Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.1998, Síða 24

Heima er bezt - 01.11.1998, Síða 24
að hafa borið á ýmsu kynlegu, sem menn skildu ekki. I landnorð- urhorni graftarins, sem sneri að baðstofunni, komu graftarmenn niður á ljósleitt lag af ein- hveiju, sem ekki var mold, en líktist einna helst beinajastri. Var það meira en alin niðri í jörðu. Komust graftar- mennirnir að þeirri nið- urstöðu að þetta væru beinaleifar af manni, svona fornar og fúnar. Var þessu safnað saman og grafið niður í hól einn, þarna rétt hjá. Næstu nótt verður það til tíðinda, að Frímann dreymir að til sín komi maður, í meðallagi hár, en þreklega vaxinn og ábúðarmikill. Talar hann til Frímanns og segir: „Ég er sá, sem þið hreyfðuð við í gær,“ og þóttist Frímann vita, að þar væri átt við beinaleifarnar. Því næst segir komumaður að hann ætli að búa með þeim í nýja húsinu. Kvaðst hann einkum mundu hafa bækistöð sína í landnorðurhomi kjallarans, en gaf þó jafnframt í skyn að honum yrði kannski reikað víðar um í húsinu. Svo kvaddi hann Frímann og fór. Frímanni leist maður þessi heldur skuggalegur, þó að hann reyndi að gera sig blíðmálan. Sagði honum illa hugur um að eiga bústað með honum undir sama þaki. Það varð fljótlega bert, eftir að far- ið var að búa í nýja húsinu, að draumur Frímanns hafði ekki verið tóm markleysa. Tóku nú mjög að færast þar í aukana alls konar skrá- veifur, sem fólk hafði lítið orðið vart við í gamla húsinu. Þessi ófögnuður lýsti sér á ýmsa vegu. Það var lamið á glugga, barið að dyrum, skellt hurðum, gengið um stiga, ganga og vistarverur. Það var bylt til húsögn- um, staðið fyrir fólki, svo að það Horftyfir innanverðan Við- fjörð, Viðfjarðará og bakhlið hins reisulega íbúðarhúss. Gamla húsið er heyhlaða, en fjósið var í kjallara stóra hússins. í Viðfirði hafa mörg undrin skeð og eru af þeim ýmsar sögur og víst er um það, að menn kenndu dularöflum staðarins síðustu skerðingu œttarinn- ar, þegar þrír brœður fórust við fórða mann ífiskiróðri, haustið 1936, að sögn Þórbergs Þórðarsonar í bók hans um Viðflarðarundrin. flcmniiw Jtnxktnctt flFí !J ,1 -■* % Fararstjórinn, Sigurður Krist- insson, litast um í stofu Við- flarðarhússins. komst ekki ferða sinna um húsið, haldið fyrir því vöku með aðsóknum um nætur, lagst ofan á það, dreginn úr því mátt- ur, hvæst í eyru þess og tekið fyrir kverkar því. Þar var séður á ferli miðaldra maður, fremur lágur vexti, kraftalegur, skolhærður, svipþungur og ábúðarmikill. Sumir sáu í fylgd með honum yngri mann, dökkhærð- an, hærri vexti og grennri að útliti. Þessir gestir ollu heimilisfólkinu mikilla óþæginda, eins og gefur að skilja, þótt það umbæri áreitni þeirra með þolinmæði og óttalítið, enda hafði það meiri skilning á dularfull- um fyrirbærum en almennt gerist. Reimleikarnir, sem þeir ollu á heim- ilinu, urðu brátt svo daglegir við- burðir, að allur fjöldi einstakra íyrir- bæra er nú fallinn í gleymsku. Auk þess voru þau flest, hvert öðru svo iík, að ójóst greinist eitt frá öðru, þó að reynt sé að ritja þau upp. Káputeikning, útg. í Rvík 1943. 420 Heima er beit

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.