Afturelding - 01.03.1936, Síða 4

Afturelding - 01.03.1936, Síða 4
AFTURELD.ING Vinur okkar horfði á blómvöndinn. Án efa hafði einhver gestur gefið hann. Aftur og aftur mælti hann fyrir munni sér þessi orð: „Við fórum allir villir vega,“ „já, í þeim sauðahóp er ég, einn af þeim, sem ganga sína eigin_vegi.“ Lengra komst hann ekki að þessu sinni, en hversu stórt skref er ekki stigið fram á við, þeg- ar syndugur maður skilur, að hann er einmitt einn af hinum viltu og glötuðu sauðum. Um kvöldið, þegar Eiríkur litli bauð honum góða nótt, sagði hann: „Eiríkur, litli, kæri drengurinn minn, bið þú fyrir mér í kvöld, um fram alt annað.“ Eiríkur spenti greipar, eins og vani hans var er hann bað og hóf bæn sína með veikari rödd en ella: „Drottinn Jesús, góði, trúfasti hirðir, ég bið þig að varðveita sauðinn þinn í nótt og vaka yfir honum þangað til í fyrramálið. Ver þú honum nærri, amen.“ „Góða nótt hr. lögreglumaður! ég er mjög þreyttur," bætti hann við. Hann var rétt að sofna, er hann sagði síðustu orðin. Frá þeirri stund var það bersýnilegt, að Eirík- ur litli átti ekki langt eftir ólifað, hann varð veik- ari með hverjum degi. Hann var svo þreyttur, að hann næstum altaf lá í móki. En aftur á móti jukust kraftar lögreglumannsins hröðum skref- um. Hann gat nú þegar verið eina klukkustund á fótum hvern dag. En það, sem var miklu gleði- legra fyrir hann, var það, að gegn um hin dimmu efasemdaský hafði sól trúarinnar brotist fram í sálu hans og gefið lífinu gildi. Andi Drottins hafði sýnt honum að Jesús var særður einnig fyrir syndir hans og yfirtroðslur, og hans vegna var hann krossfestur á Golgata. Nú fann hann nálægð Guðs. Sá Guð, sem honum hafði virst vera langt í burtu, stóð nú við hlið hans. Hann var kominn honum svo nærri fyrir blóð Drottins. Lögreglu- maðurinn var orðinn fullviss um frelsi sitt, og hann bar þá eina þrá í brjósti, að mega segja öll- um mönnunum frá þessari fagnaðarríku full- vissu. „Hvar er lögreglumaðurinn minn?“ Það var liðinn langur tími, sem Eiríkur litli hafði ekki talað nema í hálfum hljóðum, uns það var kvöld nokkurt að hann í fullum rómi bar fram þessa spurningu, er hann sá að rúmið við hlið hans var tómt. Lögreglumaðurinn stóð þar skamt frá og talaði við hina fyr umræddu hjúkrunarkonu. Hún var að segja honum, að litli drengurinn, sem var honum svo kær, gæti í mesta lagi lifað einn sólarhring til. Þegar hann heyrði barnið spyrja eftir sér hljóp hann að rúminu og beygði sig yfir drenginn: „Hérna er ég Eiríkur minn,“ sagði hann vingjarn- lega, „hvað viltu?“ „Ó, mig langar svo mikið til þess að þú setjist hér hjá mér og haldir í hendina á mér. Hann settist hjá honum og tók fölu og mögru höndina í sína og þrýsti hana innilega. „Hr. lögreglumað- ur! haltu í hönd mína þangað til Drottinn Jesús kemur að sækja mig.“ Er lögreglumaðurinn heyrði þessi orð, fann hann grátklökkva þrengja að sér. Hann var í mikilli skuld við þetta barn. Geðshræring hans var svo mikil að hann kom ekki upp nokkru orði. „Ó, mér er svo illt í fætinum,“ sagði litli sjúklingurinn, og rödd hans lýsti þján- ingum. Systirin hefir sagt að það verði ekki langt þangað til Jesús kemur.“ Lögreglumaðurinn gat ekki lengur varist gráti. „Hvers vegna grætur þú hr. lögreglumaður ? Ég hélt að lögreglumaður gréti aldrei.“ „Jú, vinur minn litli, lögreglumaður getur grát- ið, þegar Guð hefir endurfætt hann og gert hann að barni í annað sinn.“ „Ertu hryggur vegna þess að ég fer héðan? Langar þig til þess að vera með? Það er gott, því þá skal ég skila því til Drottins Jesú, þegar ég fæ að sjá hann.“ „Já,“ sagði lögreglumaðurinn, „mig langar til þess að vera með.“ Eiríkur litli spenti greipar og sagði með veikri rödd: „Lögreglumanninn langar líka til að koma heim, Drottinn Jesús!“ Því næst féll höfuð hans niður á koddann, en litlu hendurnar héldu fast um hægri hönd lög- reglumannsins. Eiríkur hafði aftur augun, hann átti örðugt með að draga andann. Alt í einu opnaði hann augun, athugaði vin sinn með eftirtekt um leið og hann bað: „Trúfasti hirðir, lambið . . . þitt . . . kemur . . . til . . . þín, sauðurinn kemur einnig. Lögreglumanninn langar líka til að vera hjá þér.“ Enn þá eitt þungt andvarp, og Eiríkur litli var þangað fluttur, sem engin tár, né harmur er til, þar sem alt er fagurt og dýrðlegt. Drottinn hafði tekið lambið sitt heim til sín. En fyrst hafði hann orðið verkfæri til þess að leiða syndarann til kross- ins. 16

x

Afturelding

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.