1. maí - Reykjavík - 01.05.1934, Side 10
Fólk, sem alla afkomu sína og afkorau-
vonir á undir öðrum. I atvinnumálurn Is-
lands kemur því ekki fram heilbrigf eða
fullkomið þjóðarframtak né þjóðarvilji í
framkvæmd þeirra eða stjórn. Eins og nú
er, veltur því atvinnulífið á svokölluðu
framtaki fárra einstaklinga, sem oft sýna
mestan dugnað í því að sölsa undir sig
almanna fé á ólöglegan og ósæmilegan
hátt. Ennfreinur byggist framtak einstak-
lingsins í þessu tilfelli aðallega á því, að
vinna verkalýðsins skili sem mestum arði
í sjóði þeirra, sem eiga iandið og fram-
leiðslutækin, eða m. ö. o., að sem minstur
afrakstur vinnunnar lendi í vösum þeirra,
sem framkvæma hana. Af þessu ranga
fyrirkomulagi leiðir svo það, að óþægileg-
ir og þjóðhagslega hættulegir árekstrar
verða á milli vinnusala og vinnukaupenda
(sbr. launadeilur). Á þessu aðkallandi
vandamáli þjóðfélagsins fæst lausn með
framkvæmd jafnaðarstefnunnar.
Takmark jafnaðarmanna er að tryggja
vinnulýðnum yfirráð landsins. Sameina
skyldurnar við landið og réttindi til lands-
ins í höndum þeirra, sem framleiða lífs-
nauðsynjar bæði á sjó og landi. Það er
hvorttveggja í senn bæði ranglátt og hættu-
legt fyrir velfarnað þjóðarinnar, að hún
skiftist í tvær hagsmunalegar andstæður.
En svo hlýtur að verða meðan nokkrir
menn í krafti ranglátrar löggjafar sitja
inni með það, sem gerir landslýðum unt
að bjarga sér. Á herðum vinnustéttanna
hvíla áhyggjurnar af tilvist þjóðarinnar í
landi torsóttra gæða. Árangurinn af því
áhyggjuríka starfi, sem þær leggja fram, á
því að falla þeim óskiftur í skaut.
Eg er þess fullviss að þær óskir bærast
nú örar í brjóstum allra góðra Islendinga
en nokkru sinni fyr, að sú skipan verði
gerð á atvinnumálum landsins hið
fyrsta að til sætta dragi með landsmönn-
um innbyrðis. Þá myndi sú öld renna
upp yfir landi voru sem væri auðkennd af
einingu og samhug landstr.anna. Þá myndi
hver einstaklingur finna það, að því meiri
skyldurækni, sem hann sýndi landi sínu
og þjóð, því meiri réttindi öðlaðist hann
og því betri aðstöðu til þess að lifa lífinu
að ósk sinni. Þessi öld sameiginlegs þjóð-
arvilja og átaka til sífelldrar framsóknar
og uppbyggingar í landinu rennur upp
með framkvæmd jafnaðarstefnunnar. Fyrir
því er 1. maí um leið og hann er minning-
ardagur unninna sigra á leiðinni til soci-
alismans líka baráttudagur. Þegar íslenzkur
verkalýður streymir út á stræti og torg
borga og bæja í skipulögðum skrúðfylk-
ingura, þá er loftið í kringum hann þrung-
ið af heitum hanns um það, að reynast
sjálfum sér trúr með því að framkvæma
socialismann sem grundvöll fyrir farsæl
verklýðsyfirráð á Islandi. 1. maí er vor-
dagur. Ilann er }>ví dagur þeirra, sem þrá
vorið og gleðjast við það að sjá vorboða
náttúrunnar teygja arma sína mót hækk-
andi sól. 1. maí sem hátíðisdagur hinnar
starfandi íslenzku þjóðar er á sama hátt
gleðidagur þeirra sem sjá í verklýðshreyf-
inguni vorboða þjóðlífsins.
íslenzk alþýða! Gleðilegan 1. maí!
Ártii Ágústason.
Ranks hænsnafóður
er og verður BEZT TIL VARPS OG
ÞROSKA. — ...
Ungamjöl og ungakorn í 25 kg. pokum, Blandað korn
og Varpfóður í 50 kg pokum.
Alt bezt og ódýraethjá ARNDAL. — SÍmi 1471.
10