Afturelding - 01.03.1936, Síða 11

Afturelding - 01.03.1936, Síða 11
AFTUREL,DI,NG var og er enn í dag, heilagur staður meðal sam- verja. Jakob gróf brunninn og hann er 35 metra djúpur. Grikkir hafa byggt kirkju yfir brunninn, en vegna stríðsins var aldrei byggt á hana þak. Nokkrir múnkar sjá um að alt sé í röð og reglu við brunninn og verkfærið, sem er til að ná upp vatninu. Lát það aðeins falla niður. Drag það svo upp og það er fult af tæru vatni, sem er ljómandi gott og svalandi fyrir hinn þyrsta. Hugsa sér að þetta verk Jakobs, að byggja brunninn, skyldi verða til blessunar fyrir okkur líka. Jesú orð um vatnið eru einnig fyrirnútímann: „Hver, semdrekk- ur af þessu vatni, hann mun þyrsta, en hver, sem drekkur af því vatni, sem ég mun gefa honum, hann mun aldrei að eilífu þyrsta, heldur mun vatn- ið, sem ég mun gefa honum, verða í honum að lind, er sprettur upp til eilífs lífs.“ (Jóh. 4,13—14.). Hellelúja! Við förum nú frá þessum stað til þess að athuga umhverfið. Ein af elstu borgum Pale- stínu er frammi fyrir okkur. Hún hefir nú 24,000 íbúa. Hér bygði Abraham altari og ákallaði nafn Drottins (Mós. 12,6—7.). Og Jakob sló tjöldum hér eftir að hann kom frá Mesópótamíu, keypti land og byggði altari (Mós. 33, 18—20.). Á þessum stöðvum var Jósef seldur af bræðrum sínum. Borg- in var griðastaður fyrir hina blóðseku, sem flýðu undan hefnd (Jes. 20,1—9.). Við höfum nú dýrð- legan griðastað. Lesið Róm. 8,1. Nú koma bílarnir, og þegar allir hafa tekið sæti, er lagt af stað til Jerúsalem. Umhverfið er eyðilegt og mjög óslétt. Sólin er að síga og varpar gullnum geislum á veg okkar, sem liggur í mörgum bugðum yfir fjalllendi Júða. Það er falleg mynd, að sjá bifreiðarnar með tendr- uðum ljósum, þjóta fram á mismunandi hæðum en þó á hinum sama vegi. Eftir margra klukku- tíma ferð sjáum við ótal ljós fram undan okkur, og bráðum er kallað frá fyrsta bílnum til þess næsta: Jerúsalem! Jerúsalem! Það voru einkenni- legar tilfinningar í brjósti mér, þegar ég hugsaði um, að brátt væri ég í hinni heilögu borg. En það er raunverulegra að hugsa um hina himnesku Jerúsamlem, þar sem engin nótt mun vera. Hallelúja! Bílar okkar keyra upp til Dalanýlendunnar, sem liggur spölkorn fyrir utan norðurmúr Jerúsalems. Sumir ferðafélaganna áttu að dvelja þar, en ég og fleiri héldum áfram til Jaffahliðsins. Þar stigum við úr bílunum. Þar hittum við svertingja frá St. Jóhans hótelinu, sem var sendur til að sækja ferðatöskur okkar. Við látum hann taka alt, sem þyngir okkur, og göngum svo lausir við byrðarn- ar í gegnum hliðið inn í borgina. Reynsla sú, sem Davíð hafði forðum, rætist nú á okkur: „Fætur vorir standa í hliðum þínum, Jerúsalem. Jerúsalem, þú hin endurreista, borgin þar sem öll þjóðin safnast saman.“ Sáím. 122, 2—3. Nokkur gÖtuljós varpa daufri birtu yfir veginn þar sem við göngum. Hér og þar sáum við menn liggja sofandi, sveipaða möttlum sínum. Við kom- um svo til hótelsins, og það var indælt að fá að þvo sér, eftir þessa 22 mílna ferð, í ryki og brenn- andi hita, og fá síðan að borða. Þjónninn er dug- legur og maturinn góður, svo enginn kvartar. All- ir eru glaðir og ánægðir og vegsama Guð fyrir hina dásamlegu hjálp hans þann daginn. Ég og bróðir Pétursson gistum í herbergi nr. 24. Sálma- skáldið Davíð talar í 24. sálminum um skilyrðin til þess að fá að stíga upp á fjall Drottins og dveljast á hans helga stað. Þetta varð nú svo dýr- mætt fyrir okkur, að við vegsömuðum Guð mikil- lega fyrir hið dýrðlega frelsi Guðs. Þar á eftir var það ljúft, að fá að ganga til hvíldar, þessa fyrstu nótt í höfuðborg hins heilaga lands. Við vöknuðum um 5 leytið næsta morgun við nokkur einkennileg köll, sem gerðu okkur undrandi yfir, hvað nú væri að gerast, svona snemma, áður en fólk er útsofið. Ég fór á fætur og dró upp glugga- tjöldin til þess að sjá, hvað um væri að vera, og sá mann upp í turni skamt frá; hann var að hrópa út bænastundina fyrir alla rétttrúaða Móhameðs- menn. Guðs börn fá að blygðast sín fyrir þá, þeg- ar um er að ræða að byrja daginn snemma með bæn, og halda því áfram, því þeir hafa fleiri á- kveðnar bænastundir, og krjúpa hvar sem þeir eru og hrópa til Allah. Þrátt fyrir það, að kallarinn hélt þessu áfram í hálfan tíma, fórum við ekki á fætur fyr en kl. 6. Við lágum og lofuðum Guð, sem hafði frelsað okk- ur frá öfgakenningum Móhameðsmanna, sem ekk- ert sameiginlegt hefir með Jesú og verki hans á Golgata. Hugsið ykkur hvað það er fyrir okkur, að vakna nú með endurnýjuðum kröftum og fá að byrja nýjan dag, sem færir okkur nýja undur- samlega reynslu og andlega blessun. Frh. 23

x

Afturelding

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.