Nýtt land - 25.04.1941, Page 4
NÝTT LAND
Föstudaginn 25. apríl 1941.
í fáum orðum.
Framh. af 3. síöu.
hljómgrunn hjá þeim „ábyrgu“,
sem völdin hafa.
Eftir vísitölunni aö dæma hafa
íslenzkir peningar falliö um þriöj-
ung síðan voriö 1939. En í raun og
veru er verðfall þeirra meira.
Tvennt hefur haldið vísitölunni
niðri fram að þessu, lögbundinn
húsaleigutaksti og opnun vefnað-
arvöruverzlunar við Bretland.
Engar líkur eru til að hægt sé að
halda húsaleigu óbreyttri lengi hér
á eftir, og þegar gamlar birgðir
vefnaðarvöru í Bretlandi taka að
þverra — og þess er ólíklega langt
að bíða — verður ör hækkun á
vefnaðarvörunni. Þessar tvær
hömlur, sein helzt hafa verið á
verðhækkuninni og gengisfallinu,
verða því brátt úr sögunni, og
fylgir því þá brátt enn örari hækk-
un vísitölunnar (sem er raunveru-
legt gengisfall peninganna) en ver-
ið hefur, nerna sésrtakar ráðstaf-
anir verði gerðar, t. d. það, sem
sjálfsagt ætti að vera, að reyna að
gera íslenzku peningana óháða
þeim brezku.
Að öllu eðlilegu ðg heilbrigðu
ættu islenzkir peningar að vera að
mestu ófallnir i verði enn og „dýr-
tíð“ eigi óskapleg. Við eigum hinni
„ábyrgu þjóðstjórn" og hennar
ráðunautum dýrtíðina að þakka
eða kenna.
En vilja menn láta peningana ís-
lenzku verða verðlausa, eða vilja
menn það ekki ?
Aukning Fiskveiðasjóðs.
EÐAL merkari' mála, sem nú
hafa verið lögð fyrir Alþingi,
er frv. frá Sjávarútvegsnefnd til
laga um breytingu á lögum um
Fiskveiðasjóð. Eru höfuðbreyting-
arnar tvær frá núgildandi lögum.
Er önnur um stórum auknar tekj-
ur fyrir sjóðinn til aukningu stofn-
fjár hans og veltufjár. En hin er
um að lækka útlánsvöxtu sjóðsins
dr 5)4% í 4%- Þá er og sá tími,
sem lána má lengdur lítilsháttar.
Fiskveiðasjóður hefur fram að
þessu hvergi nærri getað fullnægt
þeirri þörf, er honum var ætlað
að fullnægja. Mundi það verða
miklu nær, ef þessar breytingar
ná fram að ganga, ef peningar
okkar falla þá ekki ofan í það að
verða einskis virði. En stefna sú,
sem á bak við frv. er, mundi þó
yera rétt: sú að koma upp vold-
ugum sjóði, er gæti fullnægt þörf
sjávarútvegsins til stofnlána.
STIMPLAR
FELAGSPRENTSMIÐJUNNAR
REZTIR
Frá útlöndum.
Frh. af 1. síðu.
borgina í Eritreu, Asmara, og að-
alhafnarborgina Massawa ekki
löngu þar á eftir. En síðan hefur
ekki margt af þeim spurzt í Eri-
treu. Höfuðborg Abysseníu, ^ddis
Abeba, tóku þeir og fáum dögum
eftir að þeir tóku Harrar, og töldu
þá, að ftalir heíðu ekki annað á
valdi sínu en einangraðar kast-
alaborgir. En ítalir hafa þar enn
meiri hluta herliðs síns ósigrað,
og mest lið í Dessye í Mið-Abyss-
eníu, frægri borg frá landvinn-
ingastyrjöld ftala suður þar fyrir
fáum árum. Meðan þetta lið er ó-
sigrað, er meginher Breta í Abyss-
eníu bundinn þar.
Önnur erlend tíðindi verða að
bíða þar til síðar.
BYGGINGARFÉLAG ALÞÝÐU.
Aöalfundur félagsins
vcröur baldinn þriðjudaginn 29. april kl. 8% siðd. í Alþýðuhús-
inu við Hverfisgötu. —
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Skuldlausir félagar fá aðgöngumiða á skrifstofu félagsins og
við innganginn.
STJÓRNIN.
RAFTÆKJA
VIDGERÐIR
VANDADAR-ÓDÝRAR
SÆKJUM & SENDUM
GLEÐILEGT
SUM AR!
Byggingarfélcuj Alþýðu.
GLEÐILEGT SUMAR!
Samband ísl. Sammnnufélaga.
GLEÐILEGT SUMAR!
Oliiwerzlun íslands li/f.
GLEÐILEGT SUMAR!
Slippfélagið í Reykjavík.
JAFNAÐA RMANNA FÉLA G
REYKJA VÍKUR
óskar öllnm meðlimum sínum og ís-
lenzkri alþýðu
GLEÐILEGS SUMARS
jað engar vélabilanii*,
| §em siiBiiriiiiigsoIiijiiKii verður iiui kennt, geta
átt sér stað, ef notaðar eru réttar tegfundir fra
Vacuuiu Oil Company
Olíverzlun Islands h.f.
(Aðalsalan fyrir Socony Vacuum Oil Co., Inc., New York).
GLEÐILEGT SUMAR!
LANDSSMIÐJAN.