Æskan

Árgangur

Æskan - 01.02.1921, Blaðsíða 7

Æskan - 01.02.1921, Blaðsíða 7
M s \i A M 1/ einn míns liðs. Og nú ætla ég að segja þér noltkuð, seni þú ef lil vill ekki skilur. Viltu setjasl á :hné mér ‘ og hlusta á?« Anna lilla settist á hné honum, Og gamli maðurinn strauk hendinni yfir glóbjart liárið. »Ég hefi aldrei ált neinn, sem mér liefir þótt vænt um eða hefir þólt vænt um mig«, tók hann til máls, »og þess vegna heíi ég oft verið kald- ur og vondur við aðra. Éegar ég var barn, þekti ég hvorki föður minn né móður; þau voru bæði dáin áður en ég mundi eftir mér. Allir voru liálf- vondir við mig og sumir jafnvel börðu mig. Af þvi varð ég vondur við aðra. En oft, þegar ég hefi verið einn, heii ég þráð að finna litla hönd klappa mér á kinnina«. Og lár hrundu ofan á kinnina á Önnu. »ÉÚ mált ekki gráta á jólunum«, sagði hún lágt. »Á jólunum?« lók hann upp eftir henni eins og í leiðslu. »Ég hefi aldrei þekt jól. .Allir dagar hafa verið mér jafnkaldir og dimmir. Hjá mér hafa aldrei logað jólaljós, og ég hefi stund- um á sumrin breitt fyrir gluggana hjá mér, til þess að sólin gæli ekki skinið inn um þá. Hér heli ég lokað mig inni og safnað auði. Mér liefir fundisl peningarnir vera vinir mínir, og þeir væru þó trúir. — En þrátt fyrir það, að ég hefi forðast ljós og yl, hefi ég all af þráð það heitt, — og helzt þegar ég hefi unnið mest á móti því, að láta það skína inn til mín. — En nú finst mér, að svolítill sólargeisli hafi vilst inn til mín í kvöld«. Hann þrýsti Önnu lillu að sér og kysti hana á ennið. Anna lagði báðar hendurnar um hálsinn á honum og horfði innilega framan í hann. »Mér skal alt af þykja vænl um þig, — alt af«. »Jæja, barnið mitt«. — Og tárin streymdu niður kinnar hans. Alt í einu mundi Anna eftir því, að það voru jól. Hún lioppaði úr fangi hans og niður. á gólíið. »Eigum við ekki að skemta okkur á jólunum?« »Jú, kannske. En mér hefði þótt vænst um að þú hefðir setið á hné minu hérna í kyrðinni«. »Æ-i nei«. »Jæja þá«, sagði gamli maðurinn brosandi. Hann stóð upp og tók í höndina á Önnu litlu. Skömmu síðar var glatt á hjalla niðri hjá mömmu Önnu litlu. Gamli maðurinn sal þar á stóli með Önnu litlu á hnénu og var að segja henni sögu, en mamma hennar var að bera á borðið kaffi og jóla- brauð. — Svo fóru þau öll að syngja jólasálma. Upp frá þessum degi varð Anna litla fósturdóttir ríka mannsins. En nú er hann dáinn og Anna litla komin út í veröldina og orðin bæði gömul og hrum«. — — Þannig lauk gamla konan sögu sinni. Helgi leit framan í hana og sagði: »t*ú ert víst hún Anna litla«. »Heldurðu það?« sagði hún og brosti. — »En nú man ég ekki fleiri sögur í kvöld«. Helgi gerði sig ánægðan með það, kvaddi gömlu konuna og hljóp í einum spretti heim til sín. En gamla konan sat eftir með prjónana sína og horfði brosandi á eftir honum.

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.