Æskan

Volume

Æskan - 24.01.1903, Page 2

Æskan - 24.01.1903, Page 2
30 ÆSKAN. við hana. Hún var að sönnu ekki tilflnn- ingarlaus eða harðbrjósta, en hún var knöpp; hún reiknaði ekki út, hvað mikið drengirn- ir þyrftu að borða, en hún reiknaði út, hvað lítið þeir gætu koinist af með, og svo vildi svo illa til, að í því efni var alt af mikill munur á hennar útreikningi og þeirra. En til þess að gera henni ekki rangt til, verður þó að geta þess, að hún átti engu betra sjálf, og doktorinn því síður. Hon- um var líka síkalt eins og piltunum, en hann kendi æfinlega veðrinu um það, og gieymdi því, að til er eitt ágætt ráð til að verjast kulda, sem sé það, að kynda vel í ofninum. Ekki get eg sagt neitt um, hvort frú Pinniker notaði sér afskiftaleysi doktorsins af innanhússstörfum þannig, að hún drægi nokkuð undan handa sjálfri sér til að lifa á í ellinni. Það eitt er víst, að doktorinn grunaði hana aldrei um það, og svo er þýð- ingarlaust að ætla sér að fara að hreyfa neitt við því. Þótt veturinn sé langur, tekur hann þó alt af enda, og það jafnvel líka í skólunum. Og á sumrin var ICloverbobs óneitanlega inndæll staður, einkum þegar piltarnir voru dálítið farnir að gieyma veru sinni heima í leyfinu og öllum þægindunum þar. Dokt- orinn átti ágætan garð, og spruttu í hon- um alls konar dýrðlegir ávextir: jarðarber, epii, perur og plómur. Hafði eigandinn veitt piltunum ótakmarkað leyfi til að eta af ávöxtunum eins og þeir vildu. Hann ]eit svo á, að ávextirnir væru ætlaðir til átu, og að skólapiltarnir í Kloverbobs væru ætlaðir til að eta þá. Þetta fanst honum öldungis náttúrlegt. En frú Pinniker var á annari skoðun, og kom hún til hans með svo margar kærur yfir því, að óþroskaðir a- vextir fengju ekki að vaxaí næði og að þrosk- aðirávextir værubrúkaðir i óhófi, svo að hún fékk leyfi til að læsa garðin um og gefa. piltu num úr honum, eftir því sem henni virtist þörf á. Þeir elztu meðal piltanna voru þegar staðráðnir i að hefna s:n á henni fyrir þetta. Var komið fram með tillögur um að stela gleraugunum hennar, drekkja kettinum hennar o. s. frv.; en allar voru þær feldar; þóttust piltar of miklir „herrar" til að fremja slík strákapör. En það var þeim öllum Ijóst, að eifthvað varð að gera, og þegar viljinn er góður, vantar sjaldan ráð, og sannaðist það einnig hér. Frú Pinniker hafði nú þegar tínt eplin af trjánum og komið þeim inn. Lágu þau nú í allra mestu reglu í herbergi einu í öðrum enda hússins. Inn í þetta herbergi sáu piltarnir alt þetta góðgæti hverfa, og aldrei koma út aftur; frú Pinniker hafði lykilinn og bar hann ásamt öðrum lykium við belti sitt. Lykillinn var því ófáanlegur, og án hans voru eplin ófáanleg; vissu þó piltarnir, að doktorinn, sem átti eplin,. hafði ekkert á móti að þeir fengju þau. Nú bar eitt sinn svo við, að piltarnir voru að leika sér, og ætlaði þá einn þeirra að fela sig svo að hinir gætu ekki fundið sig. Klifraði hann upp á húsþakið og nið- ur í einn af reykháfunum. En áður en hann vissi af, hrapaði hann niður i herbergi eitt uppi á loftinu, og kom niður rétt hjá opi, sem var á loftinu. Hann var alveg ringlaður fyrstístað; en það leið fljótt frá, og tók hann þá að litast um. Hálfdimt var inni í herberginu, því að vafningsviður óx upp með gluggunum að utanverðu; en brátt varð hann þess þó var, að hér voru

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.