Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.1998, Side 31

Heima er bezt - 01.11.1998, Side 31
H. p •K'i'W f l\ Gluggað í gömul blöð og forvitnast um það, sem efst var á baugi fyrir nokkuð margt löngu. Umsjón: Guðjón Baldvinsson fyrri tíðar Þannig var þjóðlífið '•% ■ 9. nóv. 1891 Matvöruprísarnir Nú er rúgtunnan komin á 26 krónur hér í verslununum, og aðrir matvöru- prísar að því skapi. Þessir háu prísar koma hart niður á öllum þeim, er eigi hafa birgt sig nægi- lega í sumarkauptíðinni, og mun það því miður vera meiri hluti bænda og tómthúsmanna. Um þá, sem gera sér þá búskaparað- ferð að reglu að leggja hvem fiskdrátt- inn „blautan“ inn í verslanimar, jafn- óðum og hann fæst úr sjónum, má að vísu segja, að þeim komi vanhyggind- in maklega í koll. Þessum mönnum hefur þráfaldlega verið sýnt fram á að það myndi þeim miklum mun notasælla að salta og þurrka afla sinn og að versla svo með hann í einu lagi að sumrinu, en að reita allt inn í verslanimar, jafnóðum og að höndum berst og geta svo aldrei tekið í einu nema rétt til spóns og skeiðar en verða að kaupa mikið af nauðsynjum sínum með vetrarverði. En það má segja um ijölda þeirra, að „sjáandi sjá þeir eigi og heyrandi heyra þeir eigi,“ allar aðvaranir og áminning- ar betri manna láta þeir eins og vind um eyru þjóta og verður þó engan veg- inn sagt um þá alla, að þá reki neyðin til þessarar verslunaraðferðar, ef nokk- ur væri fyrirhyggjan. En það eru því miður ekki blaut- fiskssölumennirnir einir, sem fá að kenna á þessum háu matvöruprísum, heldur ýmsir aðrir, sem vegna hins bága fískleysis undanfamar vertíðir, ekki hafa lánstraust í verslununum, og ekki hafa haft efni á að birgja sig nægilega að matvöru í sumar. Margir sjá það nú, þegar það er um seinan, að heppilegt hefði verið að „Kaupfélag ísfirðinga“ hefði haft nokkarar matvömbirgðir handa á milli í vetur. En það er ekki von að stjóm kaupfé- lagsins hafi viljað taka það upp á sig, þar sem margir félagsmanna hafa sýnt allt annað en áhuga á félaginu og sum- ir enda eingöngu eða mestmegnis not- að félagið til peningapantana, sjálfsagt í því trausti að nauðsynjavörurnar gætu þeir hvergi fengið ódýrari en við búðarborðið. Úr bréfi Vestmannaeyjum, 23. sept. 1891. Veðrátta hefur verið hér hagstæð í sumar, til lands og sjávar, frá því í miðjum júnímánuði til 6. þ.m., að brá til storma og rigninga fyrir fullt og allt. Grasvöxtur varð samt naumast í með- allagi. Ollu því framúrskarandi þurrkar meiripart vorsins, en nýting hins litla heyskapar varð góð. Venju betur hefur fískast hér á opna báta í sumar, til þess tíma er stormar fóm að ganga. Hið eina þilskip, sem gekk héðan til fískveiða, ffá sumar- málum til júlímánaðarloka, fékk alls rúm 15 þúsund fiskjar. Svartfuglaveiði var hér með besta móti, lundaveiði mjög lítil, eins og mörg undanfarin ár. Fýlungatekja varð ekki í meðallagi og slysfarir engar, svo það er óþarft fyrir „Þjóðviljann,“ sem víst álítur sig vera svo nærri miðju landsins og hjarta þjóðarinnar, að senda „endabömum landsins“ hnútur fyrir skaðlega „fýlungaelsku,“ eins og hann gerði í 1. tbl. V. árg. Er það vafa- samt að það sé vilji þjóðarinnar að menn séu óvirtir fyrir sinn lögleyfðan atvinnuveg, hvar sem þeir hafa ból- festu á landinu. Verslun var hér með minnsta móti og olli því aflaleysið í vetur og ffam eftir vori. Svo eru og Skaftfellingar al- veg hættir að versla hér síðan „Víkin“ var löggilt. Rangvellingar em líka famir að fækka ferðum hingað að miklum mun. Vömpöntun átti sér stað nú sem í fyrra, og var allmikill skiptamunur. Er vonandi að menn sjái hér æ betur og betur muninn á fijálsri verslun og ein- okunartjóðri. Á innlendri vöm var verðið í fasta- verslun þannig: Saltfiskur nr. 1, 58 kr. skipp., langa 55 kr., smáfiskur 38 kr., ýsa 30 kr., sundmagi 25 aura, hvít ull 70 aura, smjör 50-60 aura. Utlend vara: Rúgur 20 kr. tunnan, mjöl 22 kr. (frá miðjum júlímán.), bankabygg 29 kr., kaffí 120 aura pundið, kandís 40 aura, export 50 aura, melis 36 aura, rúsínur 36 aura, ofnkol 4-5 kr. skippundið. Drykkjuskapur hefur minnkað hér mjög úr því sem áður var og bindindi er hér á allgóðum vegi, undirstúka með nálægt 60 félögum og bamastúka með rúmum 20 og eiga þær allstórt fundahús. Hinn ötuli sjómannavinur, séra Odd- ur V. Gíslason, kom hingað í sumar og fluttir hér. fyrirlestur um bindindi, bjargráð og sjómennsku, en fundir urðu of fámennir, sökum anna og fjar- vistar manna. Virðist oss mein að því, hve lítið prestur þessi er styrktur í því afar nytsama starfi fyrir tvö hin mestu velferðarmál lands vors, bindindið og sjávarútveginn, sem hann sýnir svo framúrskarandi dugnað og elju við. gjjn Heima er bezt 427

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.