Æskan - 01.09.1950, Side 3
Það var ekkert annað en draumur.
„Vaknaðu nú strákur og flýttu þér og náðu* í
hrossin, þú skalt koma með Blakk, Skjónu og .larp.
Flýttu þér nú einu sinni, en farðu samt varlega að
honum Jarp, svo að hann slái þig ekki. Beizlin eru
úti í skemmu og hrossin ej’u upp í Stóra-Gili.“
Það er naumast að það er asi á liúsbóndanum, og
það á sunnudagsmorgni, liugsa ég með mér um leið
og ég klæði mig í garmana, grútsyfjaður og ólundar-
legur yfir ónæðinit. Hvert ætli húsbóndinn ætli sér
nú að þjóta? spyr ég sjálfan mig um leið og ég sé
stóru tána á mér gægjast út um sokktotuna. Ég fer
aftur úr sokknum og kalla á Lisalottu vinnulconu,
liún er þýzk og kann lítið í islenzlcu, en það gerir
ekkert til, þvi að við erum aldrei í vandræðum að
skilja hvort annað.
Lísalotta kemur inn með mjólk og brauð og gefur
mér í skyn, að ég eigi að drekka og flýta mér.
Ég sýni henni sokkinn og hún hristir höfuðið,
tekur liann og réttir mér aðra heila sokka.
Gunna litla systir mín kemur inn með smalahund-
inn Trygg á eftir sér. Hún segir mér í óspurðum frétt-
um, að húsbóndinn ætli út að Hvammi á uppboðið.
Iiann ætlar að reyna að kaupa rakstarvélina, sem
verður boðin upp.
„Þá fæ ég að vera með rakstrai’vél í sumar,“ segi
cg eiginlega meira til að stríða systur minni heldur
en að ég hafi nokkra vissu fvrir, að mér verði trúað
til að vera með vélina.
„Nei, góði minn, þú verður látinn i rökin, ég ætla
að fá að vera með vélina, ég skal meir að segja
spyi’ja að því,“ svarar hún og þýtur lit.
Eg hef nú lokið við að lclæða mig, drekk úr mjólk-
urglasinu í .flýti og sting nokkrum hrauðsneiðum i
vasann, kalla þvi næst á Trygg og hleyp af stað.
Tiyggur glefsar í beizlistauminn, af einlægri kæti
yfir að fá að fara með mér, og sjálfur er ég eitthvað
svo kátur og léttur á jnér, að ég hleyp í spretti upp
eftir hlíðinni. Einmana spói lirökklast lafhræddur
á undan jnér eftir götutroðningnum, en hann hopp-
ar þó að lolcum út af götunni og hreykir sér upp á
Ói úJlan P ólsiji
arnan a
9{ úsavílz.
•fo Barnastúkan Pólstjarnan á Húsavík, sem er undir stjórn Siguráar Gunnarssonar skólastjóra, lék á síðasta vetri nokkrum
sinnum Brúáarslæáuna eftir frú Ragnheiái Jónsdóttur. Pótti leikurinn takast mjög vel, og eru myndir þær, sem hér eru birtar
af leikendunum. — Gaman væri aá geta birt fleiri myndir frá starfi barnastúknanna, og hefur oft veriá á þaá minnst, en
þvf miáur hefur því veriá lítill gaumur gefinn.
83