Æskan

Árgangur

Æskan - 23.01.1901, Síða 1

Æskan - 23.01.1901, Síða 1
ÆSK AN. Eignarrétt hefir Stór-Stúka íslands (I. O. G. T.) 23. JAN, 19 0 J, Ritstj 6ri: Ií j á 1 m a r Sigurðsson, 7. TBL, IV. ÁRG. Ný öld, nýtt árí Gleðilegt ár og gleðilega öld! kæru börn! Ég viidi, að ég gæti á þessu augnablikinu bent ykkur betur en nokkru sinni áður á fegurð þá, sem er í kringum ykkur í öll- um hlutum, smáum og stórum, bent ykk- ur á hönd föðursins á himnum, sem ræður lífi allra skepna um víða veröld. Fyrir aftan oss er umliðinn tími, liðin ár, liðin heil öld, sem aldrei kemur aftur, en fram undan okkur er nýr tími, ný öld, og á henni megum vér vera viss um, að guð faðir okkar muni enn sem fyr veita oss vernd og blessun í smáu og stóru. — Sól, tungl og stjörnur eru hinar sömu og áður, en þó er alt orðið eins og nýtt og á að verða nýtt með nýju öldinni. Allir, sem gleymdu að læra gott og gagnlegt til munns og lianda á görnlu öldinni verða nú að vakna og herða sig. Litlu börnin eiga með tímanum að verða fullorðnir menn, sið- prúðir og góðir menn, duglegir menn, góð- viljaðir og hjartanlegir í umgengni hver við aðra, glaðværir í lund, hugaðir og vongóðir. — Um margar þúsundir ára heflr guð fætt fugla loftsins og klætt blómin á jörðinni og alið önn fyrir öflum börnum sínum. Hann gleymir heldur ekki okkur á nýju öldinni. Stundum getur verið, að okkur þyki kalt og dimt, en hlýju og björtu stund- irnar verða því fleiri, — það getur vel ver- ið, að sum ykkar eigi mjög fátæka foreldra en þið verðið þó rík, ef þið lærið, að verða dugleg og góð börn. „Æskan“ óskar ykkur nú öllum gleðilegs árs, Hún vili benda ykkur á þá dýrð, sem er allstaðar í kring um ykkur bæði vetur og sumar, faliega landið, sem við búum á, sem er ef til vill eitthvert fallegasta land- ið í heiminum, þó við séum fátækari en margar aðrar þjóðir. „Æskan“ vildí geta gefið ykkur öllum nýársgjöf, en hún heflr ekki annað að bjóða ykkur, en biðja ykkur að elska guð, föður allra manna, föður hinna ungu og hinna gömlu um allan heim, að elska foreldra ykkar og alla rnenn, og sýna öllum velvilja og vináttu og að elska landið okkar, inn- dælu fjöllin okkar, árnar og dalina, himin- inn og hafið sem er skínandi bjart, stjörnu dýrðina og norðurljósin, sem óvíða eru fegri nokkurstaðar á jörðinni. — Ef þið elskið þetta þrent getið þið öll orðið gæfumenn, og það eins þó fötin ykk- ar séu núna bætt og borin. — Afar rnörg góð og dugleg fátæklingabörn, vnrða sjálf- sagt einna mestu hamingjumennirnir á nýju öldinni. ————<HKX>-------- Trúr yfir litlu. í búðarglugganum hjá honum Petersen kaupmanni hékk lengi auglýsingaspjald með þessari áritun: „ Snúningapiltur getur fengið liér atvinnu.“ Stundum var auglýsingin

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.