Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.1998, Blaðsíða 32

Heima er bezt - 01.11.1998, Blaðsíða 32
Sigurbjörg frá Breiðabólsstað Konan, sem ég ætla að tala við heitir Sigurbjörg Lárusdóttir, fædd 1909 á Breiðabólsstað á Skógarströnd. Faðir hennar var Lárus Halldórsson. Hann var fæddur á Miðhrauni í Miklaholtshreppi. „Ungur ákvað hann að læra. Hann fór í Menntaskólann í Reykjavík og útskrifaðist úr honum árið 1900. Þeir kölluðu sig síðustu stúdenta 19. aldar. Hann var kosinn prestkosningu til Breiðabólsstaðar 1903. Það var fal- legur staður. Þar var mikill skógar- gróður. Eyja fylgdi jörðinni, sem kölluð var Hólminn. Eyja þessi var mjög grösug. Þar var heyjað allmikið á sumrin og heyið flutt á báti til lands. Þar var líka eggjataka. Það fylgdi jörðinni bátur, sem notaður var til að flytja heyið á og eggin til lands. Það var líka flutt talsvert af fugli til lands. Húsakostur var sæmilegt timb- urhús, sem var vel við haldið. Upp- hitun var með ofnum. Svolítið var keypt af kolum og þau sótt út í Stykkishólm. Kirkjan var hituð upp með kolum. Faðir minn þjónaði í þrem kirkjum, að Breiðabólsstað, Narfeyri og Helgafelli. Þetta gat verið erfitt að vetrinum, því ár eru margar og oft illfærar. Presturinn hafði oft mann með sér á vetrum. Oft var góð kirkjusókn og venju- lega betri á sumrin. Fólk fór til kirkju Ágúst Vigfússon / 5. hluti til að þjóna guði sínum og einnig til að fá fréttir. Þá var sími á örfáum bæjum. Það var sími á mínu heimili og þangað bárust fréttir frá hinum stóra heimi. Menn komu oft á tíðum bara til að fá íféttir. Sumir, sem höfðu síma, urðu mér minnisstæðir, t.d. Þorsteinn á Bugðustöðum, sá sérstæði gáfumaður. Hann hringdi oft. Þorsteinn talaði mörg tungumál, t.d. dönsku, ensku, þýsku og norsku. Hann gat einnig bjargað sér í frönsku. Fréttirnar báru með sér að útlitið úti í hinum stóra heimi væri ekki gott. Svo var það 1918, að stríðið skall á. Þá var útlitið slæmt, sérstak- lega með alla aðdrætti til landsins. Þá voru kafbátar fyrst að koma til sögunnar, þótt síðar yrðu þeir full- komnari. Ég var mjög ung er fyrri heims- styrjöldin skall á. Ég man þó enn eft- ir ýmsu, sem fólkið talaði um. Það var kvíðið, það var ekki neinn leikur að sigla til annarra landa, t.d. um há- vetur, með vígvélar allt í kringum sig, en sjómennimir íslensku voru ýmsu vanir og hafa oft bjargað þess- ari þjóð. Það var stór fjölskylda að Breiðabólsstað. Við vorum sex systk- inin, fjórir bræður og tvær systur. Það voru líka margir sem á heimil- inu voru eða komu í heimsókn, sem mér eru minnisstæðir. Það kom t.d. maður norðan úr Húnavatnssýslu. Hann var einfættur og kallaði sig Jón á Svartá. Hann sló mikið, þótt hann væri bæklaður. Guðmundur föðurbróðir minn bjó með okkur á Breiðabólsstað. Hann hirti skepnurnar að öllu leyti. Guð- mundur fékk efri hæðina á húsinu. Vinnukona var á Breiðabólsstað, sem hét Agústa. Hún átti son, það var sr. Árelíus, fluggáfaður og vel gerður maður. Sérkennilegur fannst mér Pétur í Árhúsum. Hann hafði mikið skegg. Hann tuggði tóbak og spýtti hingað og þangað. Mamma var alltaf á ferð- inni með spýtubakkann og sagði: „Þú átt að spýta í þetta, Pétur minn. Ég vil ekki að spýtt sé á gólfið.“ Annars var Pétur sérkennilegur að mörgu leyti. Hann mun hafa verið verklaginn. Ég talaði við mann sem fór út að Árhúsum og hitti Pétur við slátt. Hann sagðist hafa verið hissa að sjá hann slá. Honum virtist bíta svo vel. 428 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.