Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.1998, Page 34

Heima er bezt - 01.11.1998, Page 34
konar byrgi í tófitarbroti, sem þar var. Sjálfsagt hefur það nú ekki verið merkileg bygging, enda hef ég aldrei mikill byggingarmeistari verið. Þegar kindurnar lögðust niður til þess að jórtra um miðjan daginn, fór- um við Móri inn í byrgið að fá okkur bita. Eg var alltaf vel nestaður, svo hvorugur okkar þurfiti að vera svang- ur. En líklega hef ég verið of lengi inni í hreysinu eða fatast efitirleitin, því þegar ég fór út sá ég að allar roll- urnar voru farnar yfir ána og stefndu til fjalls, hinum megin dalsins. Nú voru góð ráð dýr, og ekki leist mér á ástandið. Áin hafði vaxið í rigningunni um daginn. Ekki var nú um annað að tala en reyna að vaða yfir. Ég lagði því út í ána, en ég var ekki kominn langt er ég fann að áin var of djúp fyrir mig. Ég sneri til sama lands afitur. Aftur lagði ég af stað og setti steina í skóna, en það fór á sömu leið. Ég varð að gefast upp. Móri stóð á árbakkanum og horföi á mig sínum bláu, stóru augum og skildi ekki neitt í neinu. Nú fór heldur að fara um mig. En skyldi nú Móri ekki geta sótt ærnar fyrir mig. Mér fannst það nú eina úr- ræðið, eins og komið var. Ég reyndi nú að gera Móra það skiljanlegt að hann ætti að sækja kindurnar, en vin- ur minn virtist lítið skilja bendingar mínar og skipanir og var ófáanlegur til að fara. Hvað átti ég nú að gera? Satt að segja vissi ég það ekki. Ég skammaðist mín fyrir það að fara heim og segja frá óförum mínum og vanrækslu. Ég vafraði í einhverju sinnuleysi fram með ánni og starði sem í leiðslu á ærnar, sem héldu rakleitt áfram til fjalls. Loks brast hugrekkið alveg og örvinglunin tók við. Ég fór að gráta yfir umkomuleysi mínu og úrræðaleysi. En þegar neyðin er stærst þá er hjálpin næst. Kemur þar maður þeysandi á svörtum hesti. Ég þekkti manninn, það var bóndi framan úr Hörðudal. Hann kom auga á mig og sá að eitthvað amaði að mér. Hann fór af baki og spurði hvað væri að mér. Ég tjáði honum vandkvæði mín. Hann taldi að vel mætti bæta úr þeim, hann skyldi sækja ærnar, hvað hann og gerði. Hann klappaði á koll- inn á mér og sagði að ég skyldi ekki taka mér þetta nærri. „Ég var einu sinni lítill snáði, eins og þú, og lenti líka í erfiðleikum og þelm miklu meiri en þú núna. Þú þarft engum að segja frá þessu, þá veit enginn um þetta. Ég skal þegja.“ Mikið var ég feginn og þakklátur þessum manni, sem hjálpaði mér, þegar mér fannst mér liggja mest á. Ég sagði engum frá þessu, nema gömlu konunni, húsmóður minni, því ég vissi að hún kunni bæði að skilja og fyrirgefa. ggi Hlaðvarpinn framhald af bls 400 En þetta er nú kannski líka dæmi um annað, sem nútíminn er að fæða af sér, þ.e. hina gífurlegu ferða- mennsku, sem allsstaðar er að verða að stórum og viðamiklum atvinnu- vegi. Og þar, eins og annars staðar, verða menn að hafa eitthvað til þess að laða að viðskiptavinina með, og verður nú að segjast að fátt hljóti að vera orðið um fína drætti, þegar sorphaugar eru orðnir tæki í slíkri baráttu. En svona er lífið, allt er hægt og allt er notað. Ljótleikinn virðist stundum, ekki síður, hafa aðdráttar- afl í þessum heimi okkar, hvort sem um er að ræöa sorphauga eða eitt- hvað annað verra. Enda má kannski spyrja hvort feg- urð væri til ef ekki væri ljótleiki, eða góðleiki ef vonskuna vantaði. En þá erum við nú komin út á svo- lítið háleitari brautir, sem ekki skal lengra haldið á að þessu sinni. Með bestu kveðjum, Guðjón Baldvinsson. M - KjötboIIur 3 msk hveiti 1/4 tsk lyftiduft 3 egg, þeytt 5-6 msk vatn 250 g nautahakk 1 búnt vorlaukur, flnsneiddur 1 grænt chilipiparaldin, fínsaxað 1 tsk turmerik salt olía til steikingar. Sigtið hveitið og lyftiduftið í skál, bætið við eggjunum og þeytið vel. Hrærið smátt og smátt nægu vatni út í, svo úr verði þykk, íjómakennd soppa. Blandið kjöthakki, lauk, chilipipar, turmeriki og salti út í. Hræran á að líkjast þykkum graut. Látið bíða á volgum stað í 1 klukkustund. Helli olíu í djúpa pönnu. Magnið á að mælast 1 sm. Þegar olían er vel heit er kjöthræran látin falla af skeið ofan í feitina og bollurnar steiktar á hvorri hlið í 2 mínútur. Látið síga af þeim og haldið heitum á meðan lokió er við að steikja. Bætið við meiri olíu ef þarf. Berið fram heitt. Handa 4. 430 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.