Æskan

Árgangur

Æskan - 23.01.1901, Blaðsíða 2

Æskan - 23.01.1901, Blaðsíða 2
tekín ofan; en að hálfum eða heilum degi liðnum var hún sett upp aftur, og menn voru farnir að stinga saman nefjum og segja hver við annan: „Það er spaugi- legur náungi, þessi Petersen. Skyldi hann nokkurn tíma fá snúningspilt, svo honum líki ?“ En það var nú af sérstökum ástæð- um þetta, að auglýsingin var stundum tekin ofan og að vörmu spori fest upp aftur. Friðrik litli, sonur vagnasmiðsins, gaf sig fyrst frarn. Hann tók strax til starfa, og alt gekk nú ágætlega, þangað til kl. 3 um daginn. Pá var hann sendur upp á loft, þar sem mýsnar og köngulærnar höfðu hi- Trýli sín: „Uppi á loftinu stendur kista, sagði Peter- sen, „og átt þú nú að laga til í henni. Hún stendur á miðju gólfi. Fiýttu þór nú að þessu, svo að þú verðir því fyr húinn með það. “ n Jú, jú,“ hugsaði Friðrik með sér, þegar hann kom upp á loftið, „þarna stendur kistan. En hvað er nú í honni? Ekkert annað en bognir naglar og ryðgaðar skrúf- ur, brotnar skrár og þar fram eftir götun- um, í stuttu máli eintómt rusl, sem ekkí er einu sinni svo mikils virði, að það geti borgað sig að fara að eiga neitt við það. Og svo bætist nú þar ofan á, að hér er ekki vært fyrir músagangi. og það þykir mór nú ekki neitt sérlegt sælgæti. Hvað ætli hann sé annars að hugsa, hann Peter- sen? Nei, hór verð ég ekki lengur.“ Stundarkorni síðar sá kaupmaðurinn Frið- rik út um búðargluggann. „Nú, nú, Friðrik litli, ertu nú búinn að laga til i kistunni?" spurði hann. „Eg fann ekkert, sem neitt gagn var í,“ svaraði Friðrik, „ekkert nema ónýtt rusl, gamla nagla og þess háttar." „Einmitt það,“ mælti húsbóndi hans al- varlega; „það voru einmitt þessir gömlu naglar og ait þetta gamia dót, sem ég ætl- aði að láta laga til og koma því fyrir hverju út af fyrir sig. Hefirðu ekki reynt það?“ „Nei, það var svo dimt uppi á loftinu." „Jæja“, svaraði Petersen, „það er gott. Nú ætla óg að biðja þig að hlaupa út í bæ fyrir mig. “ Friðrik var snúningaliðugur og vildi því gjarnan gera þetta og vera fljótur að því. Kl. 6 var kallað á hann að skrifstofuglugg- anum og þar voru honum útborguð dag- launin; en jafnframt var honum líka sagt, að hann þyrfti ekki að koma aftur. Frið- rik varð hálf-ólundarlegur á svipinn, gaut hornauga upp til þakgluggans og labbaði svo burt. Snemma morguns, daginn eftir, kom auglýsingin aftur á gluggann. Karl, sonur bakarans, gaf sig þá fram, og þegar Peter- sen sá, að hann var í hreinum og þokka- iegam fötum. tók hann hann. Hann hafði nóg að gera allan daginn, þangað til hálfri klukkustund áður en loka átti búðinni. Fá var hann sendur upp á loftin, iil að laga til í gömlu kistunni. Hann var ekkert smeykur við mýsnar; en þegar hann sá alt ruslið í kístunni, fór hann að hugsa sig um. Fó tók hann að leita í því og fann á endanum dáiítið af gömlu járni, nokkura beina nagla og fáeina lykla, sem hann hélt að mundi mega nota. „Fetta er nú alt og sumt, sem gagn er að,“ sagði hann, þegar hann kom ofan aft- ur. „Ilitt var alt ryðgað og brotið." „Jæja“, sagði Petersen, og svo sendi hann hann á póststofuna og sagði honum að koma ekki aftur morguninn eftir. En kvöldið eftir fókk hann kaup sitt, og auglýsingin um snúningspiltinn kom í gluggann aftur. Nú kom Vilhjálmur, sonur járnsmiðsins.

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.