Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.07.1935, Blaðsíða 5

Bjarmi - 01.07.1935, Blaðsíða 5
BJARMI 101 Prestastefnan 26.-28. júní 1935. Prestastefnan hófst me3 guðsþjónustu í dómkirkjunni. miðvikud. 26. júní kl. 1 síðd. Sra Friðrik Rafnar tók synSdus,:resta iil aliaris, en sra Bjarni Jóntson prófastur flutti stólræðuna, vakti hún margar og góðar minningar hjá gömlum s'knartörn- um hans. Því einmitt þann sama dag var 25 ára presisskaparafmæli hans. Fundarhöldin fóru fram í húsi KF.U.M. eins og mörg undanfarin ár, — og hóf- u,st kl. 4$ síðd. Kom þá þegar í 1 ’ós að prestastefnan var óvenjulega vel s Stt, — mun kirkjufundurinn og prestakallamálið hafa átt góðan þátt í því. Sátii £6 guðfræð- ingar fundinn þegar flest’r voru, og alcirei færri en 30. — Þrír voru danskir, urigur aðstoðarprestur frá Þórshöfn, sonur dr. Arne Möllers, og 2 óvígðir gaðfræðingar. — Þykir Færeyingum sjálfsagt að hafa 2 presta í Þórshöfn, þótt ekki sje þar nema rúm 4000 manns í prestakallinu. Aðalmálin fyrsta daginn voru ýmsar skýrslur biskups og barnahælisn fndar, tillögur um styrktarfje úr prestekkriasjóð og nefndarkosningar um líknarmál og prestakallamál. Um kvöldið flutti Ásm. prófessor Guð- mundsson erindi i dómkirkjunni er hann nefndi Kristur og þjóðlífið. Sra Árni Sig- urðsson annaðist morgunbænir kl. 91 árd. á fimtud. Á eftir flutti biskup skýrslu um messur og altarisgöngur liðið ár. Yfir 60 messur höfðu verið í þessum 6 pestaköllum, altarisgestatalan í svigum: Reykjavík og Laugarnes1 166 (1189), Ak- ureyri 80 (146), Isafjörður 71 (141), Hafnarfjarðarprk. 65 (231-, Útskálar 63 (136), Akranes 62 (132). 50—59 messur voru í 12 prestaköllum: Vestmannaeyja 59 (220), Stokkseyrar 58 (125), Bolungarvíkur 58 (66), Siglufjarð- ar 55 (16), Helgafells 54 (80), Arnarbælis 54 (65), Landprestakall 54 (36), Stóra- núps 52 (52), Hraungerðis 52 (50), Breiða- bólst. í Fljótshlíð 52 (45), Viðvíkur 52 (29), Súgandafjarðar 50 (22). 40—49 messur voru í 20 prestaköllum, 30—39 messur voru í 24 prestaköllum. 20—29 messur voru í 27 prestaköllum. og loks voru færri en 20 messur í 17 prestaköllum. 1 8 prestaköllum voru engir altarisgestir allt árið — ekki einu sinni fermingarbörnin. Var sú talan raunaleg- asta talan í öllum skýrslunum, enda sár- fáar messur í þessum sömu prestaköllum llestum. T. d. Grímsey 14 messur, enginn til altaris, Árnesprestakall 12 messur, eng- inn til altaris, Hvammur í Laxárdal 11 messur, enginn til altaris, Skútustaðaprk. 9 messur, enginn til altaris o. s. frv. Þá flutti sra Halldór Kolbeins erindi um messur og prjedikanir. Urðu um það nokkrar umracðar, ei- einkum snerust að útvarpsmessum. Kl. 11 árd. flutti sra Gísli Skúlason er- indi um Strandarkirlcju og flutti þar þá nýstárlegu en að ýmsu leyti góðu uppá- stungu, að rjett væri að stefna að því að efla svo prestlaunasjóð Strandarkirkju að þar gæti með tímanum orðið veglegt presta- kall og kirkjuleg menningarstofnun, svip- að og Sigtúnastofnunin. er í Svíþjóð. Urðu um erindið nokkrar umræður. Var þá kl. orðin 12 og fundarhlje gefið til nefndarstarfa til kl. 4-J- síðd. Þegar fundur hófst aftur siðdegis voru eitthvað 56 prestar og guðfræðingar þar komnir. Aðalorsök þessarar góðu aðsóknar var sú, að nú átti R. Prenter, danskur guð- fræðikandidat, að flytja erindi um kirkju- mál Þýskalands. Iiefir hann stundað fram- haldsnám með opinberum styrk, eitthvað tveggja ára tíma, og dvalið lengst í Þýska- landi og Englandi. Erindi hans, er stóð á aðra klukkustund, var prýðilega samið og lærdómsríkt. Skýrði hann aðalatriðin í kirkjuöeilunni

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.