Afturelding - 01.03.1936, Page 8

Afturelding - 01.03.1936, Page 8
AFTURELDING aðalskilyrði fyrir því, að syndarar geti komist í Guðsríki, að þeir endurfæðist. Það er enginn vegur til hjálpræðis að kenna það, að barnaskírn frelsi frá dauðanum og djöfl- inum, og gefi eilífa sáluhjálp, öllum, sem því trúa, eins og það er orðað í fræðum Lúthers. Mætti Heilagur Andi opna hjörtu mannanna fyrir Guðs heilaga orði, eins og það stendur í Biblíunni, og leiða sálirnar til Krists, þá mundi sjást meiri ávöxtur trúarinnar, en nú sést svo víða. Þá mundi guðsafneitun, efnishyggjan, anda- trú og allskonar villur, sem nú vaða uppi hér á landi, ekki vera settar í staðinn fyrir Guðs heil- aga orð, sem er lifandi og kröftugt og beittara hverju tvíeggjuðu sverði, og smýgur inn í insta fylgsni sálar og anda, liðamóta og mergjar, og er vel fallið til að dæma hugsanir og hugrenn- ingar hjartans. (Hebr. 4, 12). Jesús sagði: ,,Ef maðurinn fæðist ekki af vatni og anda, getur hann ekki komist inn í Guðsrík- ið.“ (Jóh. 3, 5). Þetta ber ekki að skilja þannig, að börnin geti ekki orðið Guðs náðar aðnjótandi, þótt þau deyi áður en þau eru skírð; því Jesús sagði um óskírðu börnin, sem voru borin til hans, að þeim heyrði Guðsríki til. Og þó lét Jesús ekki skíra þau. — Jesús kom í heiminn til að friðþægja fyrir syndir mannanna, með pinu sinni og dauða, og kaupa oss Guði til handa með blóði sínu.“ Svo Guðs náð stendur öllum til boða, sem ekki hafna henni vísvitandi. En börnin geta ekki staðið á móti náðinni, á meðan sál þeirra er saklaus og hrein. Af því geta þau orðið hennar aðnjótandi. „Ótti Drottins er upphaf viskunnar og þekking hins heilaga sönn hyggindi.“ ,,Sá, sem óttast Guð, öðlast viturt hjarta.“ „Varðveit hjarta þitt fram- ar öllu öðru, því þar eru uppsprettur lífsins," segir Salómon. Og þetta er það, sem þarf að kom- ast inn í hjörtu barnanna, áður en syndin nær tökum á þeim. Börnin þurfa fyrst og fremst að þekkja hinn sanna Guð, trúa á Hann, elska og tilbiðja Hann af öllu hjarta. Það þarf fyrst og fremst, að predika Guðs orð yfir þeim, því að trúin kemur fyrir prédikun Orðsins. Og þá er um að gera, að Orðið sé prédikað rétt, því að trúin fer eftir því, hvernig Orðið er prédikað. Og það er engu síður nauðsynlegt, að framfylgja kenn- ingunni í verkunum, en að kenningin sé rétt fram . borin. Af því Orðið missir bæði líf og kraft við það, ef ekki er breytt eftir því. Það verður þá aðeins dauður bókstafur. Þá sannast það, sem Jesús sagði í endir fjallræðunnar, að, ef einhver heyrði orð hans og breytti ekki eftir þeim, þá væri hann líkur heimskum manni, sem byggði hús sitt á sandi. Og postulinn segir, að trúin sé dauð, án verkanna. Jesús sagði við samversku konuna, sem hann hitti við brunninn: „Sá, sem drekkur af þessu vatni, hann mun þyrsta aftur; en, ef einhver drekkur af því vatni, sem ég mun gefa, þann mun aldrei að eilífu þyrsta, heldur mun það vatn, sem ég mun gefa, verða í honum að lind, er sprett- ur upp til eilífs lífs.“Hér á Jesús við lífsins vatn, sem hver maður þarf að drekka, til þess að öðl- ast eilíft líf. Það eru þau dýrmætu náðarorð, sem fram gengu af munni Jesú, sem hann hefir til vor talað, til þess að gefa heiminum líf. Orð, sem hann hefir einnig geymt handa oss, sem nú lif- um, og sem hann mun geyma handa komandi kynslóðum, alt til daganna enda Sá, sem drekkur þessi dýrmætu náðarorð, eins og þyrstur maður drekkur sætan svaladrykk, hann mun fyrir þau eignast eilíft líf. Jesús sagði: „Sælir eru þeir, sem heyra Guðs orð og varðveita það.“ (Lúk. 11, 28). Og ekkert annað nafn er oss gefið, sem oss er ætlað fyrir hólpnum að verða. „Því svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf Son sinn eingetinn til þess að hver, sem trúir á hann, glatist ekki, heldur hafi eilíft líf.“ (Jóh. 3, 16). Þar eð Guð hefir elskað oss svo heitt, að hann gaf sinn elskulega Son í dauðann fyrir oss, þá ætti það að vera oss ljóst, hversu góður Guð er, og hve ástríkan Föður við eigum á himnum. En þá ætti oss jafnframt að vera ljúft að elska hann sem ástrík börn hans, og vera honum af hjarta þakklát fyrir allar þær gjafir, sem vér verðum aðnjótandi, og þakka honum sérstaklega fyrir, að hann hefir gefið oss sinn elskulega Son, Frelsara vorn Jesúm Krist. Því hann hefir gefið oss alla hluti í honum. En ef vér elskum Guð og frelsara vorn, þá elskum vér hans orð. Guðs orð er þá orðið oss sem sætur svaladrykkur, og vér höf- um yndi af að heyra það og festa oss í minni. Jesús sagði: „Sá, sem elskar mig, mun varð- veita mín orð og Faðir minn mun elska hann og við munum koma til hans og taka okkar bústað hjá honum.“ (Jóh. 14, 23). En ef kærleiki Krists á að geta búið í hjörtum vorum, þá verðum vér að vera greftraðir með Honum. Vér verðum að 20

x

Afturelding

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.