Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.1998, Blaðsíða 15

Heima er bezt - 01.11.1998, Blaðsíða 15
Islenskur maður í Sófus Berthelsen: vinnu- Danmörku Ég sendi tímaritinu „Heima er bezt“ endurminningar frá ferðalagi mínu árið 1937 til Bornholms. Það var nokkuð ævintýralegt ferðalag, þar sem ég lenti íýmsu, peningalít- ill og illa talandi á danska tungu. Ymsir, sem lesið hafa frásögnina og hrifist af henni, hafa haft á því orð að það vantaði framhald um veru mína á Bornholm, en eyjan heitir víst á íslensku Borgundarhólmur og mun ég halda mig við það heiti og leitast við að segja frá ýmsum þáttum af dvöl minni þar. Sveitabýlið sem ég dvaldi á, heitir eða hét, Klintgaard 2. Reyndar voru býlin sjö að tölu með þessu sama nafni. Fyrr á tím- um voru nokkrir svokallaðir herra- garðar á Borgundarhólmi, sem aðals- menn áttu, en mér var sagt af hús- bónda mínum, að ríkið hafi endur fyrir löngu tekið herragarðana eign- arnámi og skipt milli bænda. Klin- tgaard skiptist þá í sjö jarðir, sem voru númeraðar niður. Sá sem bjó á Klintgaard 1, var greifi og bar ættar- nafnið Kofood. Mér fannst ættar- nöfnin í Danmörku mörg ansi skrýt- in, til dæmis þetta með Kofood. I ís- lenskri þýðingu mundi ég kalla hann Kýrfót. Annað ættarnafn, sem ég sá á prenti, var Svinehoved, sem mér fannst mjög fyndið og ég íslenska sem Svínshaus og fer ég ekki frekar út í dönsk ættarnöfn. Bæjarnafnið Klintgaard íslenska ég sem Stein- gerði, því Klint er steintegund, sem finnst víða þar um slóðir. Heimilisfólkið í Steingerði 2, þar sem ég dvaldi frá því snemma á vori Fyrri hluti og langt fram á haust, var mér afar gott, rétt eins og ég væri einn af Ijöl- skyldunni. Reyndar kom það fyrir á stundum, að ég var ávítaður eða yfir ntér lesið, ef ég gerði einhverja skyssuna eða vitleysuna, því ég var ókunnur allri vinnutilhögun, reglum, umgengnisvenjum eða siðum í dönsku þjóðlífi. En ávíturnar eða að- finnslurnar voru aldrei í reiðitón. Ég var látinn neyta matar míns inni í borðstofu með heimilisfólkinu, en það var venja að þjónustufólk borð- aði í eldhúsi. Fjölskyldan samanstóð aðeins af þremur persónum, hús- bóndanum Vilhelm Falk og konu hans frú Falk, sem ég fékk að vita að hefði heitið fröken Riis, áður en hún giftist, og svo móðir frúarinnar, sem hét frú Fiis. Ekki man ég fornafn þeirra mæðgna eða fékk aldrei að vita. En býlið Steingerði var ættaróð- al þeirra kvenna og því velti ég því oft fyrir mér hvort Vilhelm hafi frek- ar gifst jörðinni en fröken Riis, því þau voru mjög spaugileg á að líta ef þau stóðu samsíða. Frúin mjög stór og fyrirferðarmikil, hann lítill og afar grannur. Þau áttu engin börn. Bróðir frúarinnar, Hans Riis að nafni, kom í 3 eða 4 vikur og hjálp- aði til með sáðninguna í akrana og fleira, og ungt par, vinafólk frúarinn- ar, dvaldi í 1 eða 2 vikur og hjálpaði til með uppskeruna á fóðurrófum. Strax fyrsta morguninn var ég vak- inn kl. 6, en eftir það þurfti þess ekki, því ég kom með vekjaraklukku að heiman. Morguninn byrjaði á því að borð- aður var árbítur, sem var alltaf full skál af nokkuð þykkum bygggraut og mjólkurglas með. Og þá á ég við að mjólkin var ekki höfð út á graut- inn, heldur var sopið á glasinu öðru hvoru. Þannig var það hvern einasta morgun, meðan ég dvaldi þarna. Mikið ósköp var ég orðinn leiður á grautnum, þegar frá leið, en ég lét mig hafa það að spæna honum í mig, því ég fékk hvorki vott né þurrt fyrr en í hádeginu, en þá var alltaf mikill og góður matur. Tók ég þá vel til matar míns, því ég var venjulega orðinn býsna svangur um það leyti dagsins. Þegar ég hafði borðað grautinn með heimilisfólkinu, þennan fyrsta morgunn, fórum við öll fjögur út í Qós að mjólka, en það var verk sem ég hafði aldrei gert áður og var ég lengi að komast upp á lag með það. Kýrnar voru 18 og mjólkaðar þrisvar á sólarhring, kl. 6 að morgni, 12, og Heima er bezt 411

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.