Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.1998, Qupperneq 19

Heima er bezt - 01.11.1998, Qupperneq 19
hringi umhverfis völl. Ég hafði lítinn áhuga íyrir þess- ari keppni, en var að bíða eft- ir íslenskum hestum, eins og letrað var á skemmtidag- skrána. Ég var með happ- drættismiðann minn milli varanna. Svo hófst sú keppn- in. Fyrst var ég mjög undr- andi, svo reiður, reyndar svo reiður að ég náði ekki upp í nef mér, sem var nú varla von, því ég var með hnefana kreppta í vösunum. Ég hafði mikla þörf fyrir að garga og öskra hástöfum, en mér tókst að halda niðri í mér óhljóð- unum. Að vísu voru hestarn- ir íslenskir, það var augljóst, en það mátti sjá að þetta voru gamlir, útjaskaðir húðatjálk- ar. Knapamir vom klæddir í þröngar prjónabuxur og peysu og pijónahúfur með toppi, sem slóst sitt á hvað þegar þeir börðu fótunum í síðumar á hestunum og svip- unum, sem þeir notuðu óspart. Áhorfendur hlógu og klöppuðu saman lófum og hrópuðu hvatningarorð til knapanna, en ég urraði af reiði. Það var verið að gera gys að og niðurlægja þjóð mína. En svona getur ættjarðar- ástin verið. Maður meymar af hlýrri tilfinningu eða líður sálarkvalir af reiði, sama daginn. Ég sagði að ég hafi verið með happdrættismiðann á milli varanna. Ég fann hann ekki eftir þetta. Ef til vill hef ég étið hann í bræði minni og ef það var ekki, þá hafa einhverjir Danir étið verðlaunahestinn minn mörgum árum seinna. Ég hef áður sagt frá því að á sunnu- dögum átti ég frí milli mjalta. Þann tíma notaði ég að sjálfsögðu fyrir sjálfan mig. Það var smátjörn skammt frá íbúðarhúsinu. Þar gat ég setið löngum á steini og horft á froska og salamöndrur athafna sig í tjörninni. Öll eyjan Borgundarhólm- ur er í ræktun, hver einasti skiki sem ræktanlegur er. Þó eru til blettir sem ekki var hægt að rækta, vegna þess Nikolaj Sofus Berthelsen málari, Asta málari í hvitum kjól, Ragnheiður Berthelsen með derhúfuna. Drengurinn fyrir aftan er óþekktur. hversu grýttir þeir voru, en þar voru tré látin vaxa í friði. Ekki mjög langt frá býlinu sem ég var á, var einn slík- ur skógarblettur, sæmilega mikill um- máls, með háum trjám og fögrum rjóðrum. Þangað fór ég stundum þegar ég gat því við komið. Bæði til að tina hnetur af trjárunnum, sem mér þótti sérlega góðar og um leið að veita athygli maurum og þeirra at- hafnasemi og basli. Eitt sinn er ég var staddur í skógarrjóðri varð ég var við nokkra hreyfingu í grasinu, þar sem ég var staddur. Þegar ég fór að athuga þetta nánar, sá ég lítið dýr þar á beit eða í einhverri athafnasemi. Ég læddist hljóðlega að því, en samt kom það auga á mig og gerði enga tilraun til að flýja. Ég komst alveg að því en þá hnipraði það sig í kúlu, álíka stóra og handbolta og höfuðið hvarf inn í kúluna. Þá áttaði ég mig á að þetta var broddgöltur, sem ég hafði ekki séð áður nema í kennslubókum. Ég tók hann varlega upp, því broddamir stóðu í allar áttir og ég varð að varast að taka ekki fast á kúl- unni, því broddarnir voru sárir. Af einhverri rælni bar ég broddgöltinn heim til að sýna fund minn. Flúsbóndi minn var einmitt staddur á hlaðinu. Ég rétti fram hendurnar og sagði: „Sjáðu hvað ég fann.“ Húsbóndinn tók viðbragð, þreif lurk upp við húsvegg, rykkti broddgeltinum úr hönd- um mínum niður á hlaðið og lamdi hann aftur og aftur með lurkinum. Svo föst og átaka- mikil var athöfnin, að hann hoppaði upp við hvert högg með grimmdarsvip, þar til dýr- ið var dautt. Ég fékk sam- viskubit og eftirsjá yfir að hafa ekki látið dýrið í friði í skógin- um. Þegar það lá þarna dautt, leit húsbóndinn brosandi til mín og sagði: „Þessi kvikindi eru hænsnaþjófar og morðingjar.“ En ég starði undrandi ýmist á dautt dýrið eða húsbóndann. Hvað ljúfur og lítill maður gat sýnt mikla grimmd, en svona er víst lífið. Eins dauði er annars líf. Stundum getur skondið skeð, það mátti ég reyna þarna á Borgundar- hólmi. Vilhelnt sagði mér að það væri starfandi íslenskur læknir á eyj- unni og læknastofa hans væri ekki mjög langt í burtu, en mér stóð svo sem alveg á sama. Ég mundi ekki þurfa á neinum lækni að halda, ungur og hraustur maðurinn. En svo gerðist það að ég fékk ígerð í handlegg, reyndar stórt og ljótt graftarkýli, mér til stórrar óþæginda. Vilhelm hélt að ég yrði að láta skera í það og fylgdi mér til þessa íslenska læknis. Svo fór hann heim því hann hélt að ég myndi rata tilbaka, sem ég líka gerði, þegar til kom. Svo settist ég inn á biðstof- una, en þar voru nokkrar sálir íyrir. Framhald í nœsta blaði. Heima er bezt 415

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.