Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.1998, Qupperneq 20

Heima er bezt - 01.11.1998, Qupperneq 20
Guðmunaur Bergmann Jónsson frá Haukagili í Hvítársíðu: I símavinnu á Holtavörðuheiði Síminn, þetta undratæki, er án efa eitt af vinsælustu uppfinn- ingum heimsins. Það er erfitt að hugsa sér veröldina í dag án síma. Síminn kom eins og kunnugt er, fyrst til íslands árið 1906 með sæstreng frá Skotlandi, þrátt fyrir mótmæli margra, sem töldu mikla vá vera fyr- ir dyrum ef þetta skaðræðistæki yrði flutt til landsins, sem góðu heilli var þó gert. Var það mikið að þakka Hannesi Hafstein þáverandi ráðherra íslands. Sæsíminn var tekinn í land á Seyð- isfirði, þaðan síðan lögð lína um Ak- ureyri og suður til Reykjavíkur. Hafði þessi símalína víða viókomu., Síðan komu Landsímastöðvarnar sem önnuðust alla símaþjónustu, af- greiddu öll símtöl, sendu og tóku á móti símskeytum. I Síðumúla í Hvítársíðu var um langt árabil Landssímastöð. Var hún lögð niður þegar ný tækni tók við með sjálfvirka símanum árið 1986 og var það síðasta handvirka stöðin á ís- landi. Nú liðu mörg ár án þess að neitt gerðist í símamálum í Hvítársíðu. Árið 1931 var lögð símalína frá Síðumúla að Gilsbakka. Fengu þá 10 bæir í Hvítársíðu síma og einn bær í Hálsasveit, Stóri-Ás. Seinna tengdist einn bær í Reyk- holtsdal Hvítársíðulínunni. Það var Hurðarbak. Þegar hér er komið sögu eru 5 bæir í Hvítársíðu enn án síma. Það eru Krókbæirnir svokölluðu, þ.e. 5 innstu bæirnir í Hvítársíðu. Árið 1940 bárust Hvítsíðingum þær fréttir frá Landssímanum að búið væri að leggja í jörð símalínuna frá Grænumýrartungu í Hrútafirði yfir Holtavörðuheiði að Forna- hvammi í Norðurárdal. Hvítsíðingum var boðið að fá símastaurana sem þá stóðu enn á Holtavörðuheiðinni ef þeir vildu rífa þá upp og flytja fram i Síðu. Var þessu tilboði tekið. Til þessarar vinnu voru sex menn valdir, sem síð- an fóru upp á Holtavörðuheiði um mánaðamótin ágúst-september 1940. Þeir sem í þessa vinnu fóru voru: Ólafur Jóhannesson frá Kalmans- tungu, Sigurður og Erlingur Jóhann- essynir frá Hallkelsstöðum, Bergur Sigurðsson frá Kolsstöðum og Björn og Guðmundur B. Jónsson frá Haukagili. Vinnan við að draga upp síma- staurana gekk yfirleitt vel. Sumir staurar reyndust þó dálítið erfiðir, einkanlega ef þeir voru í grýttri jörð eða hnyðjustaurar, sem voru sverastir neðst. Skömmu eftir að við byrjuðum að rífa upp símastaurana bættist sjöundi maðurinn í flokkinn, Finnbogi Ás- björnsson frá Fornahvammi. Hann kom með hesta og hjálpaði til við að draga staurana að veginum. Síðan komu tveir bifreiðastjórar á vörubíl- urn og fluttu símastaurana inn í Hvít- ársíðu, þeir Finnbogi Guðlaugsson úr Borgarnesi og Kristján Jónsson seinna bóndi í Stóru-Skógum í Staf- holtstungum. Sumarið eftir var símalina lögð á bæina fimm, sem eftir voru í Hvítár- síðu. Voru þá allir bæirnir þar komn- ir í símasamband. Tíðafar var mjög gott þann tíma sem við vorum að vinna þarna, logn og milt veður og oft sólskin. Við höfðum aðsetur í sæluhúsinu gamla á Holtavörðuheiðinni. Þar voru rúmstæði með dýnum og elda- vél. Gátum við hitað okkur kaffi og yljað upp á kvöldin. Við höfðum allir mat meðferðis og það fór vel um okkur þarna. Alls tókum við upp 150 símastaura á 5 dögum. Fyrir þessa vinnu fékk hver maður í kaup 45 krónur og bílstjórarnir, Finnbogi 257 kr., Kristján 233 kr. og Andrés Eyj- ólfsson Síðumúla, 169 kr. fyrir um- sjón. Nú eru liðin tæplega 70 ár síðan síminn kom í Hvítársíðuna. Svo miklar breytingar hafa orðið á öllum sviðum í þjóðfélaginu að það er með ólíkindum. Þá voru allir þjóðvegir malarvegir og rafmagn á bæjum á landsbyggðinni næstum því óþekkt. Flugvélar voru engar, útvarpið ný- komið. Sími var aðeins á Landssíma- stöðvum. Núna er farsími í bifreið- um mjög algengur. Þá eru bréfsímar og boðtæki víða, m.a. hjá fyrirtækj- um. Margir ganga með símtæki í vasanum. Einhver mesta breytingin í síma- málum eru ijarskiptasamböndin við útlönd. Nú er hægt að hringja til hvaða lands sem er í heiminum og fá samband svo að segja á svipstundu. Að lokum ætla ég að nefna eitt mesta heljarstökkið sem þjóðir heims hafa tekið á síðustu áratugum, en það er tölvubyltingin. Tölvur eru nú til á miklum tjölda heimila og þykja ómissandi. Öll fyrirtæki eru tölvu- vædd, vasatölvur eru í hvers manns eigu. Starfssvið þeirra, stórra og smárra, virðist endalaust. 416 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.