Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.1998, Síða 17

Heima er bezt - 01.11.1998, Síða 17
að hann var að teygja til mín snopp- una, þá reiddi ég upp hendina eins og ég ætlaði að berja hann. Reisti hann þá upp makkann, hristi höfuðið og leit í aðra átt. Hann var sko ekki að gera neitt. Þegar ég hafði mokað undan hross- unum átti ég að kemba þeim og bursta, enda gljáðu þau svo að það var næstum hægt að spegla sig í feldi þeirra. Dönsku púlshestarnir eru miklu stærri og fyrirferðarmeiri en þeir ís- lensku og ég var lengi vel hræddur um að þeir mundu stíga ofan á mig með sínum afar stóru hófum. Þegar ég svo hafði kembt og burstað hestana fór ég með einn og einn þeirra í senn til brynningar í tré- stokk fyrir utan, sem ég hafði áður dælt vatni í með stórri handdælu. Þar með var lokið þeim íbstu störfum sem ég átti að ljúka hvern dag, meðan ég dvaldi á bænum. Á sunnudögum átti ég frí milli mjalta, en virka daga vann ég eitt og annað er til féll, eftir að hafa lokið íostu störfunum. Til dæmis var ég lát- inn höggva í eldinn fyrstu vikuna. Það voru tilsagaðir trjákubbar, sem ég var látinn kljúfa og raða upp í háa hrauka, líkt og móhraukana áður fyrr, hér heima. Þessa fyrstu daga var heiðskýr himinn, logn og sólskin, en svo dró einn daginn fyrir sólu og gerði svo miklar og hávaðasamar þrumur að það var eins og himinninn væri að hrynja. Ég hafði oft gert gys að fólki heima, sem var hrætt við þrumur og eldingar, en þarna stóð mér hreint ekki á sama og síðan gerði úrhellis rigningu svo það var eins og hellt væri úr stórum bala í himinhvolfinu. Leist mér varla meir en svo á þennann hávaða og læti. En daginn eftir sagði Vilhelm það í fréttum að eldingu hefði slegið niður í stóran kúahóp og drepið þær flestar. Síðasta daginn í þessari fyrstu viku minni, kom frúin með 4 eða 5 hænur og bað mig að höggva af þeim haus- inn. Þær áttu að vera í sunnudagsmat- inn. Ég hafði áður, heima á íslandi, séð mann höggva hænsni og hann sleppti þeim um leið og hausinn fauk af, til að sjá hver gæti flogið lengst hauslaus. Nú hugðist ég skemmta mér á sama hátt. Hausinn datt niður af þeirri fyrstu og ég sleppti hænunni á sama andartaki. Jú, jú, hún flaug hátt hauslaus og ansi langt. En um leið komu þau æðandi úr þremur áttum, gamla konan úr eldhúsinu, frúin frá hænsnastíunni og Vilhelm ffá svína- húsinu. Öll fómuðu þau höndum og veifuðu, rétt eins og þau ætluðu að fljúga á eftir hænunni og görguðu eitt- hvað til mín, sem ég skyldi ekki. Nema gamla konan rausaði eitthvað um Eskimóahátt. Vilhelm tók af mér öxina og hjó sjálfur hænumar sem eftir voru. Hann hélt þeim föstum meðan þær brutust um í dauðateygj- unum um leið og hann talaði til mín á sinni illskiljanlegu íslensku. Ég man nú ekki lengur hvað það var en ég stóð hjá, gjóandi til hans augum og eflaust skömmustulegur. Síðan fékk hann mér öxina, svo ég gæti haldið áfram að höggva í eldinn fram að mjaltatíma. Þar með var lokið minni fyrstu viku á bænum Klintgaard 2 (eða Stein- gerði). Þann tíma, sem ég dvaldi á Borg- unadarhólmi, haföi ég afar lítil af- skipti af öðru fólki en heimilisfólkinu á Steingerði 2, þó stutt væri á milli húsanna á jörðunum. Ég hef áður sagt ffá húsinu þar sem skuggalegi maðurinn bjó, en þar sneru bæði gripahúsin og íbúðarhúsið bakhliðinni að okkar bæ, svo það sást ekkert hvað þar fór fram, eða til íbúanna. Hinu megin við okkur var íbúðar- og gripa- hús Greifans, en há trjáþyrping á milli, svo það sást ekkert af hans fólki, nema stúlka á svipuðu reki og ég. Hún gekk stundum yfir hlaðið hjá okkur í erindum á næstu bæi, hélt ég. Hún var þjónustustúlka á heimili Greifans. Þegar hún gekk yfir hlaðið hjá okkur í góðviðri, var hún oft létt- klædd, með bera handleggi og fót- leggi og afar útitekin og brún, vel vaxin og fríð í andliti. Ég gat ekki að því gert, eða réði ekki við það, þegar hún gekk hjá, þá stöðvaði ég jafnan vinnu mína og starði á hana. Þá brosti hún til mín og ósjálffátt brosti ég á móti, hvað annað? Ég var ungur þá, en aldrei fór okkur eitt aukatekið orð á milli. Hún bara gekk brosandi gegnum hlaðið hjá okkur og búið mál. Nei ekki alveg rendar. Eitt sinn er stúlkan gekk um hlaðið, reif frúin upp borðstofugluggann og kallaði: „Sof- us!“ og kinkaði kolli í átt til stúlkunn- ar. Síðan glotti hún sínu breiðasta, en hún þurfti ekki að aðvara mig. Ég var búinn að koma auga á stúlkuna, áður en frúin kallaði. En ffúin hafði víst mjög gaman af okkur. Svo var það seinna um sumarið, að foreldrar Vilhelms komu í heimsókn og með þeim dóttir þeirra, sem ég gat ekki áttað mig á hve gömul væri. Hún gat hafa verið allt ffá táningsaldri til tuttugu og fimm ára. Hún var mjög grönn, næstum jafn grönn ffá toppi til táar, flatbijósta og mittislaus, með spóafætur og stór gleraugu. Mér virtist allt heimilisfólkið vera að ýta okkur saman, en ég hafði ekki nokkum áhuga, enda átti ég vinkonu heima á Islandi, sem ég átti eftir að glíma við. Stúlkan hjá Greifanum var nú reyndar ekki sú eina sem birtist á hlaðinu hjá okkur. Eitt kvöldið sat ég upp við hesthúsvegginn að fá mér reyk áður en ég færi í háttinn. Þá haltraði til mín mjög gamall maður og tók mig tali. Ég átti mjög gott með að skilja hann, því hann talaði ekki Kaupmannahafnarmál, heldur var með nokkurs konar sænskan fram- burð og talaði mjög hægt. Hann var frá heimili Greifans, hafði unnið þar stóran hluta ævinnar og var nú kom- inn á nokkurs konar ellilaun, sem var reyndar bara fæði og umhirða. Efltir að við höfðum rætt saman smástund spurði hann: „Ertu frá Jótlandi?“ „Nei, ég er Islendingur sagði ég.“ Þá hló hann hátt og lengi, mér til mikillar undrunar. Þegar hann hætt' að hlæja, spurði ég hann hvað væri svona hlægilegt. Þá sagði hann „Ég hélt að það væru bara hestar á ís- landi,“ og svo hló hann aftur. Málið var að ég sagðist ekki vera ffá Islandi Heima er bezt 413

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.