Æskan - 10.08.1900, Side 4
88
Síðan hætt var að trúa því, að Neptunus
væri til, hafa sjómenn haft þann leik, er
þeir hafa farið yfir miðjarðarlínuna, að ein-
hver sjómaðurinn á skipinu hefir klætt sig
í afarfáránlegán búning, tekið þríarmaðan
fork í hönd og þótst vera Neptunus, og
hefir þótt að þvi ínikið gaman. Frh.
SKBÍTX.TTE.
Ferðamaður nokkur kemur í gamalt klaustur
og sér tunnu íulla af rigningarvatni undir klaust-
uiveggnum.
„Þetta et- víst heiiagt vatn;‘, segir hann háðs-
lega við gamlan mann, sent er að sýna honum
klaustrið.
„Já, mjög heilagt,“ svarar hinn án þess að láta
sér bregða hið minsta. „Því það er ekki nema
hálf klukkustund síðan það kom ofan frá himn-
um.“
„Hann húsbóudi þinn er víst harður við þig?“
Skóaradrengurinn: „Já ef það vœri: hann
mundi hitta eyrun á mér þó hc.nn hefði aftur
augun.“
Stúlkan: „Hvernig stendur á því, að þér hafið
sloppið lífs af þar sem þér hafið verið innan um
þessar mannœtur og villimenn?11
Ferðamaðurinn: „Jú sjáið þér til. Eg var |
svo feitur og ljúffeugur, að mannœturnar vildu
geyma mig til sunnudaganna, en vikuna á und-
an slapp ég ávalt burtu með einhverju móti.
Nágrannakonau: „Hversvegua horfið þér sí
og æ þarna norður eftir?“
IJnga konau: „Jú, maðuriun minn vinnurþarna
í sprengipúðurverksmiðjunni, svo ég býst við á
hverju augnabliki, að sjá hann koina fljúgandi
hingað.“
Ferðamaðurinn:
hér?“
Heimamaðurinn: „Já, ef það væri. Einu
sinni rigndi svo mikið, að það stytti hreint ekki
upp aftur.“
Faðirinn: „Hvaða tíma hafið þið haft í skól-
anum í dag.“
Mangi: „Tíma?“
Faðirinn: „Já, veiztu ekki, hvað þið liafið
gert í dag?“
Mangi: „Jú, það veit ég reyndar.“
Faðirinn: „Eftir því köllum við tímana. Hvaða
tíma hafið þið svo haft?“
Mangi: „Skriftartíma, reikningstíma og skamm-
arkrókstíma.“
Kennarinn: „Heturðu sagt mér, hvað ,ekkert‘
er?“
Drengurinn (beikis sonur): „Það er sponsgat,
sem engin tunna er utan um“.
Prófessorinn: „Lísa litla, þekkir þú mig
ekki?“
Lísa: ,.Nei“.
Prófessorinn: „Hvað er þetta, ég sem var
guðfaðir þinn“.
Ræðumaðurinn (grobbinn): „regar ég talaði
síðast, streymdu tárin niður kinnarnar á tilheyr-
endum mínum.“
Kunningi hans: „Aumingja tilheyrendurnir,
mikið skelfing hlýtur mennina að hafa dreymt
voðalega."
„ÆSK AN“
kemur út tvísvar í máuuði. og auk þess Jólablað (skrautprentað
með myndum), 25 tölublöð alh. Kostur í Reykjavik J kr., úti
um land kr. 1.20. BorgÍBt í Apríl mámiði úrhvert. Sölulaun
I/5, gefin 11 f minst 3 eint.
ÞORVARÐUR ÞORVARÐSSOX j ientnri, ÞingholUstrœti
4. annuBt útsendingu blaðsins og alla ufgre ðBlu. tekur & móti
borgun og kvittar fyrir o. f. frv.
Rignir ávalt svona voðalega
Aldar-prentemðja. — Papjdrinn frá Jöní ÓlafsByni.