Æskan

Årgang

Æskan - 01.08.1937, Side 10

Æskan - 01.08.1937, Side 10
90 ÆSKAN Frá Þingvalla- fundinum Fundarsalurinn í Valhöll Laugardaginn 14. ági'isl síðasíliðinn og sunnu- daginn 15. s. m. yar haldinn opinber bindindis- fundur á Þingvelli við Öxará. Til fundarins l>oð- aði Umdæmisstúkan nr. 1, og sóttu fundinn full- trúar frá Stórstúkunni og Góðtemplarastúkum víðs- vegar að af landinu og einnig frá öðrum bind- indisfélögum, svo sem Sambandi ungmennafélag- anna, Bindindisfélögum skólanna, íþróttasambandi íslands o. s. frv. Og ennfremur mætlu þarna full- trúar frá ýmsum bindindissinnuðum stéttafélögum, t. d. Sambandi íslenskra barnakennara, Presta- félagi íslands, iðnaðarfélögum o. fl. o. 11. Fundurinn var settur á laugardaginn kl. 5 e. m. og stóð yfir til sunnudagskvölds. Voru fjöldamörg erindi og ávörp llull á honum og samþykktar ýmsar tillögur og áskoranir. Meðal annars var samþykkt að undirbúa stofnun landssambands fyrir öll bindindisfélög á íslandi og einnig að efna næsta suraar aftur lil samskonar fundar á Þingvelli. Á sunnudagsmorguninn var haldin guðsþjónusla, og prédikaði biskupinn, dr. Jón Helgason. Fundurinn og einnig guðsþjónustan fór fram í Valhöll, því að veður var eigi svo hagstætt, að hægt væri að vera undir herum liimni. Fundiníi sóttu talsvert á annað þúsund manns, víðsvegar að af landinu, og voru gistihúsin á Þingvöllum og í grennd troðfull á sunnudagsnóttina, en margir höfðust við í tjöldum. Mikill ábugi virtist ríkja mcðal fundarmanna, enda er þörlin brýn að hefja nýja sókn á hendur Bakkusi og vinna á móti hinni skaðlegu nauln áfengis og töbaks, er lieíir farið hraðvaxandi hér á landi, síðan síðustu leifar aðílutningshannsins voru afnumdar. Við skulum vona og óska þess af öllum lnig, að þessi merkilegi fundur, er haldinn var á liin- um fornhelga þingstað, megi verða, eins og for- göngumenn hans munu liafa ætlast til, upphaf nýrrar og öflúgrar bindindishreyfingar, er lakist að yfirbuga og reka úr landi þenna skaðvald, áfengið, óvin allra sannra framfara og þroska, og að hér eigi eftir að vaxa upp hófsöm, atorkusöm og hindindissöm kynslóð. En minnist þess, unglingar, að það cr ekki hvað sísl undir vkkitr komið, að svo megi verða. Fylkið ykkur undir mcrki þeirra, er herjast gegn áfenginu, og strengið þess heií, að verða sjálf ötulir liðsmenn í þeirri harállu. Borgflrðingar halda licim af fundinum M. J.

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.