1. maí - Reykjavík - 01.05.1934, Blaðsíða 5

1. maí - Reykjavík - 01.05.1934, Blaðsíða 5
hatt. Hann batt snöruna utan um gálga- tréð, og síðan um háls Wallisch. Wallisch hrópaði upp: „Lifi jafnaðar- stefnan. Húrra fyrir frelsinu!“ Síðasta at. kvæðið endaði í óljósu korri. Spitzer strengdi á snörunni ofan frá, en aðstoðarmenn hans héngu á hálsi hans. Eftir 12 mínútur var hann liðið lík. Dóminum var fullnægt. Hermennirnir, dómararnir og vitnin gengu út úr garðinum, en um leið og þeir gengu framhjá klefagluggum fanganna, æpti einn þoirra: Morðingjar!“ Lögreglan flýtti sér til klefanna, og leitaði þess er hrópað hafði, en félagar hans vildu ekki ljóstra upp um hann. Það var kyrrð í fangelsisgarðinum. Þar var enginn nema Koloman Wallisch, sem hékk á gálgatrénu, og yfir honum héldu félagar hans þögulan vöi*ð. En í dagrenning kom böðullinn og sex hermenn. Þeir tóku likið niður, vöfðu það í svart klæði og óku á brott. Félagsbræður Wallisch höfðu vakað um nóttina og beðið þessa. Þeir sáu þá flytja^ líkið til kirkjugarðsins, og svo var hon- um lolíað að baki þeim, en hinir gægð- ust yfir múrvegginn og settu á sig hvar liann var grafinn. Og um morguninn var gröfin hulin krönsum, barrgreinum og blómum, og þar voru örfamar þrjár liundnar í sveiga. Lögreglan tók blómin í burtu, en það var komið með ný blóm', og á því gekk í þrjá sólarhringa, unz prestarnir æsktu þess að blómin fengju að vera í friði. Ég fór með enskum félagsbróður til grafar Koloman Wallisch. Við höfðum með okkur hálfútsprungið heiðaling, ei- lífðarblóm og dökkrauðar hyasintur. Við skrifuðum á miða: „Til hetjunnar Wallisch. Með ástúð frá enskum félags- bræðrum“. Það var fjöldi blóma á gröfinni, en ekkert skrifað eða prentað, því lögreglan kemur á tveggja stunda fresti og hefir allt slíkt á brott með sér. Það komu tvær konur að gröfinni, þar næst maður, þá annar, og að nokkrum mínútum liðnum stóðum við fimmtán við gröfina. Fólkið umhverfis okkur var að tala um hann, sem það hafði þekkt svo vel, og það hrundu tár af augum þessa þög'ula fólks. Einn þeirra sagði, er talið barst að félögum Wallisch, sem sitja í fang- elsi: „Getum við annað en skammast okkar, að ganga um í sólskininu, meðan þeir sem beztir eru olvkar allra sitja hnepptir í fangelsi. Fólkið fer daglega frá næstu þorpum og úr sveitunum umhverfis, pílagríms- ferðir að gröf Kolomans Wallisch, — og við hina nýorpnu gröf, gefur það þögul loforð. Koloman Wallisch hefir ekki lifað til einskis. Ég er þess fullviss — og fólkið veit l?að líka, — að Wallisch mun rísa upp í hug og hjarta fjöldans, til sigurs hinni socialistisku hugsjón í Austurríki. — Já um allan heim. I. I. (þýddi). Verzlið við Hljóðfævahúsið og Ailabúð . ALLSKONAR MUSIK. OG LEÐURVORUR 5

x

1. maí - Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 1. maí - Reykjavík
https://timarit.is/publication/396

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.