Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.1998, Page 7

Heima er bezt - 01.11.1998, Page 7
Fjölskylda Guömundar Magnússonar að Vesturhúsum, en Benjamín var sína fyrstu vetrarvertíð hjá honum, þá ungur á árum. Til sjós Veturinn sem ég varð 15 ára, réðst ég suður í Hafnir til Guðmundar Magnússonar eða bræðranna í Vesturhúsum, eins og þeir bræður voru oftast nefndir. þarna var gott að vera hjá miklu sómafólki. Að þessum vertíðum loknum fór maður að fara á síld á sumrin. Ég fór á bát sem hét Gloría frá Hólmavík. Síðan eignaðist Jón Gíslason í Hafnarfirði þennan bát og fékk hann þá nafnið Fiskaklettur. Þetta var danskur bátur, skip- stjóri var Palli Frans, eins og hann var alltaf nefndur. Þarna var ég sex sumur á síld og sex vetrarvertíðir með honum. Hann fiskaði alltaf í góðu meðallagi. A veturna vorum við á útilegu, það er að við vorum í viku úti, fisk- uðum í ís og síðan var farið til Hafnaríjarðar og landað þar. Vetrarvertíð byrjaði strax upp úr áramótum. Síðasta vertíðin mín þarna, var nokkuð sérstæð. Breta- vinnan var í algleymi og því var af sú tíð að vanir og samhentir menn biðu eftir plássi sínu um áramót. Nú var skrapaður saman sá lýður sem til náðist. Hér kom það fyrir að sumir af þeim 70 mönnum, sem munstraðir (skráðir), höfðu verið á bátinn þetta árið, komu aldrei upp á dekk allan túrinn, lágu bara í koju og hlupu í land um leið og þangað var komið. Við fórum venjulega í 6-7 lagnir í hverri ferð. Það var margt og misjafnt sem maður sá á stríðsárun- um. Þar sá ég m.a. mann skotinn til bana. Það var á dans- leik niður við höfn í Hafnarfirði. Þar urðu erjur milli Breta og íslendings út af einhverri stúlkukind. Sá breski dró upp byssu sína og skaut þann íslenska, er lést sam- stundis. Það var oft gaman á síldinni á sumrin. Við sigldum vitt og breytt um allan sjó milli Langaness í austri og Hornbjargs í vestri, það var ekkert gefið eftir. Það var allt straujað eftir því sem fréttir bárust um afla. Væri einhver tími á milli túra fór ég bara heim og reri mínum bát þar til aftur var snúið að síldinni. Ég var samtals 8 vertíðir á bátum Haraldar Böðvarssonar á Akranesi. Aðallega var ég á hefðbundnum línu- bátum síns tíma. Utgerð Haraldar var alltaf til sóma og hjá honum voru alltaf afbragðs skipstjórar, svo sem Þórður á Ægi og Ragnar Friðriks á Agli Skallagríms- syni. Ég var samtals 36 vertíðir syðra. Ég var í Höfnum, Grindavík, Hafnarfirði, Akranesi, Reykjavík og Keflavíkr— Nokkuð var ég á togurum en það var lítið. Ég var á Belgum með Aðal- steini Pálssyni og á Skallagrími með Guðmundi, sem alltaf var kallaður Guðmundur á Skalla. Hann var mikill aflamaður. Svo var ég á Belgum eftir að hann var keyptur til Skagastrandar, en þangað var ég þá fluttur. Skipstjóri þar hét Lúðvík, eldri maður er var áður með Skutul frá ísafirði. Fyrsti báturinn Ég eignaðist snemma eigin bát, ég hef líklega verið 17 ára er ég kaupi fyrsta bátinn. Sá bátur var smíðaður af Gísla Jóhannssyni á Bíldudal. Þetta var mikill gæðabátur. Ég gaf honum nafnið Farsæll. hann var í upphafi talinn 2 1/2 tonn, en hann bar meira. Það var byggt yfir skut og barka, svo var hann með handrið að framan. í honum var 8 hestafla bensínvél er hét Albin og var hún með svo- nefndri Magnet-kveikju. Fyrstu tvö árin var ég á honum óbreyttum en þá fékk ég smið fyrir norðan, mikinn hagleiks mann, Jörund Gestsson bónda á Hellu við Steingrímsfjörð, til að borðrenna hann fyrir mig. Sett var breitt borð ofan á efsta borðið og þar á skvettlisti en engu öðru var breytt í lagi bátsins. Með þess- ari breytingu hækkaði hann mikið í sjó. Já, já, og eftir það bar hann mikið meira, hann fór létt með fjögur tonn. Síðan keypti ég 16 h.a. tveggja strokka Albinvél hjá Gunnari Friðrikssyni í Vélasölunni, og eftir það gekk hann vel. Frá Eyjum reri ég nokkur vor, sumur og haust en var á vertíðum syðra að vetrinum. Ég var aldrei einn á báti en hafði oftast tvo menn með mér, enda veitti ekki af slíku þar sem ég reri alltaf með línu. Heima er bezt 403

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.