Æskan - 01.09.1950, Side 19
ÆSKAN
Útkoma þessa blaðs hefur dregizt
lengur en ætlað var, sem stafar af því,
að pappír sá, sem pantaður var í blað-
ið, var síðbúnari til afgreiðslu en búizt
var við í upphafi. Slíkt er mjög baga-
legt, ekki hvað sízt fyrir þau blöð, sem
sjaldan kóma út, en við verðum nú að
sætta okkur við ýmsa örðugleika á
þessum tímum og vonum við, að kaup-
endurnir taki þessu með jafnaðargeði
og reyni að sætta sig við orðinn hlut.
En nú er pappírinn kominn, og vænt-
ir afgreiðslan þess, að Æskan nái sér
bráðlega upp þannig, að blaðið geti
komið út hér eftir á réttum tíma, eins
og hún hefur venjulega gert.
En þar sem þetta er september- og
októberblaðið og það kemst ekki til
kaupenda fyrr en í fyrsta lagi upp úr
miðjum nóvember, og þar sem svo
stutt er þá til jóla, þá höfum við tekið
þá ákvörðun að þessu sinni, að láta
sameina nóvember- desember- og jóla-
blaðið í eitt og sama blað, en séð verð-
ur um, að lesmál þessa blaðs verður
ekki minna en þótt blöðin hefðu kom-
ið út sitt í hverju lagi.
Þótt flestum ykkar, kæru kaupendur,
sé það kunnugt, þá viljum við samt
benda á það, að þetta verður síðasta
blaðið, sem sent verður skuldugum
kaupendum. Þess vegna er það mjög
áríðandi, að þið, sem ekki hafið enn
þá sent borgun, gerið það nú þegar.
Með því losið þið blaðið við mikinn
aukakostnað, sem póstkröfusendingum
jafnan fylgir, og ekki síður afgreiðsl-
una við mjög mikið aukið erfiði.
Þeir, sem hafa fengið áskriftalista
að Ljóðabók dr. Sig. Júl. Jóhannesson-
ar, eru vinsamlega beðnir að senda
bann strax og þeir hafa lokið söfnun.
Nýir kaupendur að næsta árgangi fá
næsta jólablað í kaupbæti, ef þeir senda
borgun (15 krónur) með pöntun.
Ef þið verðið fyrir vanskilum á blað-
inu, þá látið ekki bíða að kvarta, því
að einstök blöð geta þrotið áður en
varir.
Leiðrétting.
í „Veiztu það?“ i síðasta blaði var
prentvilla. Biskupsstóllinn fluttist til
Reykjavíkur árið 1785.
VEIZTU PAÐ?
Svör:
1. Leifur Eiriksson og skipsmenn
lians, sem komu frá íslandi.
2. Ríkin eru 48.
3. Missisippi, Missouri, Colorado, Rio
Grande, Ohio.
4. Plútó.
5. Árið 1845 í Kaupmannahöfn.
5. Englendingar.
7. Júpiter.
8. Amelia Earliart.
9. Árið 1930.
10. 10. Sveinn tjúguskegg, ásamt Knúti
syni sínum.
11. Napóleon fæddist á Korsíku, flutt-
ur til Elbu i varðhald og síðar til
Helena, þar sem hann dó.
☆
SVÖR.
Cátur.
Svör: 1. Febrúar, af þvi að hann er
stytztur. 2. Ryk. 3. Hegrinn (kolalyftan
i Rvík, sem er nefnd hegri). 4. Það er
oft litið yfir þau. 5. Af því að þær eru
færri. 6. Móðir þín. 7. Svæfill. 8. Þegar
búið er að flysja þau. 9. Snjórinn getur
komið jafnt alla daga.
Hvað haita löndln.
1. Ungverjaland. 2. Austurríki. 3. Lux-
emborg. 4. Vatikanrikið. 5. Bolivía. 6.
Brasilia. 7. Ecuador. 8. Argentína. 9.
Bandaríkin. 10. írak. 11. Japan.
Eldspýtnalelkur.
Takið fremstu eldspýtuna og leggið
hana lengst til hægri. Með þvi móti
verður eldspýtan, sem fyrst var í miðið,
nú fremst.
Kemur út einu sinnl í mánuðl, og auk
þess fá skuldlausir kaupendur lit-
prentað jólablað.
Gjalddagi í Kvík 1. apríl. Úti um land
1. júlí ár hvert.
Sölulaun 20% af 5 eint. 25% ef seld eru
20 eint. og þar yfir.
Afgreiðsla: Kirkjutorgi 4 (Kirkjuhvoll).
Sími 4235.
Utanáskrift: Æskan, pósthólf 14, Rvík.
Ritstjóri: Guðjón Guðjónsson, Tjarn-
arbraut 5, Hafnarfirði. Sími 9166.
Afgreiðslum.: Jóhann Ögm. Oddsson,
Skothúsvegi 7. Sími 3339.
Útgefandi: Stórstúka íslands.
Ríkisprentsmiðjan Gutenberg.
Clöggtkyggnl.
Ráðningar: 1. Ástralía, 2. Svíþjóð, 3.
Sjáland, 4. Suður-Ameríka, 5. Afríka.
☆
Kvittun.
Gjafir og áheit til Æskunnar hafa ný-
lega borizt sem hér segir:
Guðrún Jónsdóttir, Stökkum,
Rauðasandi................ kr. 20,00
ívar Árnason, Skógarseli,
S.-Þing......................— 10,00
Sigriður Guðjónsdóttir, Sól-
hól, Norðfirði ............. — 40,00
Sigriður Björgvinsdóttir, Mið-
fjarðarseli, N.-Múl..........— 25,00
Sigurlina Sigurgeirsdóttir,
Hólavegi 20, Siglufirði .. — 135,00
Kr. 230,00
Við þökkum peningana og liin vin-
samlegu bréf, sem þeim fylgdu.
Jóh. Ögm. Oddsson.
99