Afturelding - 01.03.1936, Qupperneq 2

Afturelding - 01.03.1936, Qupperneq 2
AFTURELDING Musterið í heild sinni. hepnast ekki, því að tímar þjóðanna eru á enda. Þar á eftir byrja tímar Gyðinganna aftur. En það, sem vakti mína mestu undrun á sýningunni, var hin fyrsta áreiðanlega eftirlíking af mysteri Salómós, sem er endurnýjun af hinni stórfeng- legu byggingu Salómós. Það hefir tekið 25 ára starf og kostað yfir 2 milj. kr. að rannsaka bygg- ingarlist hinna gömlu tírna og gera uppdrættina. Hinn alkunni og heimsfrægi John Wesley Kelchner hefir fórnað meiri hluta æfi sinnar fyrir þetta verk. Eins og þessar myndir sýna, leit það út fyrir augum Salómós, þegar það var fullgert af lista- mönnum þess tíma. Samkvæmt mörgum tímaritum Gyðinga, eru súl- ur, efni og áhöld 1 musterið í Jerú- salem þegar tilbúið í ftalíu og bíð- ur þess tíma, þegar það á að flytj- ast til Palestínu og verða bygt upp á sínum stað. En þetta er leyndar- mál, sem trúaðir Gyðingar ekki mega nefna. Guðs fólk getur fagnað, því að þetta er mikið tákn. En musteri okkar er á himni, og þaðan vænt- um við Krists sem Endurlausnara og Brúðguma sálnanna. Látum okkur þess vegna lyfta höfðum okkar, því lausnarstundin er í nánd. Drottinn Jesús kemur brátt. Það var gert ráð fyrir, að þessi grein kæmi í fyrra blaðinu, en myndamótin komu of seint. En þar ,sem þær hafa svo mikla spámann- lega þýðingu og færa manni fróð- leik um ýmsa hluti, viljum við b.rta þær nú. Auk þess, sem að ofan er nefnt um framfarir síðustu tíma, vil ég líka benda á nokkrar uppgötvánir, sem á alveg sérstakan hátt eru teknar í þjónustu hins vonda. Það eru hinar ýmsu eiturgastegundir, sem verða til þess að kvelja og drepa menn í komandi stríði. Aðeins í Ameríku var 1923 eytt um 2,500000 kr. til þess að útbúa og rannsaka eiturgas. (Það er margfalt meira nú. Sama er að segja um hin löndin). Foringi, sem var að vinna við slíka rannsóknarstöð, segir, að nú sé búið til fljótandi eitur, sem sé svo hættulegt, að þrír dropar á hörundið er nóg til að deyða mann. Ef þessu eitri verður dreift yfir jörðina frá flugvélum, mun alt lifandi drepast. Önnur eiturgastegundin, 1 e w i s i t i n, er, eftir sögn The Lancet, miklu hættulegri en sin- nepseitrið, sem var notað í heimsstyrjöldinni. Ein fiugvél með 2000 kg. lewisitgas getur drepið all- ar manneskjur á 11 kílómetra löngu og 30 metra breiðu svæði. Edison heldur því fram, að alla íbúa Lundúnarborgar megi drepa á 3% klukkustund, Lauslega þýtt úr Korsets Scier. Súlurnar í musterinu. 14

x

Afturelding

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.