Afturelding - 01.03.1936, Page 6
AFTURELDING
burt úr lífi okkar. I. Jóh. 1,7—9. I þriðja lagi, til
þess að veita okkur sigur yfir djöflinum og öllu
hans veldi. Op. 12,11. Hefir þú trúað, tekið á móti
og þakkað fyrir frelsið í Jesú Kristi?
Skeytið.
sem bjargaði okkur.
Frelsið er sem svanasöngur sólarbjörtu heiði frá,
eða hvíld á blómsturbökkum
blárra vatna spegli hjá.
K ó r:
Fyrir blóðið frelsið á ég, fyrir trúna á Jesúm Krist.
Hann fékk opnað hliðið gullna,
Hans á lófa er nafn mitt rist.
A. E.
Ég vil fyrir mitt leyti vitna um mátt blóðfórn-
arinnar á Golgata, til að veita fyrirgefning, hreins-
un og sigur, ef við bindum okkur í trú við orð
Biblíunnar og framgöngum í því ljósi, er þau veita
okkur.
Ef þú vissir, vinur minn, hve traust og örugt
Guðs réttlæti í Kristi er, hversu það eitt veitir
eilíft líf, — eilífa svölun, frið og hvíld, á meðan
hvert annað sjálfvalið réttlæti leiðir til glötunar og
dauða, þá mundir þú ekki skoða huga þinn um að
setja fót þinn í trúnni inn á Golgata-bjargið og
undirskrifa þann blessaða friðarsáttmála, sem Guð
býður þér, því „Hann samdi frið með blóðinu út-
heltu á krossi Hans.“ Kol. 1,20. En Guðs orð segir:
„Blóðið er lífið.“ 5. Mós. 12,23., og „Blóðið frið-
þægir með lífinu.“ 3. Mós. 17,11. Syndin tekur frá
okkur lífið með Guði, svo við ráfum um í myrkr-
inu og finnum enga varanlega hvíld, en í blóði Jesú
Krists, Guðs-Sonar, gefur Hann okkur sitt heilaga
líf; og eigi fæst fyrirgefning syndar án úthelling-
ar blóðs, og eigi verður hið glataða líf gefið okkur
til baka án úthellingar heilags blóðs, það er heilags
lífs. Jesú gat ekki gefið okkur líf sitt á annan hátt.
Sá, sem trúir orðinu um friðþægjandi, hreinsandi
og frelsandi kraft Jesú dýrmæta blóðs, geymir orð-
ið í hjarta sínu og játar það með munni sínum,
hann mun komast að raun um, að hann hefir öðl-
ast nýtt eðli, sem þráir heilagleika en þolir ekki
synd. Þetta er lífið í blóði Jesú Krists hins ein-
getna Sonar Guðs.
Ó, kom þú að lindinni sorgmædda sál,
þar svölun og hvíld fæst, sem ekki er tál!
Guð kærleikans, sannleikans, sendir þér frið
og sælu þá himnesku uppsprettu við.
Jón Jónasson.
Það var löngu eftir miðnætti að hin langa B &
O lest, Saint Louis, á leið til Cincinnati, rann inn
í Washington, Ind.
Lestin var yfirfull af farþegum. Það hafði verið
stór, kristileg, samkoma í Saint Louis, og nú var
fólkið, svo hundruðum skifti, á leiðinni heim til
sín. Það voru sjö svefnvagnar og einn dagvagn.
Auk þess var einn fyrir flutning og farþega. Við
ferðafélagarnir, Jim og ég, undirbjuggum nætur-
ferðina, sem bezt við gátum.
Jim var kindari en ég vélamaður. Við höfðum
beðið eftir þessari lest í Washington og fórum með
henni þaðan. Þegar við vorum að hita upp drátt-
arvélina um kvöldið, fanst mér eins og þung byrði
legðist yfir mig. Ég gat ekki skilið þetta. Mér fanst
eins og eitthvað voðalegt væri í aðsigi, og ég drap
lítillega á þetta við Jim.
Við vorum báðir trúaðir og féllumst þess vegna
á það, að best væri fyrir okkur að biðja til Guðs.
Við krupum á kné og fólum okkur varðveislu hans,
sem er eins máttugur að annast sína, að nótt sem
degi. I öruggu trausti til hans lögðum við af stað
í þessa næturferð.
Þetta var í marga staði undarleg nótt. Aldrei
hafði okkur virst lestin renna jafn létt og þýtt eft-
ir teinunum, sem einmitt nú.
Hún þaut gegnum jarðgöngin, dimm og drunga-
leg. Nákvæmlega á réttum tíma komum við til
Seymour, Ind. — Við vorum komnir inn yfir mitt
Indland og hættulegasti hluti ferðarinnar var orð-
inn að baki. Hinn óttafulli kvíði, sem yfir mig hafði
komið, í byrjun ferðarinnar, var nú vikinn úr
hjarta mínu.
Þegar lestin var um það bil fimm mílur fyrir
austan Seymour, nálægt Storm Creek brúnni, sást
bjarmi af degi. Alt í einu sá ég mann koma hlaup-
andi móti okkur, meðfram járnbrautarteinunum.
Hann veifaði hattinum með slíkum ósköpum, sem
væri hann þegar genginn af vitinu. Á svipstundu
greip ég til neyðarhömlunnar og lestin stöðvaðist
fljótlega. Ég spurði manninn hvort nokkuð væri
að. „Brotinn teinn rétt fyrir framan lestina,“
hrópaði hann. Ég hljóp út úr lestinni og sá að
teinninn var brotinn á hárri bakkabrún, rétt fyr-
18