Æskan

Volume

Æskan - 01.05.1907, Page 4

Æskan - 01.05.1907, Page 4
Æ S K A N. 68 Tekstinn var þessi: Að /z'/a er mér Kristur. Allir þessir þrir menn voru sómi kirkju sinnar og þjóðar, og prýði sinn- ar aldar að lærdómi og framgöngu allri. Minning þeirra lifir meðal þjóðarinnar og ber birtu fram á komandi öld. Að lokum skal þess getið, að á þess- um 60 liðnu árum hafa útskrifast af prestaskólanum um 250 kandidatar. Fr. Fr. Björkin og stjarnan. (Saga eftir Z. Topelius). ]Frh.]. Einhvern dag komu þau að kross- vegi; vissu þau þá ekki til hverrar hand- ar þau ætlu að fara. Þá sáu þau tvo smáfugla, er sungu í trénu við veginn lil vinstri handar. »Komdu«, sagði bróð- irinn, »þessi vegur er víst sá rétti; það lieyri ég á kvaki fugla þessara. Þeir eru sjálfsagt guðs englar, sem eiga að leiðlieina okkur«. Þau héldu nú áfram og llugu fuglarn- ir á undan þeim af grein á grein, en ekki fljólar en svo að vel máttu þau fylgja þeim eftir. Börnin álu ]>er og aldini skógarins, drukku úr skógarlind- unum og sváfu um nætur á mjúkum mosa. Það var séð svo dásamlega fyrir þeim; altaf fengu þau nóg að ela, og altaf fundu þau skjólríka næturstaði. Þau gátu ekki gert sér grein fyrir því; en altaf, er þeim varð lilið á fuglana, sögðu þau: »sjá, þarna eru guðs engl- arnir, sem fylgja oss!« Svo héldu þau örugg áfram. Að lokum varð litla stúlkan þreytt af hinni löngu göngu og sagði við bróður sinn: »Hvenær eigum við að fara að svipast eftir stóru björkinni okkar? Hann svaraði: »Ekki fyr en við heyr- um það mál talað hringinn í kring um oss, sem þau töluðu faðir okkar og móðir«. Aftur héldu þau áfram norður og vestur á bóginn; sumarið var nú lið- ið og kalt fór að verða í skógunum. Stúlkan innti aftur til um björkina, og aftur svaraði sveinninn, að þau yrðu að hafa þolinmæði. Landið, sem þau ferð- uðust um, breytti smámsaman úlliti sínu; áður bafði það vcrið flatt og slétt, nú voru þau komin að háum íjöllum, og voru þar fljót mörg og stöðuvötn. Stúlk- an spurði: »Hvernig eigum við að kom- ast yfir bröttu fjöllin?« Sveinninn svar- aði: »Eg skal bera þig«, og hann bar lianá. Aftur sagði stúlkan: »Hvernig fáum við komist yfir fljólin og stöðu- vötnin?« Sveinninn svaraði: »Við skul- um róa«, og lnmn réri yfir íljótin og vötnin, því hvar sem þau komu að á eða vatni, fundu þau smábát, cr virlist vera ællaður handa þeim. Yfir sumar mjóar ár synti drengurinn með systur sína; var eiiis og bylgjurnar bæru þau uppi; enda llugu Cnglar guðs með þeim í fuglshami, og greiddu þeim veginn. Eilt kvöld komu þau dauðþreytt að bóndabæ mildum, sem reistur var á brunarústum. Fyrir utan slóð barn eilt og flysjaði rætur.

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.