta
mátti. Blandaöur kór K.F.U.M. og K. söng undir stjórn
Árna Sigurjónssonar. Einnig söng æskulýöskór félaganna
undir stjórn SigurÖar Pálssonar. Frú Áslaug Ágústsdóttir
lék undir almennan söng og söng blandaöa kórsins, en
Sigríöur Magnúsdóttir annaöist undirleik, er œskulýös-
kórinn söng. Blandaöi kórinn söng meöal annars lag sr.
Friöriks FriÖrikssonar: „Þér hliÖ“ (Sálm. 21/,7—10), í radd-
setningu Jóns Þórarinssonar, og vakti flutningur verks-
ins sérstaka hrifningu.
K.F.U.M. bárust margar kveöjur í tilefni afmœlisins,
svo og blómagjafir. K.FXJ.M. í HafnarfirÖi gaf fagra
kertastjaka, og nokkrir aöilar gáfu peningagjafir. For-
maöur greindi frá þvi. aö ákveöiö heföi veriö aö láta- gera
veggskildi (platta) í tilefni af 75 ára afmælum K.F.U.M.
og K.F.U.K á þessu ári (K.F.U.K. veröur 75 ára í apríl).
Á skildinum miöjum veröa grísku bókstafirnir XP (fyrstu
tveir stafirnir í XPI1.TOS, þ.e. Kristur), en í kringum þá
veröur letraö: „K.F.U.M. — K.F.U.K. — 1899 — 1971/“.
Gafst samkomugestum tækifæri til aö panta sér slíka
veggskildi. Veröur verö þeirra kr. 1500 eintakiö.
Stjórn K.F.U.M. skipa nú: GuÖiaugur Þorláksson, skrif-
stofustjóri, formaöur; Árni Sigurjónsson, bankafulltrúi,
varaformaöur; Þóröur Möller, yfirlæknir, ritari; Þorkell
G. Sigurbjörnsson, verzlunarmaöur, gjaldkeri; meöstjórn-
endur eru: Ástráöur Sigursteindórsson, skólastjóri; Frið-
björn Agnarsson, endurskoöandi, og Narfi Hjörleifsson,
tœknifræöingur.
Afmælissamkoma K.F.U.M. var hátíöleg og ánægjuleg.
11