Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.1998, Síða 33

Heima er bezt - 01.11.1998, Síða 33
„Má ég taka í orfið hjá þér, Pétur minn?‘‘ spurði hann. „Já, velkomið.“ Hann tók svo í orfið og kvaðst aldrei hafa vitað annað eins bit. Pétur var sérkennilegur en honum var ekki alls varnað. Fleiri voru sérkennilegir á Skógar- ströndinni. Meðhjálpari var Jósep á Vörðufelli. Góður söngmaður. Það var ekki einsdæmi ef menn komu að Vörðufelli, einkum að vetri til, að heyra söng. Þar var þá barnaskóli, um annað var ekki að ræða en far- skóla. Kennt var þá á fleiri en einum bæ. Þá sagði Jósep við gestina: „Eigum við ekki að taka lagið.“ Krakkarnir stóðu upp og hann gaf tóninn. Þá var gleði í baðstofunni á Vörðufelli. Það voru þessir menn sem héldu uppi lífinu í þá daga. Þá var það Jón á Valshamri. Stór- snjall smiður, mátti reyndar segja að allt léki í höndunum á honum. Var hann oft sóttur ef eitthvað bilaði. Ég man eftir að þakið bilaði á húsinu á Breiðabósstað. Þá var sótt til Jóns á Valshamri. Sóttar voru járnplötur út i Stykkishólm og hann gerði við bilun- ina á þakinu. Faðir minn var góður söngmaður og þjónaði prýðilega, en heilsan var farin að bila og orðinn veill fyrir hjarta. Hann ákvað að hætta prest- skap. Ferðalög í vondum veðrum voru honum ofviða. Hann ákvað því að flytja suður í hlýrra loftslag. Hann var eitt ár á Vífilsstöðum. Foreldrar mínir keyptu hús á Njáls- götu 37 og faðir minn fór að vinna við Orðabókina. Hann hafði fengið hina illvígu flensu 1918 og síðan fékk hann lungnabólgu og það varð hans bani. Þá var erfiður tími hjá móður minni, með allan þennan barnahóp. Þetta varð þó ekki eina raunin sem vesalings móðir mín varð að þola. Tveir bræður mínir fórust á togaran- um Ólafi, í ofsaveðri á svokölluðum Halamiðum. Móðir mín stóð eins og hetja í öllum þessum raunum og varð fjörgömul. Nú er ég orðin ein eftir af þessari stóru fjölskyldu, enda bráðum komið kvöld. Ég tel mig hafa verið ham- ingjusama. Ég eignaðist frábærlega góðan mann, Braga Steingrímsson og eignaðist níu börn, sem öll hafa lánast vel. Hjásetan Við, sem komnir erum á efri ár, munum ýmislegt viðvíkjandi vinnu- brögðum, sem algeng voru í okkar uppvexti, en eru nú gjörsamlega horfin og heyra sögunni til. Jafnvel svo algeng verkfæri sem orf og hrífa, eru að hverfa. Mörg áhöld, sem allir þekktu og kunnu að handleika fyrir aðeins 40 árum, eru nú gjörsamlega glötuð eða enginn lítur við að nota þau lengur. Reiðingur, reipi, ristuspaði, torfristuljár og kvörn til að mala áburð, allt eru þetta verkfæri sem heyra til liðins tíma og þeim störfum sem þau voru þá tengd. Hver man nú fráfærur, aðrir en aldrað fólk. Fyrir svo sem 40-50 árum var sá þáttur búgreinar enn al- gengur og hafði verið það í búskap okkar allt frá landnámsöld. Fornsög- urnar greina frá mörgum atvikum, sem skeðu við selin, þar sem fólkið, er gætti búfjárins og sá um málnyt- ina, hafðist við. í sögunni „Piltur og stúlka" er brugðið upp skemmtilegri og glöggri lýsingu af unglingum sem falið var það vandasama og ábyrgðarmikla starf að gæta kvíaánna. Unglingar nútímans munu ekki geta skilið hve mikil þolraun það var, sem á stundum var lagt á herðar mjög ungra barna fyrr á tímum. Margt barnið mun hafa verið dapurt í huga, sorgbitið og kvíðið er það lagði af stað með kvíaærnar. Sums- staðar hagaði svo til að haglendi þótti ekki nógu gott neðan brúna, fyrir kvíaær. Unglingarnir urðu þá að sitja hjá uppi á heiðum eða fjöllum, þar sem hvergi sá til bæja. Þá hafa á stundum verið daprir og langir dagar hjá átta og níu ára böm- um, sérstaklega þegar þokan lá yfir fjalllendinu og var þá oft svo svört að ekki sá yfir ærhópinn, ef hann dreifði eitthvað úr sér. Og þar að auki voru sum börn klukkulaus og vissu ekki hvað tímanum leið. Ég kynntist því lítilsháttar að sitja hjá. En þar var allt önnur aðstaða fyrir unglinga en sú, sem lýst hefur verið hér á undan. Beitilandið var skammt frá og sást alls staðar heim að bænum úr landareigninni. Samt sem áður kveið ég óskaplega fyrir að þurfa að gera þetta. En þá þekktist það ekki að unglingar neituðu því, sem þeim var sagt að gera. En mikið leiddist mér atvinna þessi, enda var ég ekki hneigður fyrir að umgangast kindur, og var af sumum kallaður rati í þeim efnum. En samviskusamur held ég að ég hafi verið. Enda var það talin mikil skömm að týna úr hjásetunni. Mér fylgdi að jafnaði hundur, sem kallaður var Móri, enda var hann mórauður á lit. Ég get fúllyrt að hann var mín eina gleði við þetta leiðin- lega starf. Og oft fannst mér hann skilja mig eins og hann væri mennskur maður. Alltaf var Móri í jafn góðu skapi og alltaf tilbúinn að ærslast við mig. Stundum settist hann út á hólinn við bæinn og fór að gelta án þess að séð væri að hann hefði nokkra ástæðu til þess. Þá sagði gamla fólkið að hann væri að spá gestum. Oft leið langur tími án þess að nokkur maður kæmi. Þá sagði fólkið að nú hefði Móra brugð- ist bogalistin. En spádómar Móra brugðust aldrei, þó gesturinn kæmi á stundum eftir venjulegan háttatíma. Ekki tók Móri jafn vel á móti gest- um er að garði báru. Yggldi hann sig og var hinn versti við suma en við aðra var hann hinn ljúfasti og sýndi þeim alls konar vinahót. Ég man greinilegast eftir einu at- viki úr hjásetunni. Það er eins og það hafi skeð í gær. Þennan dag var rign- ing og þoka, leiðinda veður. Ég var með ærnar fram í svonefndu Litla- nesi, sem skagaði fram í Hörðudalsá. Ég hafði hróflað mér upp nokkurs Heima er bezt 429

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.