Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.1998, Blaðsíða 18

Heima er bezt - 01.11.1998, Blaðsíða 18
heldur sagðist égt vera íslendingur. Fátækir bændur þama um slóðir keyptu íslenska hesta til að draga plóga og kerrur, því þeir voru mun ódýrari heldur en þessir dönsku, stóru púlshestar. Þetta var árið 1937, en nú 1998 kosta íslenskir hestar tugi milljóna. Gamli maðurinn hélt að á Islandi væru bara hestar, því voru þeir kallaðir íslendingar í Danmörku og eftirleiðis passaði ég mig á að segjast vera frá íslandi, en ekki ís- lendingur. Reyndar var ég undrandi yfir hvað Danir vissu lítið um Island. Eitt sinn fór ég til rakara í næsta þorpi sem Löbek heitir. Ég þurfti að láta klippa mig, því ég var kominn með óþægi- lega mikinn hárlubba. Ég var þá far- inn að skilja dönskuna sæmilega og gat látið skilja mig. Hér heima á ís- landi var það siður hjá mörgum rök- urum að tala mikið við vinnuna og þannig var það líka með þennan rak- ara í Löbek. Eftir að hann hafði rætt við mig góða stund og ég svarað hon- um eftir bestu getu, beindist samtalið nokkum veginn á þessa leið: , „Heyrðu ertu frá Jótlandi?“ „Nei ekki er það nú.“ „Nú, ertu kannski Svíi?“ „Nei, ég er frá íslandi.“ „Islandi, hvar er það í Danmörku?“ Undrandi fór ég að útskýra fyrir hon- um hvar Island væri og þá var eins og rynni upp fyrir honum ljós. Æjá, það er alveg rétt, klettaeyjan, sem við eig- um þama norður í hafi. Ég var nú ekki alveg sammála honum hvað þetta snerti, en þagði þó og rakarinn hélt áfram sínu blaðri. „Þú ert nú bara ansi danskur í út- liti.“ „Nú, það er kannski af því afi minn var danskur.“ „Það hlaut að vera. En er ekki búið í snjóhúsum þama norðurfrá?“ „Nei, ekki er það nú, en börn búa sér til snjóhús á veturna.“ „Er ekki fullt af ísbjörnum þarna?“ „Satt að segja hef ég aldrei séð ís- bjöm nema á mynd.“ Og að lokum sagði hann og glotti um leið: „Það eru nú náttúrulega engir rak- arar þarna norðurfrá?" Ég svaraði og hækkaði um mun róminn um leið: „Og jú. Ég á nú heima í litlu sjávar- þorpi og þar eru þrjár rakarastofur og enginn rakaranna notar svona hand- klippur eins og þú. Þeirra klippur ganga fyrir rafmagni og stofurnar þeirra eru allar huggulegri en þín.“ Þar með mátaði ég hann, því hann þagði meðan hann lauk við að klippa mig. Hann tók ekki undir kveðju mín þegar ég fór. Þetta var ekki í eina skiptið sem ég þurfti að leiðrétta eða upplýsa fólk um mitt kæra ættland. Ég varð líka einu sinni mjög gram- ur, reyndar sárreiður undir niðri hús- bændum mínum, þegar leið á sumar- ið. Það var einhvern sunnudaginn, þegar ég hafði lokið mjöltum og ég kominn í betri fötin, að mér var boðið inn í stássstofuna. Þar var stór bóka- skápur. Ég áleit að hjónin væru nokk- uð menntuð, þegar ég fór að rýna í bókaskápinn og athuga hvað væri til af góðum bókum. Kom ég auga á Heimskringlu Snorra Sturlusonar og sagði hreykinn, að Heimskringla væri skrifuð af íslendingi. Þau hjónin héldu nú aldeilis ekki. Snorri hafði verið norskur sögðu þau og varð ég stórhneykslaður og sár og stældi við þau lengi. Ég hélt því fram að Snorri hafi verið fæddur og uppalinn á ís- landi. En ég varð að láta í minni pokann, og gat ekki sannfært þau um það rétta. Ég var gráti nær af gremju. Þau voru að stela Snorra okkar. I dag er ég ekkert hissa á afstöðu þeirra. Er ekki öll norska þjóðin að reyna að stela Leifi okkar heppna, Ei- ríkssyni. En nú, þegar ég segi frá þessu at- viki, dettur mér í hug hvað þjóð- arstoltið og ættjarðarástin getur verið sterk, þegar maður er staddur fjarri sínu föðurlandi. Það skeði seini hluta sumarsins, að húsbændur mínir fóru á landbúnaðar- sýningu og ég fékk að koma með. Við innganginn var ung og fögur blómarós, sem seldi aðgöngumiðana að sýningunni. Hún tældi mig til að kaupa happdrættismiða með sínu blíðasta brosi. í verðlaun var hestur, nokkuð stór vinningur. Miðinn kost- aði 1 krónu danska. Ég féllst á að kaupa einn miða og rétti henni eina krónu. Þegar hún hafði tekið við krónunni hvarf af andliti hennar fal- lega og tælandi brosið og hún rétti mér aftur krónuna með brúnaþungum og ásakandi svip. Þegar ég aðgætti krónuna, sá ég að hún var íslensk. Ég bað hana afsökunar og fékk henni aðra danska og gat þess um leið hverrar þjóðar krónan væri, en svipur hennar breyttist ekkert við það. Hún virtist reyndar ekkert skilja. Þegar ég kom inn á sýningarsvæð- ið, blöstu við augum nokkrir fánar af ýmsu þjóðemi, sem blöktu í blíðviðr- inu, þar á meðal íslenski fáninnn. Er ég leit hann augum hitnaði mér fýrir brjósti og næstum vöknaði um augu. Svona leikur ættjarðarástin mann, þegar föðurlandið er víðsfjarri. Á sýningunni var margt að skoða, það nýjasta af landbúnaðartækjum og tækniframfarir á ýmsum sviðum. Einnig voru þar básar í löngum röð- um með sýningu á ýmsum húsdýmm. Það átti að veita verðlaun þeim grip- um sem sköruðu fram úr að fergurð og fullkomleika. Ekki man ég nú sérstaklega eftir þessum úrvalsskepn- um. Þó veitti ég athygli röð af stíum og voru Ijórar hænur og einn hani í hverri þeirra. Haninn og hænumar vom öll eins, í hverri stíu fyrir sig, í alls konar litum og glæsileika. Ég hafði mjög mikla ánægju af að virða fyrir mér hænsnin og gekk á röðina, stíu fyrir stíu, enda hef ég frá bam- æsku alltaf verið hrifinn af hænsnum og er búinn að eiga mörg yfir ævina. Ég átti einu sinni 120 stykki en á reyndar enga pútu núna, þegar þetta er skrifað. Þegar ég hafði skoðað alla tilvon- andi verðlaunagripi, fór ég að horfa á kappreiðar. Reyndar vora það ekki reiðar, heldur var einum hesti beitt fyrir mjög létta tvihjóla kerru og hestamir látnir brokka og keppa ákveðna vegalengd og fara marga 414 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.