Afturelding - 01.03.1936, Page 5
AFTUBELDING
Svölunarlind Ufsins.
Eins og hindin, sem þráir vatnslindir,
þráir sál mín þig, ó, Guð. (Sálm. 42, 1.).
Eins og hindin er knúin af innri þörf að leita
vantslinda, þar sem hún fái að svala þorstanum,
svo er og um mannssálina; hún er knúin áfram
af innri þörf — sárum þorsta — um vatnslausa
eyðimörk lieimsins í leit eftir svölun, friði og
hvíld. Menn kalia það að leita hamingjunnar, en
sú leit verður mörgum löng, já, æfilöng, og endar
oft með tortíming sálnanna, af því að menn leita
töfrasýna og hillinga eyðimerkurinnar í stað hins
lifanda Guðs, lífsuppsprettunnar blessuðu, er sval-
ar þorstanum sára og veitir eilífan frið og hvíld.
„Eins og hindin, sem þráir vatnslindir, þráir
sál mín . . . Hvað þráir sál þín, vinur minn?
Guð einn er þin svölunarlind. — Lát þú ekki
blekkjast í þessu, því að með honum verður þér
allt til hamingju ,en án hans verður þér allt til
óhamingju. Bið þú Guð að hreinsa þrá sálar þinn-
ar, svo að hún stefni til hans, sem einn getur sval-
að henni.
Flestir þekkja margt um Guð, og margir hugsa
oft um hann, en þeir finna enga svölun eða full-
nægju. Guð er fjarlægur — lokuð uppspretta,
nema í Jesús Kristi. Jesús er uppsprettuaugað
dýrmæta, sem stendur opið æ og ætíð. Eins og
hindin fær svölun, þegar hún finnur lindina, eins
fá þeir svölun í Guði, sem finna Jesúm. Þess
vegna sagði Hann líka: „Komið til mín, allir þér,
sem erfiðið og þunga eruð hlaðnir, og ég mun
veita yður hvíld.“ Matt. 11, 28. Hann sagði ekki
beinlínis: Komið til Guðs, heldur: „Komið til mín“.
Þú verður að fá þorstanum svalað gegn um Jesúm
— koma til Guðs gegn um Hann, því Hann sagði:
„Ég er vegurinn og sannleikurinn og lífið; eng-
inn kemur til Föðursins nema fyrir mig.“ Jóh.
14, 6. Þess vegna þurfa allir að byrja á því að
koma til Jesú og trúa á hann, til þess að fá „líf
og nægtir.“
Tárin streymdu niður kinnar lögreglumannsins.
Hann fyrirvarð sig ekki lengur fyrir það. Barnið,
sem hann á þessari stundu, hafði orðið að sjá á
bak, og sem hann ekki lengur gat notið samfélags
við á þessari jörð, það hafði vísað honum veginn
til himinsins. E N D I R.
Það er mörgum erfitt að finna Jesúm, og ennþá
erfiðara að taka á móti honum í trú. Það er af
þvi að eðlisástand mannanna er svo gagnólíkt
eðli Guðs-Sonarins eins og myrkrið er ólíkt ljósinu,
og myrkrið tekur aldrei á móti því, en víkur að-
eins undan. Þannig er það með syndaeðli manns-
ins. Það er undir algerðum dómi glötunar og dauða,
og á meðan maðurinn þjónar því, víkur hann ætið
undan Jesú, eins og myrkrið undan ljósinu, og
neyð hans vex. En Jesús vill gefa okkur sjálfan
sig. Hann oplnberast hjörtum okkar fyrir áhrif
Heilags Anda, svo eðli Hans verður ríkjandi í
okkur í stað syndaeðlisins.
Mörg hundruð árum áður en Kristur kom í holdi,
sagði Guð, fyrir munn spámannsins: ,,Á þeim
degi mun Davíðs húsi og Jerúsalembúum standa
opin lind, til að þvo af sér syndir og saurugleika."
Sak. 13,1. Hversu dásamleg orð! ,,Á þeim degi“,
er þeir litu til Hans, sem þeir lögðu í gegn (sbr.
Sak. 12,10.) —Á þeim degi, ætlaði hinn heilagi
Guð að láta þeim standa opna lind, til að þvo af
sér syndir og saurugleik. Við vitum nú að þessi
blessaða lind er Jesú dýrmæta blóð, og að hún er
fyrir alla. Þegar Jesús var „særður vegna vorra
synda“ á Golgata, þá opnaði Guð alheimi lindina,
sem af þvær syndir og saurugleik. En þegar ein-
hver lítur til Jesú, sem þess, er hann sjálfur hefir
lagt í gegn með vantrú og guðleysi síns liðna
lífs, og trúir orðum Hans, þá springur hinn harði
klettur hins iðrunarlausa hjarta, og lindin streym-
ir inn með krafti nýs lífs, sem hreinsar hið gamla
syndaeðli burtu. Þá rætast orðin yndislegu: „Það
gamla varð að erigu, sjá, það er orðið nýtt.“ II.
Kor. 5,17. Þetta þýðir það, að án iðrunar, aftur-
hvarfs og trúar glatast maðurinn, með því að hann
nær aldrei til Guðs eftir öðrum vegi, enda þótt lind
Guðs eilífa hjálpræðis hafi altaf staðið opin; eins
og sá deyr úr þorsta, sem ekki neytir vatnsins,
og sá heldur áfram að vera óhreinn, sem ekki
laugar sig. Guði sé lof fyrir að hann opnaði lind
eilífs lífs í Jesú Kristi, til að veita þeim iðrandi og
sundurkrömdu svölun og frið. Til þeirra streymir
lindin með himneskum krafti fyrir trúna á orð
Jesú. — Það er um að gera að treysta á orðin
Hans, orðin, sem Hann innsiglaði með blóði sínu.
Frelsarinn sagði sjálfur, að blóði sínu ætti að
verða úthelt í fyrsta lagi, til þess að við gætum
öðlast fyrirgefningu og frið fyrir hið umliðna.
Matt 26,28. í öðru lagi, til þess að hreinsa Syndina
17