Bjarmi - 01.07.1935, Blaðsíða 10
106
BJARMI
Kelena litla Stum, aem bargaðist, sjá sama tbl.
M ópar BóTíraníi kristni?
Niðurlag.
Allt þetta er ljett að skilja og veitir ljós og kraft.
Ymsar aðrar leiðir í rannsókn Ritningarinnar
eru til að þekkja Krist vorn, þá einustu von
hjálpræðis vors. Post. 4, 12. Rannsaka sögu ísra-
els, kærleikskapítulann í 1. Kor. 13, trúarkapi-
tulann (Hebr. 11), Að læra ýms vers utan að
er ágætt. Og e'nnfremur að rannsaka líferni
ýmsra ágætismanna, t. d. Abrahams, Jósefs,
Daviðs, Daníels o. s. frv. Postulinn segir: »Hrygg-
ið ekki andann«, og á öðrum stað: »Þjer harð-
svíraðir og óumskornir á hjörtum yðar og eyr-
um, þjer standið ávalt í gegn Heilögum Anda,
þjer eins og feður yðar.« Vinir, ef þið stjórnist
af yðar óendurfædda eðli, er hættan yfirvof-
andi, hættan, sem postulinn varar við hjer að
framan. Hver er þá leiðin til frelsis og sam-
ræfnis? Pað er að upplýsa samviskuna með orði
Andans; og í gegnum það fræðir Andinn oss um
allt og minnir oss á allt, sem vjer höfum heyjt
og orðið svo snortnir af fyr í lífinu, þar næst
að lifa samviskusamlega, eins og jrað er kallað.
Þ. e., sii aðfeið er jrví aðeins örugg, að orð Guðs
hafi fyllt hugann og sannfært samviskuna. Til
þess að vera þessa innra stýrandi kraftar og
ljóss aðnjótandi, er nauðsynlegt að vera iðinn og
kostgæfinn nemandi og rannsakandi Ritningar-
innar. Par fæst ókeypis »andans vín« og mjólk,
sem ungir og gamlir geta nú sem fyr dafnað af
til hjálpræðis. »Rannsakið hvað Drottni er þókn-
anlegt«, jrví »jafnvel útvaldir munu leiðast í
villu«. Látið ekki fríhyggju og- djöfla-anda
fræðslu trufla yður. Op. 16, 14. »En spyrjið eftir
gömlu götunum, hver sje hamingjuleiðin, og
farið hana.«
Að endingu þetta: Vjer höfum nú sjeð orsök
ósigurs kristninnar, og hve vonlaust er, ef svo
skal haldið áfram, undir jrvingun djöfla-anda.
Hins vegar boðast fjötruðum lausn til að njóta
öryggis hjer í náðinni, já, falin í Guðs voldugu
hönd, nreð Frelsarann í fylkingarbroddi. Nú er
augljós leiðin til að jrekkja Guðs bók, og hinn
jrráði kraftur til að hlýða og gera felst þar með.
I Guðs nafni, heitum og framkvæmum frá í
dag að þekkja og hlýða Guðs fyrirmælum, og
»þið skuluð ekki verða til skammar nje háðung-
ar að eilífu.«
»Mikil verða laun yðar á himnum.«
B. S. G.
efnis, sem hann unni. — Gu.ð blessi ást-
vini hans og styðji þá alla æfi þeirra til
að unna jafn einlæglega kristinni trú og'
hinn látni vinur vor gjörði.
S. A. Gíslason.
Kristniboðshjónin John og Betty Stam, et' komm-
únistar kínverskír myrtu 8. des. sl., sjá 7.—8. tbl. J>. á.