Íslensk endurreisn - 04.09.1933, Page 3
ÍSLENSK ENDURREISN
og atvmnumálum, sem ekki er lífvænt
að jafnri aðstöðu.
Krafa allra sanngjarnra manna verður
því sú, að Alþingi taki mál þetta tii með-
ferðar og nemi úr lögum ákvæðið um
skattfrelsi samvinnufjelaganna.
Afurdasalan
mnanlands.
Hið liræðilega ólag sem verið hefir á
afurðasölunni innanlands, er mikið al-
varlegra mál en menn alment hafa gert
sjer grein fyrir.
A mörgum sviðum nemur dreifingar-
'kostnaðurinn meiru en sjálfur framleið-
andinn fær fyrir vöru sína. Dæmi: Fram-
kvæmdasamur maður kaupir sjer vjel-
hát til útgerðar frá Reykjavík, leggur til
veiðarfæri, olíu og annan útbúnað og
greiðir skipverjum kaup. Fiskinn sækir
hann vestur í Jökuldjúp og leggur hann
á land á bryggju í Reykjavík. Þar selur
hann fiskinn fyrir 7 aura hvert kíló í
smáfiski, en 10 aura í ýsunni. Þeir sem
þann fisk kaupa eru ekki nefndir kaup-
menn, svo sem venja er til um þá sem
gera sjer verslunarrekstur að atvinnu,
heldur nefnast þeir „fisksalar" og mun
nafnið orðið til af því, að þeir fá fiskinn
svo að segja gefinn í samanburði við það
verð sem þeir selja hann fyrir til bæjar-
búa.
Þessir svonefndu fisksalar færa svo
f iskinn af bryggjunni út í götur bæjarins,
en sá flutningskostnáður er dýr, því að
nú kostar fiskurinn ekki lengur 7 aura
kílóið, heldur 30 aura og ýsan er komin
úr 10 aurum upp í 40 aura hvert kíló. Með
öðrum orðum þá fær framleiðandinn
314 eyri fyrir hvert fiskpund en fisksal-
ínn 15 aura og Ieggur fisksalinn þannig
IIV2 eyri á hvert fiskpund eða um 430%.
Það er nú alveg óskiljanlegt, hvernig
slíkt okur getur þrifist, en skýringin ætti
að vera sú, að framleiðandinn, þ. e. út-
gerðarmaðurinn sje ánæður og vel liald-
inn af söluverði sinu og að fólkið, sem
þessa gífurlegu álagningu greiðir liafi
nóga fjármuni handa á milli. En ef nú
hvorugt þessara atriða væri fyrir hendi,
sem er sannfæring þess, sem línur þessar
ritar, þá er hjer um meira framtaksleysi
að ræða en bolað verði.
Bilið milli framleiðenda og neytenda
verður að brúa. Fisksalarnir, í þeirri
mynd sem þeir hafa birst, eiga að hverfa
úr sögunni.
Fiskframleiðandinn á sjálfur að ann-
ast dreifingu fiskjarins og neytendurnir
eiga ekki að telja eftir sjer að nálgast
fiskinn á markaðstorgið. Báðir aðilar
mundu græða á því stórfje, framleiðand-
inn fengi tvo peninga fyrir einn og neyt-
andinn tvo fiska fyrir einn. Og þjóðar-
heildin græddi á því að hinir mörgu sem
Islenska rúgmjðliö.
Haíld þér athugað hvað
læknar segja um rúgmjölið ?
Jónas Kristjánsson segir m.a. í Mgbl. 2.8. '33:
„En skortur á fjörefni þessu (BI) liér landi stafar að minu
áliti af því, að flestar þær korntegundir sem við flytjum inn,
eru fluttar malaðar til landsins, og eru því meira og minna
fjörefnasnauðar, en einkum snauðar af fjörefni BI“.
„Yið höfum enga liugmynd um, hve mjölið er gamalt, sem
við kaupUm og notum til matar. En það er víst, að við geymslu
á mjölinu eyðast fjörefnin úr korninu, svo mjölið verður mjög
lélegt til fæðu, og getur jafnvel orðið svo óhollt, að það valdi
sjúkdómum. Er það skoðun mín, að slíkt eigi sér stað liér á
landi.
Páll Kolka segir í Mgbl. 23.8. '33 m. a.
„Besti B fjörefnagjafinn áður fyr var ásamt mjólkinni flat-
brauðið, sem var hakað í nokkurar mínútur að eins, húið til úr
nýmöluðum rúgi og hratið látið fylgja.“
Danski læknirinn Dr. Hindhede ásamt mðrgnm ðSrnm
merknm beilsnfræðingnm
heldur því álcveðið fram, að rnikið sé gert að þvi að hreinsa
mjöl með ýmsum eitruðum efnum, til þess að það þoli lengur
geymslu og til þess að gera það hvítara og drepa i því maur.
Tpygging íslendinga fyrir þvi að fá nýmalað,bætiefnaríkt,
óblandað og óskaðlegt rúgmjöl, er það að kaupa
einungis íslenslca rúgmjölið, sem daglega er af-
greitt nýntalað til okkar frá Kornmyllu Mjólk-
urfélags Reykjavíkur.
Munið, að við seljum að eins hið nýmalaða og bætiefna-
ríka, íslenska rúgmjöb.
Verslunin LIVERPOOL
Hafnarstræti 5.
Sími: 4201.
Ásvallagötu 1.
Sími: 4203.
Laugavegi 76.
Sími: 4202.
Baldursgötu 11.
Simi: 4204.
Auglýsið í íslenskri Endurreisn.
Simi
1395.
Kol.
Sjóndepra og sjónskekkja.
Ókeypis rannsókn af okkar út-
lærða „Refraktionist". Viðtals-
tími: Kl. 10—12 og 3—7.
F. A. Thiele.
Höfum fengið liin eftirspurðu Steamkol B. S. Y. A.
Hards (Doncaster), sem ávalt hafa reynst þau bestu.
Ennfremur hnotkol, sömu tegundar og koks. Gerið
liaustinnkaupin á meðan á uppskipun stendur. Verð-
um að skipa upp næstu daga.
Austurstræti 20.
Kolaverzl. Guðna & Einars
Ábyrgðarm.: Gísli Sigurbjörnss.
Sími 1595 (2 línur).