Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.1998, Síða 37

Heima er bezt - 01.11.1998, Síða 37
hönd undir kinn. Sóley var að fá sér síðdegislúr og vissi ekki annað en að allt væri í lagi. Mikið skelfing var Ásta kvíðin. Hún bað til guðs af öllu hjarta. Hann Þorsteinn hennar varð að lifa. Björn fór út með Heiðu svo Ásta var ein í eldhúsinu. Hún starði fram fyrir sig og langaði til að gráta. Af hverju þurfti þetta að gerast? Þar sem hún sat þarna heyrði hún að það var bankað. Þar var komin Kristbjörg á Ytra-Hóli. Hún var hálf vesældarleg á svip þegar hún heilsaði. - Fyrirgefðu, Ásta mín. Mér fannst ég verða að rölta yfir til þín. Geir- mundur er ekki kominn en ég hleraði í símanum þegar Gunnar læknir hringdi til þín. Ég vildi bara vita hvort ég gæti eitthvað hjálpað þér. Ásta brosti veikt. - Það er víst lítið hægt að gera nema bíða. Komdu og fáðu þér sæti. Ég ætla að renna upp á könnuna, það er gott að fá sér kaffisopa. Kristbjörg settist við eldhúsborðið. Hún nuddaði saman höndunum. - Ég veit að ég segi stundum ýmis- legt sem betur mætti liggja kyrrt. Það er einhvern veginn þannig að ég glopra öllu út úr mér áður en ég veit af. En þrátt fyrir það þá eruð þið svo miklir vinir okkar og ég get ekki hugsað mér að neitt komi fyrir hjá ykkur. Ég veit ekki hvað ég á að gera, ég vildi að ég gæti hjálpað þér eitthvað, Ásta mín. Að þessum orðum töluðum brast Kristbjörg í grát. Ásta vissi að grann- kona hennar var fremur grátgjörn en hún vissi ekki almennilega hvernig hún átti að bregðast við að þessu sinni. Hún tók utan um Kristbjörgu og strauk henni um bakið. Það veitti henni styrk að hugga konuna og enn einu sinni fann hún þennan kærleika milli fólksins í sveitinni, ef eitthvað bjátaði á. - Kristbjörg mín, við getum víst ekkert gert nema beðið algóðan guð að hjálpa honum Þorsteini og okkur öllum. Kristbjörg hélt áfram að gráta. - Ég varð svo hrædd þegar ég heyrði þetta. Ég vil ekki að dauðinn sæki okkur heim hér í Árdalnum. Ég er líka svo hrædd vegna þess að nú er ég orðin óffísk aftur, en ég ætlaði aldrei að fæða nema þetta eina barn. Það gekk svo hræðilega illa og ég missti svo mikið blóð. Læknirinn hélt að ég myndi deyja. Ég er svo þakklát íyrir þennan heilbrigða son okkar. Ég hef líka passað mig svo vel, en svo þegar við eignuðumst bílinn, þá gleymdi ég mér og nú veit ég ekki hvað ég á að gera. Ég vil ekki deyja. Ásta starði á Kristbjörgu. - Ég er viss um að allt verður í lagi, góða mín. Við verðum bara að trúa því og treysta á það. Kristbjörg var óhuggandi. - Þetta er allt svo hræðilegt. Hvað eigum við að gera? Gráturinn var svo sár að Ásta gat ekki annað en tárast með henni. Mik- il skelfing gengu á. Hún gat vel skil- ið að Kristbjörg vesalingurinn væri hrædd. Það mundu allir hve hætt hún hafði verið komin er hún fæddi drenginn. Stuttu seinna kom Geirmundur á Ytra-Hóli. Hann sagði þeim þær fréttir að Jóhann læknir væri kominn og nú væru þeir Gunnar að vinna við uppskurðinn á Þorsteini. Jón, faðir hans, hafði viljað vera eftir og ætlaði sér að gista hjá læknishjónunum. Enn var allt í óvissu, en Jón hafði sagt Geirmundi að fara heim. Það bætti ekkert að þeir sætu báðir og biðu. Tíminn varð að leiða í Ijós hvernig allt færi. Eftir að hafa þegið kaffi, fór Geirmundur og tók konu sína með. Það var hljótt yfir Hólsbænum þennan daginn. Við tók þreytandi og kvíðafull bið. Fólkið reyndi að hressa hvert annað við, en allir voru kvíðnir og áhyggjufullir. Tíminn leið, en loksins komu fréttir. Jón gamli hringdi heim til að segja tíðindin. Aðgerðin hafði tekist en nú var eftir að vita hvernig Þorsteini reiddi af. Enginn vissi hvaða áhrif svona löng aðgerð myndi hafa og svo var eftir að vita hvort hann slyppi við sýkingar. Jón ætlaði svo að koma heim með mjólkurbílnum daginn eftir. Það varð strax léttara yfir fólkinu. Þó að Þorsteinn væri enn í lífshættu þá var aðgerðin afstaðin og það var strax viss léttir. Nú var um að gera að vona það besta og halda sínu striki. Síminn var rauðglóandi, allir voru boðnir og búnir til þess að veita alla aðstoð sem hægt var á meðan á veik- indunum stæði. Það varð því úr að Ásta þáði hjálp við að klára engja- heyskapinn. Það var ákveðið að Árni í Árdal, Lárus á Fossi og Andrés í Mjóadal kæmu daginn eftir. Með þeim mannskap átti heyskapurinn að fara langt. Ásta var mjög þakklát fyrir hvað fólkið var elskulegt og hjálplegt. Samt voru tilfinningar hennar blendnar. Það var ekki sanngjarnt að hann Þorsteinn væri veikur. Einmitt núna þegar allt var svo gott hjá þeim á Hóli og litli sólargeislinn var kom- inn. Þá þurfti þetta að dynja yfir. Hún mátti samt ekki vera vanþakklát. Ef Þorsteinn héldi lífi þá mátti hún vera fegin. Nóttin leið og Þorsteinn komst ekki til meðvitundar. Hann fékk háan hita og Gunnar læknir var áhyggjufullur. Jón á Hóli ákvað samt að koma heirn. Það var harla lítið hægt að gera fyrir Þorstein og eflaust meira gagn að honum heima. Ungu mennirnir komu til að hjálpa á Hóli og þeir fóru á en- gjarnar, ásamt Heiðu, Birni og Óla. Konurnar voru í bænum, bæði til þess að bíða frétta og eins til að sinna litlu stúlkunni. Heiða var mjög niðurdregin. Hún fann til með firænku sinni og öllum á bænum. Auk þess þótti henni afar vænt um Þorstein og óskaði þess að hann næði heilsu á ný. En mitt í þess- um áhyggjum hlakkaði hún til að sjá Árna. Kannski hefðu þau ekki mikið næði til að spjalla saman, en þau yrðu þó nálægt hvort öðru á engjun- um óg það var ljúft. Lárus á Fossi var glaðlegur eins og hann var vanur en þó fannst Heiðu vera kominn einhver alvarlegur svip- ur á hann. Það var eins og hann hefði fullorðnast á einhvern hátt. Hann var kurteis og elskulegur, en hann skjall- Heima er bezt 433

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.