Afturelding - 01.03.1936, Side 12

Afturelding - 01.03.1936, Side 12
AFXURELDING Frá víngardi Drottins. Við höfum nú þá ánægju, að kynna lesendum Aftureldingar þau Martin og Alfhild Mathisen, Martin Mathisen. Alfhild Mathisen. sem komu hingað til landsins í vetur, til þess að starfa í víngarði Drottins. Þau hafa þegar orðið til mikillar blessunar hér í Eyjum, en hér hafa þau verið um tíma. Guð blessi þau ríkulega. Ásmundur Eiríksson og frú hafa starfað á Sauðárkróki eitthvað í vetur. Ásmundur skrifar, að þau hafi fengið að biðja fyrir fáeinum sálum. Þau hjónin eru nú á Siglufirði og boða Guðs orð. Milda Spángberg er á Norðfirði, og heldur þar uppi hinum blóði stökta fána krossins. Og þó að erfiðleikar mæti, þá er Drottinn með í starfinu jog hjálpar í gegn um allt. Jónas Jakobsson og frú eru á Blönduósi og ,boða fagnaðarerindið um Jesúm Krist og hann krossfestan. Einnig þar hafa nokkrar sálir snúið ' sér til Drottins. Sæmundur Sigfússon farandbóksali hefir verið í Reykjavík og nágrenni í vetur, en fer nú eitt- hvað út um land með blöð og bækur. Vonandi að margir vilji greiða för hans, þegar hann kemur. Margir geta þá fengið tækifæri til að kaupa Biblíur, Sálmabækur, Passíusálma og ýmsar aðr- ar kristilegar bækur, og blaðið Afturelding. k Sigmundur Jakobsen heldur uppi starfinu á kureyri. Vinirnir þar hafa leigt hús fyrir sam- AFTURELDIWG kemur út annan hvern mánuð og verður 70—80 siður á ári. — Árgangurinn kostar 1,25 og greiöist fyrirfram. Borga má með ónotuðum isl. frímerkjum. Verð i Vesturheinii 50 cents og á Norðurlöndum 1,50 — í lausasölu kostar blaðið 25 aura hvert eintak. Ritstjóri og útgefandi: Eric Ericson, Box 85, Vestmannaeyjum. komur, er það til eins árs. Guðs verk gengur fram, þrátt fyrir alla mótstöðu mannanna. Guðs verk heldur áfram að útbreiðast meir og meir, þrátt fyrir það, að nokkrir hafa tekið sér fyrir hendur að ráðast á starf okkar í ýmsum blaðagreinum. En þar sem við vitum, að fólki leiðast þessar ádeilugreinar í blöðunum, viljum við ekki eyða rúmi þessa blaðs til þess að svara þeim. Þegar Orðið fær ekki að ráða, þá verða menn að tína saman allskonar rangindi og óhrein- leika og sverta sönn Guðs börn, sem eru alger- lega saklaus. Og þó að við getum hreinsað okkur af þessum aðfinslum og útúrsnúningum, þá vilj- um við heldur fela Drottni málefni okkar og biðja Guð að opna augu þeirra, sem hugsa með óvildar- hug um starf okkar. Sannleikurinn mun sigra að lokum. Þeir, sem vilja kynnast skoðun okkar um skírn Andans, ættu að lesa ritið „Fyrirheit Föð- ursins“, (er fæst á afgr. blaðsins), ásamt öðrum ritum og sálmabókum okkar. Þessar ádeilugrein- ar gefa til kynna, að þeir, sem mæla á móti, hafi ekki kynst Hvítasunnuhreyfingunni, eins og hún er, og þekkja ekki hin blessunarríku áhrif hennar á hjörtu þeirra manna, sem Drottinn hefir bless- að fyrir tilstilli hennar. Leiðrétting. 1 fyrra blaði hefir slæðst inn lítil prentvilla í greininni „Rómaríkið og Reiðitíminn". Þó að það sé aðeins eitt -i-, þá breytir það meiningunni og gefur villandi hugsun. Þar stendur: „Því síðasta vika, hin 70. vikan, sem um er talað í Dan. 9, 27 er að líða á sjónarsviði núlifanandi manna,“ en á að vera: „ . . . er að líða á sjónarsvið núlif- andi manna.“ -i-ið hverfur. Þetta er leiðrétt í nokkrum hlutu upplagsins, en menn eru beðnir að athuga þetta. 24 Steindórsprent h.f.

x

Afturelding

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.