Afturelding - 01.03.1938, Síða 10

Afturelding - 01.03.1938, Síða 10
AFTURELDING. urnar fyrir hann. »En Drottinn bætti daglega við í hópinn« — þ. e. söfnuðinn — t»þeim, ei' írelsast létu« (Efes. 5, 25. Post. 2, 47.), — svo ber þér aö ganga í biblíulegan söfnuð. — Hefir þú gert. það? — Hann gerðist yðar vegna fátækur, til þess að þér auðguðust af fátækt hans — svo ber þér aö lieiðra Guð með eigurn þínum. (II. Kor. 8, 9. Lúk. 16, 9). — Hefir þú gert það? — Af því þekkjum við kærleikann að hann lét lífið fyrir oss, svo eig- urn vér að láta lífið fyrir bræðurna (I. Jóh. 3, 16.). Ert. þú reiðubúinn að gera það? Petta eru nokkur greinilegustu blóðsporin í hjarninu. Hversu langt hefir þú fylg't þeim? Ég segi aftur: Prófaðu sjálfan þig, samkvæmt Guðs orði. Ef til vill hefir þér farið eins og sveininum, er fór að horfa í kringum sig. Var það svo með þig? Fórstu að hlusta eftir hliðarröddunum mörgu? Hættu slíku! Gerðu sem hinn bróðirinn. Virtu fyr- ir þér hvað það hefir kostað Frelsara þinn aö höggva þér sporin upp frá glötuninni og til eilífa lífsins. Ef þú setur þér í raun og veru fyrir sjón- ir, hvað Kristur varð að líða fyrir þig, þá gilepur þig varla degi lengur holdsvilja urðin, sem þúsundir Guðs barna hafa hlaupið út í og beðið tján á sálu sinni fyrir, — ef ekki í endanlagu frelsi, þá í end- anlegum launum. »Því að höfuð mitt er alvott af dögg, hárlokkar mínir af dropum. næturinnar«. (Ljóð. 5, 2.). Þessi orð urðu til þess að vekja brúðina í Ljóöaljóöurn af andvaraleysi hennar og kæruleys:, i því aö fylgja brúðguma sínum. Ef til vill er þetta hin fegursta skammstafa lýsiug af þjáningum Kristg f'yrir mennina. »Því. að höfuð mitt er alvott aí dögg, hárlokkar mínir af dropum næturinnar«. I sambandi við myrkraverk Júdasar getur að lesa: »Þegar hann nú hafði tekið við bitanum, gekk hann þegar út. En þá var nótt«. Heyr hinn dimrna og örlagaþunga nið í orðunum: »En þá var nótt«. Andi Guðs, sem andað hefir undramerkingum í Ljóðaljóðin, leit fram til þeirrar skelfilegu nætur, er skall yfir Krist, þegar honum var útskúfað af Guði, vegna. mín og þín. Þá döggvuðust hans heii- Ögu hárlokkar af gremiþrungnum. örlagatárum alls inannkynsins. — I gegnum þessa fáorðu lýsingu sá, brúðirin í Ljóð. allan blóðferil brúðguma síns fyrir sér. Hún sá blóðdropana undan þyrnikrans- inum pressast út í hár hans. Hún sá þyrnana stinga, fleiri og fleiri, — fleiri blóðdropa væta hár- lokka hans, unz höfuð hans var orðið alvott af dögg næturinnar — dögg hinnar skelfilegustu og kvalamestu nætur, er nokkru sinni hefir kramið mannlegt hjarta. — Þetta sá brúðirin og hún þurfti ekki að sjá meira. Hún stóð upp af andvara- leysinu til þess að verða eitt með brúðguma, sínum, — og rekja blóðför hans í hjarninu. — Þarft þú virkilega meira en þetta, t.il að sjá, hvað Kristur hefir liðið fyrir þig, til þess að einnig þú rísir upp t.il þess að fylgja blóðsporunum meira en nokkurn spöl, heldui alla leið? — Vertu trúr eins og Daníel. Gakk fram til endalokanna og þá muntu taka hlut- skifti þitt þar án blygðunar, ásamt cllum þeim, er trúir hafa reynst. Besta bókin. »Pitt orð er lampi fóta ininnu og LJÓS á vegi niínuni«. Sálm. 119:105. öllum kristnum mönnum, sem trúa því, að Bibl- ían sé Guðs orð og þekkja þau áhrif, sem hún hef- ir á hjörtu þeirra, sem heyra Guðs orð og varðveita það, ber saman um, að Biblían sé besta bók heims- ins. Og ekki aðeins besta, bókin, heldur iíka eina bókin, sem gefur o,ss fullkomna þekkingu á sönn- um og lifandi Guði, vilja hans og fyrirætlunum meo oss mennina, sem viljum vera hlýðin börn hans, Allt Guðs o>rð vitnar um kærleika Guðs til vor. Jesús sagði við lærisveina sína: »Hver sem elskar mig, mun varðveita mín orð, og Faðir minn mun elska nann og til hans munum við koma. og gjöra okkur bústað hjá honum. Sá sem ekki elskar mig, hann varðveitir ekki mín orð, og' það orð sem þér neyrið, er ekki mitt, heldur Föðurins, sem sendi mig«. Jóh. 14, 23.'—24. En hvaða sannanir hefir þú fyrir því, að Biblí- an sé Guðs orð? seg'ja sumir. Biblían er skrifuð 22

x

Afturelding

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.